Morgunblaðið - 06.03.2010, Page 25

Morgunblaðið - 06.03.2010, Page 25
Daglegt líf 25ÚR BÆJARLÍFINU MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010 Vorið er ekki langt undan enda alltaf bjartara með hverjum degi sem líð- ur. Á mörgum bæjum koma fyrstu lömbin í næsta mánuði og þessa dag- ana eru sauðfjárbændur að láta telja fóstrin í ánum. Þetta þykir mörgum mikil hagræðing og sauðburðurinn verður að mörgu leyti léttari. Svo fer rúningur að hefjast úr þessu og fagna margir því hve eftirsótt ullin er orðin eftir margra ára nið- ursveiflu.    Félag þingeyskra kúabænda hélt að- alfund sinn nýlega í félagsheimilinu á Breiðumýri. Þar var nokkuð rætt um verðlag á aðföngum, en gríð- arlegur verðmunur getur verið á ýmsu sem þarf til búrekstrar allt eft- ir því hvar það er keypt. Í framhaldi af því sagðist Friðgeir Sigtryggsson, bóndi á Breiðumýri, vera ákveðinn í að flytja sjálfur inn rúlluplast í gám- um beint frá Kína og bauð öðrum bændum að vera með í verkefninu. Búast má við því að Kínaplastið komi að góðum notum á komandi sumri enda þykir það mjög vandað.    Bárðdælingar framleiddu allir úr- valsmjólk á árinu og verða verðlaun- aðir á samlagsfundinum sem verður á næstunni. Að sögn Kristjáns Gunnarssonar mjólkureftirlits- manns er það nánast einsdæmi að allir framleiðendur í einni deild komi svona vel út en hann segir að Bárð- dælingar séu mjög vakandi fyrir mjólkurgæðum, mjög vandvirkir og metnaðarfullir. Hann segist vera ákaflega stoltur af framleiðendum sínum á samlagssvæðinu, en í Eyja- firði og Suður-Þingeyjarsýslu eru alls 25 innleggjendur með verðlaun af rúmlega 40 á öllu landinu.    Hænsnarækt er vaxandi áhugamál hjá mörgum og hefur landnáms- hænum fjölgað töluvert í héraðinu á sl. ári. Til tals hefur komið að halda sýningu á komandi sumri og velja þar fallegustu fugla í sýslunni til þess m.a. að vekja athygli á heim- ilishænsnum. Anna Soffía Halldórs- dóttir í Urðargerði, sem er nýr rækt- andi, segir þetta frábært tómstundagaman. Hún og dóttir hennar, Anna Guðný, hafa verið með útungunarvél í gangi að undanförnu og er orðið mjög líflegt í hæsnahús- inu.    Menningin blómstrar sem aldrei fyrr. Tónleikar eru einhvers staðar í hverri viku og karlakórinn Hreimur ætlar að halda árlegan vorfagnað í lok mánaðarins. Söngleikurinn Ólafía, sem er á sviðinu á Breiðumýri, nýtur mikilla vinsælda og hefur verið uppselt á fyrstu sýningarnar. Þá hafa 10.-bekkingar á Húsavík sett upp Dýrin í Hálsaskógi í nýrri útfærslu, svo af nógu er að taka. Ekki má held- ur gleyma hagyrðingakvöldi sem var í Dalakofanum á Laugum nýlega þar sem rætt var saman í bundnu máli. Bóndi einn og böll voru þar m.a. til umræðu og kom þá Sigurður Hlynur Snæbjörnsson með þessa vísu: Við konur þreytti karlinn dans, klókur varla steig á fót. Það er skemmtun helsta hans, að henda sér á þorrablót. Atli Vigfússon Morgunblaðið/Atli Vigfússon Líflegt Anna Guðný Pétursdóttir með litla hænuunga. ÞINGEYJARSÝSLA BANDARÍSKI uppfinn- ingamaðurinn Erez Lieb- erman-Aiden var á dög- unum