Morgunblaðið - 06.03.2010, Síða 29
þegar gefið það út að 38 manns hafi
fengið Guillian Barre-sjúkdóminn og
guð má vita hvað margir eiga eftir að
fá gigt eftir nokkur ár, en vitað er um
11 manns sem hafa fengið MS eftir
bólusetningu. Á Ítalíu hafa 33 manns
látist eftir bólusetningu og meira en
7.800 tilfelli hafa komið upp varðandi
aukaverkanir. Í Ísrael var allri þess-
ari bólusetningu hætt þar sem 4 lét-
ust eftir hana. Japanar heimtuðu
rannsókn á bóluefninu sínu eftir að
104 manns létust eftir bólusetningu
(Kyoto News 31.12. 2009) og Kan-
adamenn heimtuðu rannsókn á bólu-
efninu þar sem 200 manns höfðu lát-
ist og voru því 172.000 dósir
afpantaðar (Euronews 24.11.2009).
Menn telja að víða í Evrópu hafi bólu-
efnafyrirtækin gert leynilega samn-
inga við stjórnvöld, vitað er um leyni-
legan samning sem lekið var út á
lepoint2.com, en í þessum franska
samningi, eða undir rauða listanum,
kemur fram, að ekki má fjalla um
aukaverkanir, dauðsföll, „squalene“
og „thiomersal“ hvað varðar þetta
PandemRix-bóluefni fyrr en fyr-
irtækið GSK gefur út leyfi um það.
Þarna er kannski komin ástæðan fyr-
ir því af hverju lítið sem ekkert hefur
verið fjallað um dauðsföll, aukaverk-
anir og skvalen í heimspressunni, og
hér heima á Íslandi er ekki heldur
hægt að fá afrit af þessum samningi
sem gerður var við GSK.
Höfundur er formaður Samstarfs-
nefndar trúfélaga fyrir heimsfriði.
Umræðan 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
Árið 1990 þegar
samstarf Sjálfstæð-
isflokks og Fram-
sóknarflokks í bæj-
arstjórn Kópavogs
hófst lofaði Gunnar
Birgisson, oddviti
sjálfstæðismanna, að
ekki yrði hróflað við
Fossvogsdalnum.
Fyrir kosningar
reyndu allir flokkar
að höfða til tilfinninga kjósenda
enda höfðu flestir kjósendur þá
skoðun að dalinn bæri að vernda. Í
Morgunblaðinu 22. maí 1990 sagði
Gunnar:
„Fossvogsbraut var þurrkuð út
af kortinu og þetta fallega útivist-
arsvæði, þessi perla okkar, var
vernduð. Síðan þurfum við að
halda vel á spöðunum með að
vernda þetta svæði.“
Síðan eru liðin mörg ár og Sjálf-
stæðisflokkurinn búinn að marg-
svíkja þetta loforð. Þó að orðið hafi
leiðtogaskipti í Sjálfstæð-
isflokknum eru þeir sem nú skipa
efstu sæti flokksins eftir prófkjör
þeir sömu og stóðu með Gunnari í
því að ganga á umhverfið í Foss-
vogsdal.
Dæmið um Foss-
vogsdal er lýsandi fyr-
ir fjórflokkinn. Það er
ekki hægt að treysta
því sem frambjóð-
endur hans segja fyrir
kosningar. Eftir kosn-
ingar er allt gleymt og
grafið.
Þess vegna geta t.d.
íbúar í vesturbæ
Kópavogs ekki treyst
því að núverandi
minnihluti í bæj-
arstjórn muni ekki halda áfram
með áform núverandi meirihluta í
skipulagsmálum á Kársnesinu
komist þeir í meirihluta!
Á auka bæjarstjórnarfundi í júlí
2008 lýstu forystumenn beggja
minnihlutaflokkanna, Samfylkingar
og Vinstri grænna því yfir að það
gengi ekki að bæjarbúar stjórnuðu
því hvernig skipulag bæjarins væri
framkvæmt!
Við í Frjálslynda flokknum
spyrjum: Ef ekki bæjarbúar,
hverjir þá? Spilltir stjórn-
málamenn?
Frjálslyndir hyggja á framboð í
næstu bæjarstjórnarkosningum í
Kópavogi. Verði flokkurinn í að-
stöðu til mun hann algjörlega
blása út af borðinu öllum hug-
myndum núverandi meirihluta í
skipulagsmálum á Kársnesinu.
Frjálslyndir vilja stokka spilin upp
á nýtt í skipulagsmálum í Kópa-
vogi. Skipulagsmál verða ekki út-
færð nema í samráði og með vilja
íbúa.
