Morgunblaðið - 06.03.2010, Side 50
50 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
ALÞJÓÐLEGA stuttmyndahátíðin
Northern Wave í Grundarfirði
hófst í gærkvöldi, en þá voru sýnd-
ar fjórtán stuttmyndir frá ýmsum
löndum. Í kvöld verður keppninni
svo fram haldið, en þá verður annar
hluti keppni um bestu alþjóðlegu
stuttmyndina og einnig sýndar
hreyfi- og gamanmyndir frá ýmsum
löndum, þar á meðal tvær íslenskar
myndir. Valdís Óskarsdóttir klipp-
ari og leikstjóri situr líka fyrir
svörum á laugardeginum og sýnir
brot úr nýjustu mynd sinni Kónga-
vegi.
Lokadagur keppninnar verður
svo á morgun en þá verða sýndar
átta íslenskar stuttmyndir. Dóm-
nefnd hátíðarinnar skipa Ragnar
Bragason, sem er gestadómari,
Kristín Jóhannesdóttir og Hilmar
Örn Hilmarsson, sem hafa bæði
verið í dómnefnd frá upphafi.
Alls verða sýnd 75 tónlistar-
myndbönd og stuttmyndir frá tutt-
ugu löndum en hátíðinni bárust um
150 myndir frá fjörutíu mismun-
andi löndum.
Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin
er haldin, en meðal nýjunga á þess-
ari hátíð er að haldin verður fiski-
súpukeppni í dag með áhorfendur
sem smakkara og dómara, en einn-
ig verður boðið upp á ókeypis tón-
leika fyrir gesti og gangandi.
Stuttmynda-
hátíð í
Grundarfirði
Myndbönd og stutt-
myndir frá 20 löndum
Hátíð Daniel Brühl og Gísli Örn
Garðarsson í Kóngavegi.
STEINUNN Jóhannesdóttir
flytur erindi í kirkjunni um
Hallgrím Pétursson og Hall-
dóru kirkjusmið á Hólum á
vegum Listvinafélags Hall-
grímskirkju næstkomandi
sunnudag kl. 17. Hallgrímur
ólst upp á Hólum í Hjaltadal,
þar sem faðir hans var hringj-
ari, og var 10 ára þegar dóm-
kirkjan á Hólum hrundi í fár-
viðri, en Halldóra
biskupsdóttir tók þá forystu í því að reisa nýja
kirkju. Tónlistarhópurinn Spilmenn Ríkínís flytur
einnig tónlist frá ungdómsárum Hallgríms. Um-
ræður og kaffiveitingar verða að erindinu loknu.
Kirkjusaga
Hallgrímur og Hall-
dóra kirkjusmiður
Steinunn
Jóhannesdóttir
SÖNGHÓPURINN Hljóm-
eyki stendur fyrir tónleikum í
Kristskirkju á sunnudag sem
helgaðir eru tónlist franska
tónskáldsins Maurice Durufl-
és. Flutt verður Requiem, sem
er eitt þekktasta verk Durufl-
és, og fjórar mótettur. Í Re-
quiem aðstoða Marta Guðrún
Halldórsdóttir, sópran, og
Ágúst Ólafsson, baríton, söng-
hópinn og Steingrímur Þór-
hallsson leikur á orgel. Steingrímur flytur einnig
orgelverkið Méditation pour orgue en Duruflé var
organisti og skrifaði mikið fyrir hljóðfærið. Tón-
leikarnir hefjast kl. 20.00.
Tónlist
Kór- og orgeltónlist
eftir Duruflé
Steingrímur
Þórhallsson
FJÓRÐU tónleikarnir í barna-
tónleikaröðinni Töfrahurð
verða í Salnum í Kópavogi á
morgun og hefjast kl. 13.00, en
þá mun DJ Sóri, Sigurþór
Heimisson, kynna klassíska
danstónlist og á dansgólfinu
hljóma Händel, Mozart, Bizet
og Strauss. Áheyrendur fá að
koma upp á svið og hjálpa til
við flutninginn. Sérstakur
dansherra á tónleikunum verð-
ur tenórinn Jóhann Friðgeir Valdimarsson og
dansarar úr Listdansskóla Íslands hjálpa til við
dansana. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna undir
stjórn Olivers Kentish verður hljómsveit hússins.
