Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 48
48 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í
kenningu, hegðun, ásetningi, trú,
langlyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3,
10.)
Í dag er kjördagur og Víkverji ætl-ar að sjálfsögðu að mæta á kjör-
stað. Hann íhugaði eitt einasta
augnablik hvort kosningin væri þess
eðlis að rétt væri að sleppa því, en
fann strax að það myndi hann aldrei
geta gert.
Sú tilfinning er sterk í brjósti Vík-
verja að honum beri skylda til að
nýta kosningarétt sinn og líklegt er
að það sama eigi við um aðra Íslend-
inga, miðað við hversu góð kjörsókn
er almennt hér á landi. Það kemur
einfaldlega einhver hnútur í magann
við tilhugsunina um að skrópa í kjör-
klefanum, en engu að síður hvarflar
það að manni þegar kosningin sjálf er
orðin svona óskiljanleg.
x x x
Eitt af mörgu sem er öðruvísi viðþessa kosningu er tíminn sem
hún er haldin á. Eins og svo mörgum
finnst Víkverja nefnilega kjördagar
alltaf vera svolitlir hátíðisdagar og
hefur hann gaman af því að sjá
hversu margir mæta prúðbúnir til að
greiða atkvæði (Víkverji þar á meðal)
og oftar en ekki í blíðskaparvorveðri.
Slabbið og rokið sem búast má við
þennan vetrarkjördag gerir þeim
spariklæddu erfitt fyrir en það er
kannski einkennandi fyrir það hvers
eðlis kosningin er, því sennilega er
enginn kjósandi í hátíðarskapi í dag.
x x x
Næsta óþarft er um niðurstöðusjálfrar atkvæðagreiðslunnar
að spá, enda auðséð að fáir vilja sam-
þykkja samning sem er verri en okk-
ur býðst í dag. Þrátt fyrir það eru
aðrir þættir sem Víkverji bíður
spenntur eftir, s.s. hver kjörsókn
verður í fyrstu þjóðaratkvæða-
greiðslunni á lýðveldistíma Íslands
og ekki síður hvernig erlendir fjöl-
miðlar fjalla um niðurstöðuna.
Á undanförnum dögum hefur Vík-
verja virst sem heimspressan sé
spenntari fyrir atkvæðagreiðslunni
en heimamenn. Hugsanlega er það
vegna þess að hún er útlendingum ill-
skiljanleg eða kannski sjá þeir í henni
meiri áhrifamátt en við Íslendingar.
Hvað sem því líður er ekki úr vegi að
hvetja alla til að mæta á kjörstað. vík-
verji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 þreklítill, 8
hluti lands, 9 stækja, 10
veiðarfæri, 11 skyld-
mennið, 13 peningar, 15
lífs, 18 smáaldan, 21 of
lítið, 22 hugaða, 23 ræf-
ils, 24 hjálpar.
Lóðrétt | 2 þor, 3 þreytt-
ur, 4 kaka, 5 ber, 6 fjall,
7 skordýr, 12 þegar, 14
ótta, 15 í fjósi, 16 tíðari,
17 fugls, 18 ilmur, 19
vegg, 20 þefa.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 flaga, 4 sekks, 7 lygar, 8 ósmár, 9 sær, 11
nára, 13 eiri, 14 nakin, 15 forn, 17 naum, 20 arf, 22
orðan, 23 eimur, 24 tunna, 25 tæran.