Þess vegna hefur flokkurinn sett
á borðið mjög skýrar tillögur
hvernig koma megi í veg fyrir yf-
irgang bæjarins í skipulags- og
umhverfismálum eins og núverandi
meirihluti hefur iðkað síðastliðin
20 ár.
Við ætlum að innleiða íbúa-
lýðræði í Kópavogi. Það verður
meðal annars gert þannig að krefj-
ist 25% kosningabærra íbúa, kosn-
inga um eitthvert ákveðið skipu-
lags- eða umhverfismál þá verði
bæjarstjórn að verða við því. Með
þessu móti hefði yfirgangur Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
á Kársnesi verið kæfður í fæðingu.
Eða skipulagið fengið framgang ef
íbúar hefðu kosið á þann veg.
Skilaboð okkar í Frjálslynda
flokknum til kjósenda eru þessi:
Þið getið ekki treyst orðum fjór-
flokksins um íbúalýðræði og
gegnsæi, hvorki í sveitarstjórnum
né í landstjórninni.
Frjálslyndi flokkurinn er val-
kostur í komandi bæjarstjórn-
arkosningum í Kópavogi.
Fjórflokkurinn í Kópavogi
Eftir Helga
Helgason
Helgi Helgason
» Við í Frjálslynda
flokknum spyrjum:
Ef ekki bæjarbúar,
hverjir þá? Spilltir
stjórnmálamenn?
Höfundur er stjórnmálafræðingur
og formaður bæjarmálafélags
Frjálslynda flokksins í Kópavogi.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali
Guðmundur
Sigurjónsson,
lögfræðingur,
lögg. fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson,
lögg. fasteignasali
Kjartan Hallgeirsson,
lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteignasali
Hilmar Þór
Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteignasali
Magnús Geir
Pálsson,
sölumaður
Þórarinn M.
Friðgeirsson,
lögg. fasteignasali
Jóhanna
Valdimarsdóttir,
gjaldkeri
Elín Þorleifsdóttir,
ritari
Reykjavík
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s
GLITVELLIR 41 - VANDAÐ EINBÝLISHÚS
Fallegt mjög vel skipulagt einbýlishús á einni hæð samtals 221,8 fm þar af er tvöf. bílskúr
43,5 fm Húsið er ekki fullbúið. Vandað sérhannað eldhús með góðum tækjum, 2
baðherbergi, flísar á gólfum þar. Hiti í öllum gólfum. Innangengt um þvottahús í tvöfaldan
bílskúr. Timburverönd á baklóð. V. 38,0 m. 5474
OPIÐ HÚS MÁNUDAG FRÁ KL. 17:00 - 18:00.
BJARMALAND - NEÐST Í FOSSVOGINUM
Glæsilegtsamtals 228,5 fm einlyft einbýlishús með tvöföldum bílskúr. Eignin skiptist m.a. í
hol, fjögur herbergi, baðherbergi, snyrtingu, sjónvarpshol, borðstofu, stofu og eldhús. Búið
er að endurnýja m.a. allt gler, raflagnir, hitalagnir, allar innréttingar, setja hita í gólf, ný
gólfefni, nýtt þak o.fl. Lýsing frá Lúmex. Allar innréttingar sérsmíðaðar eftir teikningu Albínu
Thordarson arkitekts. Gegnheilt parket. Stór garður í mikili rækt. Rólegur staður í botnlanga.
Allar nánari uppl. veita Kjartan Hallgeirsson í síma 824-9093 eða Magnús Geir Pálsson í
síma 892-3686 V. 95,0 m. 4444
SKIPASUND - GLÆSILEG ÍBÚÐ
Glæsileg 5 herbergja 120,9 fm
sérhæð ásmt 31,1 fm bílskúr,
samtals 152 fm Hæðin hefur nær
öll verið endurnýjuð á smekklegan
hátt. Á 1. hæð er forstofa, innra
hol, tvær samliggjandi stofur,
baðherbergi og rúmgott eldhús. Í
risinu eru 3 herbergi og
baðherbergi. Sér hellulögð verönd.
Innkeyrsla er hellulögð og með
lýsingu og upphituð. V. 34,0 m.
