Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010 Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is ALLT verður gert til að tryggja að atkvæði berist frá Árneshreppi á Ströndum í tæka tíð til talningar í Borgarnesi í kvöld. Björgunarsveit- inni á Dransgnesi hefur verið falið það verkefni að sækja atkvæðin, hvort sem það verður gert á björg- unarbát sveitarinnar eða á vélsleðum. Umdæmiskjörstjórnir verða skipaðar á Ísafirði og Vesturbyggð. Þær munu sjá um að safna saman atkvæðum og telja þau á Patreksfirði og Ísafirði. Ríkarður Másson, sýslumaður á Sauðárkróki og formaður yfirkjör- stjórnar í Norðvesturkjördæmi, segir að lögum samkvæmt megi ekki skipa nema tvær umdæmiskjörstjórnir í hverju kjördæmi. Hann segir erf- iðleika fyrirsjáanlega vegna veðurs við að koma kjörgögnum af þremur svæðum, Vesturbyggð, Ísafirði og Árneshreppi í Borgarnes. Hann hafi ákveðið að setja kjörstjórnir í Vest- urbyggð og á Ísafirði, en þau svæði eru mun þéttbýlli en Árneshreppur. „Við náum atkvæðunum úr Árnes- hreppi eftir öðrum leiðum,“ segir Ríkarður. „Fyrsta áætlun var að flog- ið yrði á Gjögur eftir atkvæðum, en vonlítið er að það verði hægt. Önnur áætlun var að vegurinn frá Hólmavík yrði mokaður norður í Árneshrepp, en það tekur of langan tíma og er of dýrt. Þannig að ég ætla að reyna senda björgunarsveitina frá Drangs- nesi eftir atkvæðum í Norðurfjörð. Annaðhvort fara þeir á björgunar- bátnum sem þeir eiga eða á vélsleð- um. Þetta er eina úrræðið sem ég tel mögulegt og við gerum allt til að nálgast atkvæðin.“ Ríkarður segir að útlit sé fyrir að illfært eða ófært verði um Klettsháls vegna ofankomu og því erfitt að koma atkvæðum úr Vest- urbyggð landleiðina í Borgarnes. Sama eigi við um atkvæði frá Ísafirði því snjóþungt sé á Steingrímsfjarð- arheiði og það fari enginn um heiðina í ofankomu og 25 metra vindhraða með tilheyrandi skafrenningi, eins og sjá megi í veðurkortum. Þá séu ekki heldur líkur á að flugfært verði frá þessum stöðum. Enginn kosningamokstur Kjörstaður verður opnaður í Ár- nesi klukkan 9 fyrir hádegi. Rúmlega 40 manns eru á kjörskrá í Árnes- hreppi. Oddný Þórðardóttir, oddviti í Árneshreppi, segir að mokað hafi verið frá Djúpuvík í vikunni, en ekki hafi verið um sérstakan kosn- ingamokstur að ræða. Moksturinn hafi fengist gegn því að hreppurinn borgaði helming á móti ríkinu. „Veturinn var einstaklega snjólétt- ur fram í miðjan febrúar, en eins og reglurnar eru núna er ekkert mokað í marga mánuði. Það er nokkuð sem við getum alls ekki sætt okkur við.“ Oddný sagðist ekki fylgjast grannt með fréttum af Icesave, væri raunar búin að fá meira en nóg af þeim. Því væri þó ekki að neita að á ýmsum bæjum misstu menn helst ekki af fréttum þegar þessi mál væru rædd. „En þetta er náttúrulega skelfilegt,“ sagði Oddný. „Fólkið hér var ekki í neinum vitleysisgangi, en þessi staða bitnar rosalega illa á fólki hér eins og annars staðar. Vörurnar hækka, skattarnir hækka og að auki eru veg- irnir lokaðir.