Morgunblaðið - 06.03.2010, Side 22
22 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
ÍSBRJÓTUM tókst í gærmorgun að
losa tugi skipa, m.a. farþegaferjur,
sem höfðu verið föst í hafís á Eystra-
saltinu, sum í nokkra daga.
Alls festust um fimmtíu skip í haf-
ísnum, flest þeirra voru föst á svæð-
inu á milli Stokkhólms og Álands-
eyja en nokkur voru í Helsingjabotni
í norðurhluta Eystrasaltsins, að
sögn siglingastofnunar Svíþjóðar.
Á meðal skipanna sem losnuðu
var ferjan Amorella sem var föst í
hafísnum með um eitt þúsund far-
þega og áhöfn um borð.
Tugir skipa
losnuðu
200 km
Helsingja-
botn
Álandseyjar
Heimildir: BBC, norrænir fjölmiðlar
Stokkhólmur
Helsinki
FINNLAND
SVÍÞJÓÐ
Eystrasalt
Flutningaskip
eru föst í ís
í Helsingja-
botni
Tugir skipa
festust í
hafísnum
Verð á sígarettupakka (20 sígarettur) í krónum í nokkrum Evrópulöndum
(febrúar 2010). Á Íslandi kostar pakkinn um 870 krónur.
VERÐ Á SÍGARETTUM Í EVRÓPU
Bretland
1.180
Svíþjóð
905
Finnland
765
Austurríki
700Frakkland
975
Spánn
560
Ítalía
645
Grikkland
560
Þýskaland
870
Holland
850
Danmörk
870
Belgía
850
Lúx.
645
Portúgal
610
Írland
1.480
520-700 kr. (3-4 evrur)
700-870 kr. (4,1-5 evrur)
871-1.045 kr. (5,1-6 evrur)
Meira en 1.045 kr. (6 evrur)
Dómstóll Evrópusambandsins hefur úrskurðað að Frakkland, Austurríki og
Írland hafi brotið samkeppnisreglur sambandsins með því að setja
lágmarksverð á sígarettur í heildsölu. Dómstóllinn komst að þeirri
niðurstöðu að löndin þyrftu að beita öðrum ráðum til að stemma stigu við
reykingum. Hann sagði að ríki gætu samt enn lagt háa skatta á tóbak til
að stuðla að hærra verði í baráttunni gegn reykingum.
Heimild: Samtök tóbaksframleiðenda (TMA)
ÞRÁTT fyrir efnahagssamdráttinn í
heiminum var síðasta ár það besta í
sögu fjárfestinga sjóðsins í útlöndum,
að sögn stjórnenda sjóðsins í gær.
Hagnaður olíusjóðsins á síðasta ári
nam 613 milljörðum norskra króna,
sem svarar rúmum 13.000 milljörðum
íslenskra, að sögn fréttavefjar norska
ríkisútvarpsins. Árið áður tapaði
sjóðurinn um 633 milljörðum norskra
króna, þannig að með hagnaðinum á
síðasta ári hefur sjóðurinn unnið að
mestu upp tapið.
„Langtímarekstraráætlun sjóðsins
hefur orðið til þess að við höfum kom-
ið vel út úr kreppunni,“ sagði Yngve
Slyngstad, forstjóri olíusjóðsins.
Hann bætti við að gengi hlutabréfa í
eigu sjóðsins hefði hækkað meira en
búist hefði verið við.
Fréttavefur Aftenposten hefur eft-
ir Slyngstad að ákveðið hafi verið árið
2007, áður en efnahagssamdrátturinn
hófst, að nota ætti 60% af fjármunum
hans til að kaupa hlutabréf, í stað
40% áður. Þessi ákvörðun var heppi-
leg fyrir sjóðinn því hann jók kaup sín
á hlutabréfum þegar gengi þeirra var
lágt.
Eignir olíusjóðsins eru nú áætlaðar
um 2.500 milljarðar norskra króna,
eða sem svarar 55.000 milljörðum
íslenskra.