verðlaunaður af háskólanum Massachu- setts Institute of Techno- logy (MIT) fyrir raf- magnsinnlegg sem hann nefnir iShoe. Hugmynd- ina fékk hann eftir fráfall ömmu sinnar sem lést af áverkum sínum eftir að hafa dottið. Lieberman-Aiden sem er þrítugur nemandi bæði við MIT og Harvard var ósáttur eftir fráfallið og taldi að hægt hefði verið að koma í veg fyrir það, s.s. ef amma hans hefði haft betra jafnvægi. Í starfsnámi sínu hjá NASA flaug hugmyndin í kollinn á honum. Með iShoe-innlegginu er jafnvægi notenda skráð og sent um leið í tölvu. Þar með er að hægt að skrásetja hvað betur má fara og vinna í að bæta jafnvægið. Lieberman-Aiden hlaut 30 þúsund dollara í verðlaunafé, eða tæpar fjór- ar milljónir króna. iShoe er enn á þróunarstigi en hann gerir ráð fyrir að innleggið komi á markað eftir fáein ár. Innlegg bætir jafnvægið FROSIÐ grænmeti getur verið næringarríkara en ferskt, sam- kvæmt nýrri rannsókn sem sagt er frá í breska blaðinu Daily Tele- graph. Um 45% næringarefna geta verið farin úr fersku grænmeti frá því það er tínt og þar til það berst að vörum neytenda. Oft tekur það grænmeti tvær vikur eða meira að komast af akrinum og á matardisk- inn. Breskir neytendur eru sér þó ekki meðvitandi um þetta og telja að grænmeti sé að meðaltali fjög- urra daga gamalt þegar þeir kaupa það í matvöruverslunum. Sé grænmeti hins vegar fryst fljótlega eftir að það er tínt varð- veitast næringarefnin betur, sam- kvæmt rannsókn vísindamanna við bresku Matvælarannsóknarstofn- unina (Institute of Food Research). Rannsóknin var gerð fyrir fram- leiðendur frosins grænmetis. Á sextán dögum tapa grænar baunir 45% af næringarefnum sín- um, spergill 25% og gulrætur 10%. Frosið grænmeti hollara? S. 562 1200 F. 562 1251 Skipalón 16-20 • Hafnarfirði - Fimmtugir og eldri, nú er lag! - Nýtt í sölu • Mjög hagstætt verð Vandaður frágangur. Fullinnréttuð sýningaríbúð. Hagstæð 70 til 90% lán frá Íbúðalánasjóði geta fylgt með. Glæsilegar og sérlega vandaðar íbúðir, vel staðsettar með góðu aðgengi. Allur frágangur til fyrirmyndar. Opið hús í dag frá 14-16 Verð á 2ja herb. íbúð frá kr. 17.100.000 Verð á 3ja herb. íbúð frá kr. 20.800.000 Verð á 4ra herb. íbúð frá kr. 26.800.000 VERÐ - 2ja herb. íbúðir frá 71 m2 - 3ja herb. íbúðir frá 92,2 til 122,2 m2 - 4ja herb. íbúðir frá 127,4 til 167,3 m2 - Tvennar svalir á stærri íbúðum, bæði út frá eldhúsi og stofu. - Frábært útsýni. - Stórar stofur - Tvö baðherbergi í stærri íbúðum, annað inn af hjónaherbergi. - Þvottaherbergi í öllum íbúðum. - Innréttingar í hæsta gæðaflokki frá Brúnási. - Heimilistæki frá AEG. - Uppþvottavél og ísskápur fylgja. - Hreinlætistæki frá Tengi. - Ljóst granít á borðum og sólbekkjum frá S. Helgasyni. - Sérbílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir öllum íbúðunum. - Innangengt úr bílgeymslu í 3 lyftur. - Góð þvottaaðstaða í bílgeymslu. - Hefðbundin sameign ásamt 55 fermetra samkomusal. - Golfvöllur í göngufæri. - Til afhendingar strax.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.