“ Atkvæðin sótt í Árneshrepp á björgunarbát eða vélsleðum  Umdæmiskjörstjórnir í Vesturbyggð og á Ísafirði þar sem atkvæði verða talin Ljósmynd/Elín Agla Á flugvellinum á Gjögri Nemendur Finnbogastaðaskóla á þessum vetri: Kári Ingvarsson, Ásta Þorbjörg Ingólfsdóttir og Júlíana Lind Guðlaugs- dóttir. Næsta haust bætist einn nemandi í skólann, Þórey, systir Kára. Næst- ar í röðinni eru svo heimasæturnar í Bæ, Aníta og Magnea. Þá kemur röðin að Jóhönnu Engilráð úr Finnbogastaðaskóla og yngsti íbúi Árneshrepps er Arney í Árnesi, aðeins sjö vikna gömul. Ríkissjónvarpið verður ekki með hefðbundið kosn- ingasjónvarp vegna þjóð- aratkvæða- greiðslunnar um Icesave-lögin. Á hinn bóginn verður auka- fréttatími í Sjónvarpinu í kvöld klukkan 22 þegar fyrstu tölur ættu að liggja fyrir. Í fréttatímanum, sem verður einnig sendur út á Rás 1 og Rás 2, verður rætt við for- ystumenn allra stjórnmálaflokka, að sögn Sigríðar Hagalín Björns- dóttur, aðstoðarfréttastjóra RÚV. Annar sjónvarpsfréttatími verður á milli dagskrárliða og ef þurfa þykir verður dagskráin rofin. Enginn aukafréttatími verður á Stöð 2 vegna kosninganna. Mbl.is á kosningavaktinni Fylgst verður með framvindu at- kvæðagreiðslunnar og talningu at- kvæða á fréttavef Morgunblaðsins, www.mbl.is, í allan dag og fram á kvöld. Þar verða úrslit birt og við- brögð stjórnmálaforingja. Aukafréttatímar í stað kosningavöku Árneshreppur á Ströndum er fámennasta sveitarfélag lands- ins, með um 50 íbúa. Samein- ing hreppsins við annað sveit- arfélag hefur oft verið til umræðu og ekki síst und- anfarið þegar rætt hefur verið um sameiningu allra sveitarfé- laga á Vestfjörðum. Oddný Þórðardóttir, oddviti í Árneshreppi, segir sameining- armál eðlilega vera mikið til umræðu þar sem sveitarfélög geti sjálfviljug sameinast á næstu árum eða orðið skyldug til þess árið 2014. Hvað varðar Árneshrepp hafi þeirri spurn- ingu þó ekki verið svarað hvað íbúar í Árneshreppi beri úr být- um við það að sameinast öðr- um. Nú sé rætt um að sameina öll sveitarfélög á Vestfjörðum í eitt. Aðrir telja eðlilegra að sveitarfélögin verði þrjú; Strandir, norðanverðir Vestfirð- ir og suðurfirðir Vestfjarða. „Okkar leið liggur í raun ekki vestur í Ísafjarðardjúp þó svo að við séum í talsverðu sam- starfi á Vestfjarðavísu. Við eig- um líka í sýslusamstarfi á Ströndum. Staðreyndin er hins vegar sú að okkar leiðir liggja miklu frekar suður á bóginn. Ef við eigum ekki að eiga neina aðra möguleika í samgöngum í framtíðinni en flug frá Gjögri til Reykjavíkur þá liggur bein- ast við að við sameinumst höf- uðborginni. Ég sé ekki rökin fyrir því að sameinast Vest- fjörðum eða Hólmavík við þessar aðstæður,“ segir Oddný, oddviti í Krossnesi. Árneshreppur hluti af höfuðborginni? Dagskrá: 1. Kynning á nauðasamningi sem félagið hefur gert við kröfuhafa sína. 2. Tillaga um að breyta félaginu í einkahlutafélag í samræmi við ákvæði 132. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og afskrá félagið í kjölfarið af Nasdaq OMX Iceland. 3. Tillaga um að taka upp nýjar samþykktir fyrir félagið. Tillagan greinist í eftirfarandi aðal- og varatillögur: 4. Tillaga um starfskjarastefnu. 