Tónlist
Klassísk danstón-
list í Töfrahurðinni
Jóhann Friðgeir
Valdimarsson
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
GRÍP ég því hatt
minn og staf,
heimildarmynd
um lífshlaup
Sveins Berg-
sveinssonar, verð-
ur frumsýnd í
Regnboganum á
morgun, sunnu-
dag, en Sveinn,
sem fæddist 1907
og lést 1988, ólst
upp í mikilli fátækt og braust sjálfur
til mennta, lærði í Berlín og bjó þar
á árum seinna stríðs og síðan í Aust-
ur-Berlín frá 1953 og til æviloka.
Hjálmtýr Heiðdal gerði heimild-
armyndina og hann segir gerð
myndarinnar hafa sprottið af því
þegar verið var að fara í gegnum
ýmisleg gögn sem send voru til Ís-
lands frá Austur-Þýskalandi að
Sveini látnum. Eiginkona Hjálmtýs,
Anna Kristín Kristjánsdóttir, sem
er bróðurdóttir Sveins og sögumað-
ur myndarinnar, tók við gögnunum
fyrir hönd dætra Sveins.
„Þegar við Anna Kristín fórum í
gegnum kassa sem sendir voru
hingað kom í ljós að í þeim voru
mjög merkilegir hlutir, þar á meðal
stuttar kvikmyndir, ljósmyndir,
bréf, ljóð og sögur og hljóðsnældur
með um tíu klukkutímum af frá-
sögnum Sveins af ævi sinni og upp-
runa.“
Svein langaði alla tíð að búa á Ís-
landi, enda var hann vinmargur hér
en honum gekk illa að fá vinnu við
sitt hæfi. Hjálmtýr segir að Sveinn
hafi eiginlega lent á milli fylkinga í
þeim hugmyndafræðilegu átökum
sem hér geisuðu á sjötta áratugn-
um; vinstrimenn töldu hann nasista,
þar sem hann hafði lesið fréttir á ís-
lensku í þýska ríkisútvarpið á stríðs-
árunum, og hægrimenn komm-
únista, vegna pólitískrar starfsemi
hans áður en hann hélt utan til
náms.
„Honum tókst ekki einu sinni að
deyja á Íslandi, svo mikið sem hann
langaði til þess. Það kemur fram á
hljóðsnældunum sem hann tók upp
að honum fannst hann hafa hlotið
hlutskipti útlagans, en þó að hann
hafi tjáð sig um það við vini sína bar
hann sig alltaf vel.“
Heimildarmynd um lífshlaup Sveins Bergsveinssonar
Hann hlaut hlut-
skipti útlagans
Ljósmynd/Seylan
Fræðimaður Sveinn Bergsveinsson var vinmargur á Íslandi þrátt fyrir að
hafa búið erlendis lungann úr starfsævinni, enda kom hann hingað árlega.
Í HNOTSKURN
» Sveinn Bergsveinssonfæddist í Aratungu í Stað-
ardal í Steingrímsfirði og lést í
Austur-Berlín.
» Doktorsritgerð hansfjallaði um íslenska setn-
ingahljóðfræði.
» Sveinn lá í berklum í húsa-rústum þegar orrustan um
Berlín stóð sem hæst.HjálmtýrHeiðdal
SAMBAND íslenskra myndlist-
armanna, SÍM, hefur áhyggjur af því
að ekki sé bara of lítið fjallað um
myndlist í fjölmiðlum, heldur fari um-
fjöllunin líka minnkandi. SÍM efnir
því til málþings í samvinnu við Lista-
safn Reykjavíkur, Kynningarmiðstöð
íslenskrar myndlistar og Listfræða-
félag Íslands, í Hugmyndahúsi Há-
skólanna (Saltfélaginu), Grandagarði
2, kl. 15:00-17:00 í dag.