Lóðrétt: 1 falin, 2 argar, 3 aurs, 4 stór, 5 kamri, 6 syrgi,
10 æskir, 12 ann, 13 enn, 15 frost, 16 ræðin, 18 armur,
19 merin, 20 ansa, 21 feit.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Mundu að fara vel með það sem
aðrir segja þér í trúnaði. Eftir á skaltu
leyfa sjálfsgagnrýninni að koma upp, hún
er eðlileg.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Að hugsa of mikið um aðstæður sín-
ar skilar venjulega árangri í öfugu hlut-
falli. Kannski er tími til kominn að sinna
starfsmenntun sem kemur að notum á
vinnustað.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ólokin verk öskra á þig að hefj-
ast handa. Nýttu tímann vel og vertu um
leið opin/n fyrir nýjum tækifærum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ef þú ert alltaf úti við hliðarlínu
gæti fólk haldið að þú værir ekki þátttak-
andi í leiknum. Vegna yfirvegaðs styrks
þíns dregst fólk að þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft að ganga úr skugga um að
ekki sé verið að ganga á rétt þinn. Lagið
hljómar nokkurn veginn svona; þegar
upp er staðið er ástin sem þú færð jöfn
þeirri sem þú gefur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú skynjar hvernig öðrum líður og
veltir fyrir þér hvernig sé best að nálgast
þá. Félagslega ertu í góðum málum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nú er þín stund komin því eftir því er
beðið að þú segir hug þinn. Gleymdu
gömlum deilumálum og skelltu þér í upp-
byggjandi störf.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þér lætur vel að leiða aðra í
starfi. Mundu bara að svo tekur alvaran
við aftur bæði hjá þér og öðrum. Góðir
hlutir gerast þegar þú slakar á.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ekki einblína á það sem þú
heldur að þú getir ekki breytt. Búðu þig
undir að bíllinn bili, að þú missir af
strætó, týnir kvittunum og lyklum, missir
af fundum og svo framvegis.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Loksins virðist þér óhætt að
fara af stað með mál, sem þú hefur lengi
þurft að sitja á. Lífið heldur áfram þó að
þú tapir stundum, það gerir sigrana bara
sætari.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú nýtur óvenjumikillar at-
hygli og ættir því að leggja þig fram um
að líta sem best út. Ástvinur kemur á
óvart.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Gerðu ráðstafanir varðandi
páskafríið. Njóttu þess að vera í faðmi
fjölskyldunnar og byrjaðu svo á nýju
verkefni.
Stjörnuspá
6. mars 1830
Eldgos hófst í sjó nærri Eld-
eyjarboða út af Reykjanesi og
stóð það í tvo mánuði. „Rak
mikið af vikri að næstu strönd-
um,“ sagði í ritinu Land-
skjálftar á Íslandi.
6. mars 1873
Ofsaveður gerði við suðaust-
urströndina og er talið að
fimmtán franskar fiskiskútur
hafi farist. Fjörutíu lík rak á
land og voru þau jarðsett á
Stafafelli í Lóni í Austur-
Skaftafellssýslu.
6. mars 1905
Coot, fyrsti togari í eigu Ís-
lendinga, kom til Hafnarfjarð-
ar.
6. mars 1964
Kvikmyndaleikarinn Gregory
Peck hafði viðdvöl á Keflavík-
urflugvelli, á leið frá Bret-
landi til Bandaríkjanna. „Ýms-
ir leituðu til leikarans og báðu
um eiginhandarskrift er í ljós
kom hver hann var,“ sagði
Morgunblaðið.
6. mars 1999
Jón Arnar Magnússon, þá 29
ára, setti Íslandsmet og Norð-
urlandamet í sjöþraut á heims-
meistaramóti innanhúss í Mae-
bashi í Japan, hlaut 6.293 stig.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
HAUKUR Hjaltason, forstjóri heildverslunarinnar
Dreifingar ehf., er 70 ára í dag. Hann ætlar að
eyða deginum með nærfjölskyldunni, fara síðan
um páskana til þess hluta fjölskyldunnar sem býr í
Kaliforníu í Bandaríkjunum og stefnir svo að því
að halda fjölmenna veislu í nýju húsnæði fyrir-