7435
Suðurmýri - Seltjarnarnes Fallegt og
vel skipulagt 276,6 fm raðhús á tveimur
hæðum með innbyggðum bílskúr. Húsið er
hornhús og annað stærsta raðhúsið í þessu
hverfi. Aðkoma er góð og garður gróin og
fallegur. Stutt er í verslun og þjónustu,
sundlaug, skóla og fl. V. 65,0 m. 5065
Búland - endaraðhús Fallegt og vel
hannað endaraðhús á tveimur hæðum með
innbyggðum bílskúr. Húsið skiptist þannig: 1.
hæð: Stofa, borðstofa, húsbóndaherbergi,
eldhús, snyrting, hol og forstofa. Jarðhæð:
Hol, tvö barnaherbergi sem geta verið þrjú,
hjónaherbergi m/baðherbergi, baðherbergi,
svefngangur, sjónvarpshol, þvottahús og stór
geymsla. V. 65,0 m. 5253
Dalaland 10 - með bílskúr Falleg og
vel skipulögð fimm til sex herbergja 120 fm
íbúð á 2. hæð í fallegu húsi á eftirsóttum
stað, ásamt 19,1 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í
hol, gang, eldhús, rúmgóða stofu, fjögur
herbergi, baðherbergi og sérgeymslu. Áhv.
25 millj. hjá LSR. V. 31,8 m. 5161
Rauðhella - gott verð Gott 147,9 fm
enda iðnaðarbil við Rauðhellu í Hafnarfirði.
Inngangur er rýmið er að framanverðu og að
aftan. Stór innkeyrsluhurð er að framan.
Neðri hæð er stór geimur með gluggum og
góðri lofthæð að hluta. Góð aðkoma er að
húsinu og er það laust strax. V. 14,9 m.
5484
Falleg og mikið endurnýjuð 159,1
fm, 3- 4ra herbergja íbúð á tveimur
hæðum með sér inngangi. Fallegt
parket er á allri íbúðinni. Hurðir í
íbúðinni eru svartar og
sprautulakkaðar. Íbúðin er laus
strax. V. 28,9 m. 5481
OPIÐ HÚS MÁNUDAG
FRÁ KL. 17:00 - 18:00
OPIÐ HÚS
OPIÐ HÚS
FRAMNESVEGUR 2 - GLÆSILEG ÍBÚÐ
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Einbýlishús á sjávarlóð á Arnarnesi óskast
Höfum kaupanda að 300 - 400 fm einbýlishúsi á sjávarlóð á Arnarnesi.
Staðgreiðsla í boði fyrir rétta eign. Allar nánari upplýsingar veita Sverrir
Kristinsson í síma 861-8514 eða Kjartan Hallgeirsson í síma 824-9093.
2ja herbergja íbúðir óskast
Fjársterkur kaupandi óskar eftir nokkrum 2ja herbergja íbúðum í
lyftuhúsum á Höfuðborgarsvæðinu. Íbúðirnar verða staðgreiddar ef um
semst. Allar nánari uppl. veitir Magnús Geir Pálsson sölumaður á
Eignamiðlun.
Vantar 3ja herbergja í Grafarvogi
Fyrir ákveðinn kaupanda sem er búinn að selja sína eign vantar okkur
3ja herbergja íbúð með sérinngangi í Húsahverfinu í Grafarvogi. Allar
nánari uppl. veitir Magnús Geir Pálsson í síma 892-3686
Íbúð við Sléttuveg óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 100-130 fm íbúð við Sléttuveg.
Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson. í síma 861-8514.
Einbýlishús í Þingholtunum óskast - staðgreiðsla
Óskum eftir 300-400 fm einbýli í Þingholtunum. Verð mætti vera á bilinu
80-140 milljónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson í síma
861-8514.
Einbýlishús í Vesturborginni óskast - staðgreiðsla
Óskum eftir 250-350 fm einbýli í Vesturborginn. Verð mætti vera á
bilinu 90-140 milljónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson í
síma 861-8514.
Sérhæð óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 140-170 fm sérhæð. Þessir staðir koma
til greina: Vesturbær, hlíðar og nágrenni Miklatúns. Allar nánari
uppllýsingar veita Sverrir Kristinsson og Hilmar Þór Hafsteinsson.
Skrifstofuhúsnæði óskast - æskileg stærð 2200 - 2500 fm
Traust fyrirtæki óskar eftir allt að 2500 fm skrifstofuhúsnæði í Reykjavík
(Reykjavíkursvæðinu) til leigu eða kaups. Góð aðkoma og góð bílastæði
æskileg. Heil húseign kæmi vel til greina. Staðgreiðsla eða bankatrygg-
ing.Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
Höfum til sölu íbúðarrétt að þjónustuíbúðum fyrir aldraða hjá Sunnuhlíðarsamtökunum.
Studío íbúð 50 fm að Kópavogsbraut 1B verð: 13,8 milljónir
2ja herb. íbúð 61 - 66 fm að Kópavogsbraut 1A og 1B verð: 17,7 - 20,5 milljónir.
Notalegar íbúðir og fallegt umhverfi. Góð þjónusta. Stór sameign. 5444
ÍBÚÐIR VIÐ KÓPAVOGSBRAUT Í KÓPAVOGI