5. Önnur mál. Hluthafafundur í Bakkavör Group hf. Réttindi hluthafa Hluthafar geta fengið ákveðin mál tekin fyrir á hluthafafundinum ef þeir gera um það skriflega kröfu til stjórnar félagsins. Hluthafar skulu koma slíkri kröfu á framfæri til stjórnar félagsins eigi síðar en átta dögum fyrir hluthafafundinn. Aðgangur að upplýsingum og gögnum Drög að dagskrá, endanlegar tillögur frá stjórn félagsins, þ.m.t. drög að nýjum samþykktum fyrir félagið, ársreikningar og upplýsingar um hluti og atkvæðisrétt á dagsetningu þessa fundarboðs verða aðgengilegar hluthöfum til sýnis 21 degi fyrir hluthafafundinn. Lokaútgáfa dagskrár og allar tillögur verða aðgengilegar hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir hluthafafundinn. Allar upplýsingar og gögn verða aðgengileg í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3 og á heimasíðu félagsins, www.bakkavor.is/hluthafafundur Umboð Félagið mun taka gild umboð sem eru undirrituð af skráðum hluthafa. Þegar um er að ræða lögaðila skal umboðið undirritað af aðila sem heimilt er að skuldbinda félagið. Heimilt er að senda umboðið til félagsins í viðhengi með tölvupósti og skal vera afhent félaginu eigi síðar en 22. mars nk. Atkvæðagreiðsla Kjörseðlar og önnur gögn verða aðgengileg að Ármúla 3 frá kl: 15 daginn sem hluthafafundurinn er haldinn. Hluthöfum er heimilt að óska eftir því að fá að greiða atkvæði bréflega um þau mál sem eru á dagskrá hluthafafundarins. Þeim hluthöfum sem þess óska er bent á að fylla út eyðublað sem nálgast má á vefsíðu félagsins eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn. Reykjavík, 4. mars 2010 Stjórn Bakkavarar Group hf. Hluthafafundur í Bakkavör Group hf., kt. 410886-1629, Ármúla 3, 108 Reykjavík, verður haldinn að Ármúla 3 þann 26. mars 2010 og hefst kl: 16:00. a. aðallega tillaga um að taka upp nýjar samþykktir sem gera ráð fyrir hlutum í þremur hlutaflokkum, flokkum A, B og C; eða b. til vara tillaga um að taka upp nýjar samþykktir sem gera ráð fyrir hlutum í tveimur hlutaflokkum, flokkum A og B. Báðar tillögur að nýjum samþykktum gera ráð fyrir að núverandi hlutum í félaginu verði breytt í A hluti þar sem hver hlutur er að nafnvirði ein króna. Báðar tillögur fela einnig í sér heimildir til stjórnar til að hækka hlutafé félagsins og heimild til að breyta, með tilvísun íVI. kafla laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og í nauðasamning félagsins, samtölu skulda félagsins, sem nemur 55% ef teknar verða upp samþykktir þær sem lagðar eru til undir dagskrárlið 3a að ofan og 100% ef teknar verða upp samþykktir þær sem lagðar eru til undir dagskrárlið 3b að ofan (eftir breytingu á um það bil 1% í B hluti) af heildarútistandandi samningskröfum undir nauðasamninginum í A hluti í félaginu. Tillögurnar gera ráð fyrir að forgangsréttur hluthafa eigi almennt ekki við, sbr. 3. mgr. 24. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. VEÐBANKINN Betsson.com býð- ur viðskiptavin- um sínum að veðja um nið- urstöðu þjóð- aratkvæða- greiðslunnar um Icesave. Stuðl- arnir sýna að miklar líkur eru taldar á því að Ís- lendingar segi nei. Betsson setur stuðulinn 7,00 fyrir já en 1,10 fyrir nei, að því er fram kom á vefsíðunni í gærkvöldi. Stuðlarnir voru mun jafnari þegar veðjað var um það hvort forsetinn staðfesti lögin. Veðjað á nei í veðbanka Betsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.