Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
TUTTUGU og þriggja ára gamall
karlmaður af íslenskum ættum situr
í gæsluvarðhaldi í Danmörku grun-
aður um morð á rúmlega fertugri
konu. Konan var skotin til bana við
hús sitt sem staðsett er vestur af
bænum Horsens sl. þriðjudag.
Maðurinn var handtekinn daginn
eftir, ákærður fyrir morðið og úr-
skurðaður í gæsluvarðhald. Annar
karlmaður, tæplega þrítugur Dani,
var í dag handtekinn vegna málsins.
Frá þessu var greint á vef danska
dagblaðsins Ekstra bladet. Í samtali
við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is,
sagði Jakob Rohde-Brøndum, blaða-
maður Ekstra bladet, að samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni væri
maðurinn íslenskur í aðra ættina og
hefði búið í Horsens stóran hluta æv-
innar.
Komið hefur fram að Íslendingur-
inn og hin látna þekktust og talið er
að þau tengsl liggi í gegnum undir-
heima Horsens.
Dóttir konunnar segist sjálf sann-
færð um að tilefni morðsins sé að
leita í því að ungi maðurinn hafi
skuldað móður hennar sem samsvar-
ar tæplega hálfri milljón íslenskra
króna.
Eftir því sem fram kemur í um-
fjöllun Ekstra Bladet hafði hin látna
komið við sögu lögreglunnar. Hún
mun hafa verið viðriðin fíkniefnamál
án þess að hafa verið sakfelld vegna
þess, en systir hennar, mágur og eig-
inmaður fengu öll dóm í því máli.
silja@mbl.is
Tengdust í undirheimum
Karlmaður af íslenskum ættum í haldi lögreglu grunaður
um morð á rúmlega fertugri konu í danska bænum Horsens
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Ný sending frá
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Eddufelli 2, opið 10-14
sími 557 1730
Bæjarlind 6, opið 10-16
sími 554 7030
www.rita.is
FERMING
Kjólar og skokkar
Reykjavík
Við Gömlu höfnina í Reykjavík er 2.036 m2 lóð við Ægisgarð. Hún er samkvæmt deiliskipulagi ætluð
fyrir atvinnuhúsnæði sem yrði opið almenningi á jarðhæð. Lóðin er að hluta til ófrágengin en hana
má gera byggingarhæfa á nokkrum mánuðum eftir nánara samkomulagi, auk þess sem aðlaga má
lóðina áhugaverðri starfsemi sem m.a. fellur að niðurstöðum hugmyndasamkeppni um Gömlu höfnina.
Byggingarréttarverð er háð samkomulagi og gjaldskrá Reykjavíkurborgar um gatnagerðargjöld.
Við Fiskislóð nr. 41 er laus til umsóknar 5.127 m2 lóð sem ætluð er undir hafnsækna starfsemi, svo sem
útgerð, fiskvinnslu, þjónustu við sjávarútveg og tengda starfsemi. Byggingarréttarverð er samkvæmt
gjaldskrá Faxaflóahafna sf. og gjaldskrá Reykjavíkurborgar um gatnagerðargjöld.
Í Sundahöfn er 35.000 m2 lóð nr. 1-3 við Korngarða laus til umsóknar. Lóðin er ætluð undir hafnsækna
starfsemi, svo sem farmstöðvar, gámavelli, vörugeymslur og vörudreifingu. Henni má mögulega skipta
upp í fleiri lóðir ef álitlegar umsóknir berast. Byggingarréttarverð er samkvæmt gjaldskrá Faxaflóahafna
sf. og gjaldskrá Reykjavíkurborgar um gatnagerðargjöld.
Grundartangi
Við Klafastaðaveg eru þrjár lausar iðnaðarlóðir til
umsóknar, allar byggingarhæfar nú þegar.
Skipt hefur verið um jarðveg í lóðunum og að þeim
lagður malbikaður vegur.
Klafastaðavegur 3 er 7.935 m2
Klafastaðavegur 4 er 3.469 m2
Klafastaðavegur 6 er 3.109 m2
Byggingarréttarverð er samkvæmt gjaldskrá
Faxaflóahafna sf.
Á Grundartanga liggur fyrir deiliskipulag 49 iðnaðarlóða sem unnt er að gera byggingarhæfar með
skömmum fyrirvara samkvæmt samkomulagi.
Akranes
Á Akranesi er lóð nr. 3 við Faxabraut laus til umsóknar fyrir hafntengda starfsemi. Gatnagerðargjöld eru
samkvæmt gjaldskrá Akraneskaupstaðar.
Umsóknum skal skilað til hafnarstjóra Faxaflóahafna sf. ásamt greinargóðri lýsingu á þeirri starfsemi
sem fyrirhuguð er á lóðunum. Berist ekki umsóknir í auglýstar lóðir munu Faxaflóahafnir sf. ganga til
samninga við áhugasama aðila sem síðar kunna að hafa áhuga á úthlutun lóðanna.
Nánari upplýsingar um staðsetningu lóða, nýtingarhlutfall, hæðir bygginga og fleira veita hafnarstjóri
Faxaflóahafna sf. eða skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna sf. í síma 525 8900.
Hafnarstjóri Faxaflóahafna sf.
Lausar lóðir hjá Faxaflóahöfnum sf.
Faxaflóahafnir sf. auglýsa hér með eftir umsækjendum um lausar lóðir í Reykjavík, á
Grundartanga og Akranesi. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 29. mars 2010.
A
T
H
Y
G
L
I
Laugavegi 63 • S: 551 4422
LÉTTAR STUTTKÁPUR
STREYMA INN
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 42-58
Yfirhafnirnar
eru komnar