Þátttakendur í málþinginu, sem
flytja stutt framsöguerindi, eru Katr-
ín Jakobsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, og fulltrúar
myndlistarmanna, fræðimanna og
fjölmiðla: Einar Falur Ingólfsson,
Hulda Stefánsdóttir, Jóhanna Jó-
hannsdóttir, Aðalheiður Lilja Guð-
mundsdóttir, Hlynur Helgason og
Jórunn Sigurðardóttir. Fundarstjóri
er Ólöf Gerður Sigfúsdóttir. Að lokn-
um framsöguerindum verða pall-
borðsumræður.
Hlynur Hallsson segir að myndlist-
armönnum finnist halla á umfjöllun
um myndlist í fjölmiðlum og að
ástandið fari síst batnandi; þannig
hafi eitt af því fyrsta sem skorið var
niður hjá Sjónvarpinu verið umfjöllun
um myndlist og sérkennilegt í sjálfu
sér að Rás 1 sé með miklu meiri um-
fjöllun en Sjónvarpið. „Við höfum líka
séð að það hefur orðið heilmikill nið-
urskurður á Mogganum og Frétta-
blaðið hefur alls ekki staðið sig í um-
fjölluninni heldur. Við leggjum þó
áherslu á að við erum ekki að leita að
sökudólgum eða refsa neinum, heldur
vildum við kanna ástæðuna fyrir
þessu og hvaða leiðir væri hægt að
fara til að bæta og auka umfjöllunina,
enda er áhuginn gífurlegur hjá al-
menningi.“
Myndlistarmönnum þykir umfjöllun um myndlist of lítil
Gífurlegur myndlistar-
áhugi hjá almenningi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Málþing Hlynur Hallsson segir
skort á umfjöllun um myndlist.
Þetta eru
semsagt bara páfa-
gaukar með límheila... 55
»
Í þessu skyni hefur Rótarýsjóðurinn komið á samvinnu við sex virta háskóla:
Universidad del Salvador, Argentínu
University of Queensland, Ástralíu
Duke University & University of North Carolina, USA
University of Bradford, Englandi
International Christian University, Japan
Styrkirnir, sem eiga að standa undir tveggja ára námskostnaði, eru alþjóðlegir
samkeppnisstyrkir. Rótarýhreyfingin á Íslandi má senda eina umsókn. Val íslenska
umsækjandans fer fram eftir ítarleg viðtöl og könnun á námsferli og störfum.
Makar, afkomendur og makar afkomenda lifandi Rótarýfélaga geta ekki sótt um
styrkinn. Átta Íslendingar hafa fengið friðarstyrki frá því þeir voru fyrst veittir árið
2002.
Nánari upplýsingar um námið, háskólana og umsóknarskilmála er að finna á
heimasíðu Rotary International: rotary.org/ foundation/educational (Rotary Centers
for International Studies). Einnig má nálgast upplýsingar á skrifstofu
Rótarýumdæmisins (rotary@rotary.is). Sími 568-2233 (eða í síma 525-4818).
Þeir sem hafa hug á að sækja um styrk eru beðnir um að senda ítarlegt
æviágrip og lýsingu á markmiði með framhaldsnámi fyrir 9. apríl til Skrifstofu
Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, merkt
„Friðarstyrkur“.
ALÞJÓÐLEGIR FRIÐARSTYRKIR
RÓTARÝHREYFINGARINNAR 2011-2013
Rótarýsjóðurinn, ROTARY FOUNDATION, sem rekinn er af
Alþjóða Rótarýhreyfingunni, mun veita allt að 60 styrki til tveggja ára meistaranáms
skólaárin 2011-2013. Styrkirnir verða veittir til náms og rannsókna sem tengjast
alþjóðasamstarfi og eflingu friðar í heiminum og eru ætlaðir fólki sem þegar hefur
reynslu af alþjóðastarfi auk þess að hafa lokið fyrstu háskólagráðu.