Morgunblaðið - 06.03.2010, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 06.03.2010, Qupperneq 8
8 Fréttir FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is MIÐAÐ við skoðanakannanir um af- stöðu til Icesave-laganna og að afar fáir mæla með því á opinberum vett- vangi að þau verði samþykkti, má gera ráð fyrir að meirihluti lands- manna greiði atkvæði gegn samn- ingunum í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni í dag. Mun meiri óvissa ríkir á hinn bóginn um hver kjörsóknin verður. Kjörsókn í kosningum á Ís- landi er góð, á alþjóðlegan mæli- kvarða, þrátt fyrir að hún hafi dalað undanfarna tvo áratugi eða svo. Í þingkosningunum í fyrra var kjör- sókn t.a.m. um 85%, sem er heldur betri kjörsókn en árið 2007. Fáir bú- ast við að kjörsókn að þessari fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu frá lýðveldis- stofnun árið 1944 verði svo mikil. Engin Já-hreyfing Ýmislegt spilar hér inn í. Stjórn- málamenn, þ. á m. forystumenn rík- isstjórnarinnar hafa sagt að í raun hafi Hollendingar og Bretar boðið betra samkomulag en það sem nú verður kosið um. Þá sagði forsætis- ráðherra í gær að hún myndi ekki mæta á kjörstað og fjármálaráð- herra hafði ekki ákveðið sig. Það er því varla hægt að tala um Já- hreyfingu í þessu sambandi en hin óformlega Nei-hreyfing er þeim mun öflugri. Það blasir því við að þessi staða er ekki til þess fallin að hleypa spennu í kosningarnar og stuðla að jafn mikilli kjörsókn og í hefðbundnum kosningum. Ein vís- bending um að kjörsókn verði lakari er að mun færri höfðu í gær kosið ut- an kjörfundar en venja er til. Á fimmtudag munaði þar um helmingi miðað við sama tíma í fyrra og árið 2007. Reyndar geta verið ýmsar skýringar á því, m.a. sú að færri eru á faraldsfæti í byrjun mars en í maí, þegar kosningar fara alla jafna fram. Þá skiptir auðvitað miklu að við- ræður um nýjan samning stóðu fram á fimmtudag og lengi vel virtist vera möguleiki á að hætt yrði við at- kvæðagreiðsluna. Aðsókn í utan- kjörfundaratkvæðagreiðsluna tók hins vegar kipp á miðvikudag og hef- ur síðan verið svipuð því sem gerist síðustu daga fyrir þingkosningar, samkvæmt upplýsingum frá sýslu- manninum í Reykjavík. Spurningin sem kjósendur standa frammi fyrir er í eðli sínu einföld. Annað hvort samþykkja þeir samn- inginn eða fella hann. María Thejll, forstöðumaður Lagastofnunar Háskóla Íslands, segir að verði lögin nr. 1/2010 sem nú er kosið um felld úr gildi, haldi fyrri lög nr. 96/2009 gildi sínu óbreytt. Í fyrri lögunum er kveðið á um ýmis skilyrði og fyrirvara við samning sem var gerður við Breta og Hol- lendinga í júní 2009. Bretar og Hol- lendingar féllust hins vegar ekki á þá fyrirvara og því gátu samningarnir ekki tekið gildi. Deilan um Icesave leysist ekki með því að segja nei, því deila um uppgjör vegna Icesave- reikninganna er þá enn óleyst milli Íslendinga, Breta og Hollendinga. Þjóðin gengur til kosninga Kosningadagur Í Ráðhúsi Reykjavíkur var í gær byrjað að flokka utankjörfundaratkvæði. Veðurstofan spáði í gær hvassviðri um allt land og votviðri vestanlands á kosningadag. Hvergi var þó spáð aftakaveðri.  Fáir höfðu greitt atkvæði utan kjörfundar en kippur kom í aðsóknina síðustu dagana fyrir kjördag  Veðurstofan spáir vindasömu og votu kosningaveðri víða um land en að hvergi verði aftakaveður Rúmlega 230.000 manns eru á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæða- greiðsluna í dag. Kippur kom í at- kvæðagreiðslu utan kjörfundar síðustu daga en aðsókn að henni er þó minni en síðustu ár. Heimsóknir á thjodaratkvaedi.is 2.000 1.000 02. feb. - 4. mars 2010 Gestir á dag Gestir alls: 8.148 Flettingar: 21.3268. feb 15. feb 22. feb 1. mars Þjóðaratkvæðagreiðsla 6.mars 2010 230.014 á kjörskrá Þingkosningar 25. apríl 2009 227.843 á kjörskrá 193.975 greiddu atkvæði (85,1%) Atkv. utan kjörf. 24.309 (12,5%) Gild atkvæði 187.183 (96,5%) Auðir seðlar 6.226 (3,2%) Ógildir seðlar 566 (0,3%) Þingkosningar 12.maí 2007 221.330 á kjörskrá 185.071 greiddu atkvæði (83,6%) Atkv. utan kjörf. 23.713 (12,8%) Gild atkvæði 182.169 (98,4%) Auðir seðlar 2.517 (1,4%) Ógildir seðlar 385 (0,2%) Þingkosningar 2003 211.304 á kjörskrá 185.392 greiddu atkvæði (87,7%) Atkv. utan kjörf. 18.068 (9,7%) Gild atkvæði 183.172 (98,8%) Auðir seðlar 1.873 (1%) Ógildir seðlar 347 (0,2%) Morgunblaðið/Árni Sæberg STEFANÍA Ósk- arsdóttir stjórn- málafræðingur segir að vissulega sé óvenjulegt að forystumenn rík- isstjórnar lýsi því yfir að þeir muni ekki, eða líklega ekki, greiða at- kvæði í þjóð- aratkvæða- greiðslu, líkt og þau Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra hafa gert. Jafnframt verði að hafa í huga að kosningin og staða Icesave-málsins sé mjög óvenjuleg og líklega sé það eins- dæmi að fram fari kosning um mál samhliða því að verið sé að semja um niðurstöðu í því við aðrar þjóðir. Stefanía segir að ríkisstjórnin sé með þessu að reyna að fjarlægjast kosninguna og niðurstöðuna. Þá bendir hún á að Jóhanna og Stein- grímur séu í þröngri stöðu; þau hafi samið við Breta og Hollendinga og heitið því að Íslendingar stæðu við sitt. Þau geti hins vegar varla stutt lögin, enda hafi komið fram að betra tilboð liggi á borðinu. Óvenjulegar yfirlýsingar frá forystu Kosningin og stað- an líklega einsdæmi Stefanía Óskarsdóttir Vefurinn thjodaratkvaedi.is er ætl- aður þeim sem vilja fræðast um þjóðaratkvæðagreiðsluna og helstu álitamál sem snerta Ice- save-samningana . Fáir skoðuðu vefinn framan af en umferðin tók greinilegan kipp eftir að fjara tók undan samningaviðræðum í Lond- on. Sjá má umferðina til hádegis í gær á línuritinu. Lítil umferð en kippur eftir að viðræðum lauk MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.