tækja sinna síðar á árinu. Hann segir að nei í þjóð-
aratkvæðagreiðslunni í dag endurspegli hug al-
mennings í frönsku byltingunni 1789 og það sé
góð afmælisgjöf. „Þó ég eigi von á góðri afmæl-
isgjöf, neii við Icesave-lögunum, er ekki tilefni til
þess að halda upp á afmælið eins og sakir standa,“
segir hann. „Ég er enn veisluglaður, en þó tækifærið sé til staðar þarf
líka að leita lags og það lag er ekki til staðar í augnablikinu, en ef við
berum gæfu til þess að fella Icesave-lögin með 75 til 80% greiddra at-
kvæða eru það helstu skilaboð alþýðunnar í 221 ár eða síðan Frans-
menn marseruðu frá Marseille til Parísar til þess að fella kónginn.“
Dreifing flytur meðal annars inn frosnar franskar kartöflur frá
McCain í Kanada og þangað horfir Haukur helst. „Ég hef átt viðskipti
við Kanada í rúm 40 ár og ég sé ekkert betra í stöðunni fyrir Ísland og
alþjóðleg viðskipti heldur en Kanada,“ segir hann. steinthor@mbl.is
Haukur Hjaltason forstjóri Dreifingar 70 ára
Nei við Icesave góð gjöf
Sudoku
Frumstig
3 6 8
1 4 7
6 4 5 7
4 9 7 5 8
8 1 3 9
1
1 3 5
9 8 6 4
5 8 7 1
7 6
4
9 2 6
2 4
7 8 5
9 7
5 8 1
4 5 9
2 3 4 8
5
4 7 3
5 4 6 8
1 4 5
8 1 4 5 3
3 1 7 2
3 5 7 1 4 2 8 9 6
4 2 6 9 3 8 5 7 1
9 8 1 7 6 5 2 4 3
7 1 8 2 9 6 4 3 5
5 9 2 3 8 4 6 1 7
6 4 3 5 7 1 9 8 2
2 3 9 8 5 7 1 6 4
8 6 5 4 1 3 7 2 9
1 7 4 6 2 9 3 5 8
1 4 3 2 9 5 7 6 8
2 5 9 8 7 6 4 3 1
6 7 8 3 1 4 2 5 9
3 8 4 1 5 2 6 9 7
7 6 5 9 8 3 1 2 4
9 2 1 6 4 7 3 8 5
5 9 2 7 3 1 8 4 6
8 1 6 4 2 9 5 7 3
4 3 7 5 6 8 9 1 2
6 5 3 2 7 4 9 8 1
7 8 2 6 1 9 5 3 4
1 4 9 5 8 3 7 6 2
4 7 8 1 3 2 6 9 5
2 6 5 4 9 7 8 1 3
3 9 1 8 5 6 4 2 7
9 1 4 3 6 5 2 7 8
5 3 6 7 2 8 1 4 9
8 2 7 9 4 1 3 5 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 6. mars, 65. dagur
ársins 2010
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. cxd5 exd5
5. Rc3 c6 6. Bg5 Be7 7. Dc2 0-0 8. e3
Rbd7 9. Bd3 h6 10. Bh4 He8 11. Bg3
Rh5 12. 0-0 Rxg3 13. hxg3 Bd6 14.
Hab1 Rf6 15. Hfe1 Bd7 16. b4 a6 17.
Ra4 b5 18. Rc5 Bxc5 19. Dxc5 a5 20.
Re5 Hc8 21. a4 axb4 22. axb5 cxb5 23.
Dxb4 Hb8 24. Hec1 He6 25. Rxd7
Rxd7 26. Bf5 Hf6 27. Bd3 Ha6 28. Db3
Dg5 29. Hc7 Rf6 30. Hc5 Dh5 31. Hxb5
Hd8
Staðan kom upp á MP Reykjavík-
urskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Þorsteinn Þor-
steinsson (2.278) hafði hvítt gegn
þýska skákmanninum Wolfgang
Scholzen (2.040). 32. Hxd5! Rxd5 33.
Bxa6 Rf6 34. Db5 Hd5 35. Db8+ Kh7
36. Bd3+ g6 37. Df4 Kg7 38. Dh4 og
hvítur innbyrti vinninginn skömmu
síðar.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Úttektardobl.
Norður
♠ÁK
♥1084
♦KG54
♣ÁD72
Vestur Austur
♠72 ♠DG1095
♥ÁKDG732 ♥965
♦1083 ♦97
♣6 ♣KG3
Suður
♠8643
♥–
♦ÁD62
♣109854
Suður spilar 4♠.
„Dobl,“ sagði norður, djúpri röddu.
Gegn betri vitund hafði Ábótinn opnað
á 4♥ með sjölitinn í vestur, þrátt fyrir
óhagstæðar hættur. Ábótinn þekkti vel
regluna um 500-niður, en stjórn-
unarstörfin í Klaustrinu höfðu kennt
honum raunsæi. Hann vissi sem var að
bróðir Xavier myndi aldrei lyfta 3♥ í
fjögur með réttu spilin.
„Þetta er úttektardobl,“ upplýsti
suður í óspurðum fréttum og tók út í
4♠. Bróðir Xavier sá ekki ástæðu til að
rugga bátnum með dobli og Ábótinn
lagði af stað með ♥Á. Sagnhafi tromp-
aði, fór inn í borð á ♠Á og trompaði aft-
ur hjarta. Spilaði tígli á gosann og
stakk síðasta hjartað. Fór inn á blind-
an á ♦K, tók ♠K og spilaði tígli. Smátt
og smátt rann það upp fyrir Xavier að
það var sama hvað hann gerði, hann
myndi bara fá þrjá slagi á tromp.
Kristborg Sæ-
unn Helgadóttir
færði Rauða
krossi Íslands
528 kr. sem hún
hefði safnað með
því að halda tom-
bólu fyrir utan
Nóatún í Aust-
urveri. Pening-
arnir fara til Haítís.
Hlutavelta
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is