Umdeildar fjárfestingar
Sérstakt ráð á vegum sjóðsins met-
ur hvort fjárfestingar samræmist
siðareglum hans. Hann hefur ekki
mátt fjárfesta í 49 fyrirtækjum, m.a.
tóbaksfyrirtækjum, Boeing, Wal-
Mart og ísraelska fyrirtækinu Elbit.
Olíusjóðurinn hefur þó verið gagn-
rýndur fyrir að halda áfram að fjár-
festa í umdeildum fyrirtækjum. Hann
hefur t.a.m. aukið fjárfestingar sínar í
átta fyrirtækjum sem hafa unnið með
herforingjastjórninni í Búrma.
Sjóðurinn hefur einnig haldið áfram
að kaupa hlutabréf í fyrirtækjum
með starfsemi í Vestur-Sahara sem
Marokkó hernam fyrir meira en
þremur áratugum. Þá hefur sjóður-
inn verið gagnrýndur fyrir að fjár-
festa í fyrirtæki í Hong Kong sem er
sakað um að eyða regnskógum í lönd-
um sem það starfar í. bogi@mbl.is
Besta ár í sögu
norska olíusjóðsins
Sagður hafa komið vel út úr efnahagskreppunni í heiminum
Í HNOTSKURN
» Svein Gjedrem, seðla-bankastjóri Noregs, sagði
að olíusjóðurinn ætti nú um 1%
af öllum hlutabréfum í heim-
inum, en fyrir ári átti hann
0,8% hlutabréfanna. Sjóðurinn
á 1,8% hlutabréfa á evrópskum
mörkuðum.
» Olíusjóðurinn á hlutabréf ímeira en 8.000 fyrirtækjum
í heiminum, en hlutur hans í
fyrirtækjunum er oftast undir
einu prósenti.
LÖGREGLUMENN handtaka mann sem tók þátt í mót-
mælum í miðborg Aþenu gegn aðgerðum til að minnka
fjárlagahalla Grikklands. Þúsundir kommúnista mót-
mæltu aðgerðunum þegar gríska þingið samþykkti þær
í gær. Lögreglan beitti táragasi eftir að verkalýðsfor-
ingi varð fyrir meiðslum í árás nokkurra ungmenna.
Reuters
Sparnaðaraðgerðir samþykktar á gríska þinginu
Táragasi beitt gegn mótmælendum
ALÞJÓÐLEG
nefnd sérfræð-
inga hefur fallist
á þá kenningu að
risaeðlurnar hafi
dáið út vegna
áreksturs stórs
loftsteins eða
halastjörnu við
jörðina fyrir um
65 milljónum
ára.
Nefndin er skipuð 41 sérfræðingi
og komst að þessari niðurstöðu eft-
ir viðamestu rannsóknina til þessa
á orsökum þess að rúmur helm-
ingur allra tegunda á jörðinni varð
aldauða á þessum tíma, meðal ann-
ars risaeðlurnar, flugeðlur og stór
sjávarskriðdýr.
Nokkrir vísindamenn höfðu
dregið loftsteinskenninguna í efa
og meðal annars hafði komið fram
sú kenning að rekja mætti aldauða
dýranna til mikilla eldgosa á Ind-
landi og stóraukins koltvísýrings í
andrúmsloftinu.
Alþjóðlega nefndin vísaði þessum
efasemdum á bug og komst að
þeirri niðurstöðu að dýrategund-
irnar hefðu dáið út vegna áreksturs
stórs loftsteins sem varð til þess að
Chicxulub-gígurinn í Mexíkó mynd-
aðist.
Stór loftsteinn
olli víst aldauða
risaeðlanna
Málið telst upplýst.
Fyrirtækjum gengur yfirleitt best
þegar þjónustan er frábær.
Þess vegna leita þau til okkar.
Þorleifur Sigurðsson, viðskiptastjóri Borgartúni
Það er minna mál að skipta um
banka en þú heldur.
Kynntu þér málið á mp.is eða
hafðu samband í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · Ármúla 13a
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Gjaldeyrisreikningar
Erlend viðskipti
Innheimtuþjónusta
Fyrirtækjaráðgjöf
Netbanki & þjónustuver
Kreditkort
Ávöxtun innlána
Veltureikningur
Fjármögnun
Ábyrgðir