Morgunblaðið - 06.03.2010, Page 52
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
VERA Þórðardóttir er fatahönnunarnemi á
þriðja ári við Instituto Marangoni í London.
Hún lenti nýlega í fjórða sæti í keppni fyrir
unga fatahönnunarnema sem haldin er árlega á
vegum F.A.D., Fashion Awareness Direct, í
Bretlandi.
„F.A.D. er góðgerðarfélag sem styður við
unga hönnuði. Þeir fara í alla hönnunarskóla á
Englandi og kynna F.A.D.-samkeppnina. Hver
skóli fær að velja þrjá nemendur á lokaári og
þrjá á mastersstigi til þess að taka þátt í keppn-
inni. Þrjátíu og fjórir skólar tóku þátt og ég var
ein af þeim sem minn skóli valdi til að senda
inn. F.A.D. valdi síðan fjórtán nemendur úr
hundrað manna hópi til að sýna á Vauxhall Fas-
hion Scout sem er aðalviðburðurinn fyrir unga
hönnuði á London Fashion Week,“ segir Vera
spurð út í aðdraganda keppninnar.
„Það var alveg frábært tækifæri að vera valin
til þátttöku og enn betra að ná svona langt.
Vogue talar um þetta sem einn af bestu stökk-
pöllunum fyrir breska fatahönnuði,“ segir Vera.
Í verðlaun fyrir fjórða sætið fékk Vera starfs-
nám hjá William Tempest sem hún hyggst hefja
í lok júní. Tempest er einn af undrabörnunum í
tískuheiminum, fæddur 1985 og hefur þegar
vakið mikla athygli fyrir falleg kvenföt. Stjörn-
ur eins og Victoria Beckham, Emma Watson og
Lilly Allen hafa allar sést í hönnun hans.
„Ég fékk eiginlega sérstök verðlaun sem
dómnefndin ákvað að bæta við. Henni fannst
þau þurfa að vekja athygli á textílnum sem ég
gerði. Ég bjó til textíl úr Swarovski-kristöllum,
sílikoni og vírum og þau langaði að verðlauna
mig fyrir það,“ segir Vera.
Minningar um snjó
Í F.A.D.-keppninni þurftu keppendur að sýna
tvær flíkur, unnar út frá þemanu minningar og
hvað minningar skilja eftir sig.
„Ég tók fyrir snjóinn heima á Íslandi, það
stóð mér mjög nærri. Önnur minningin átti að
vera persónuleg og hin sem hópur hafði upp-
lifað í sameiningu. Stutti kjóllinn minn var mín
upplifun af snjó og síði kjóllinn var unninn út
frá minningunni um hús fjölskyldu minnar á
Núpi í Dýrafirði. Við misstum það í snjóflóði
þegar ég var tíu ára, 1995. Ég notaði minn-
inguna um húsið áður en snjóflóðið féll og hlut-
ina sem stóðu eftir. Dómnefndin var mjög
snortin af minningu minni, ég held að þetta hafi
verið svolítið framandi fyrir hana, að hugsa um
snjóflóð sem gæti tekið heilt hús,“ segir Vera.
Hún segir mikla áherslu lagða á það í skólanum
að gera textíl og koma með eitthvað nýtt.
„Textílinn, sem ég þróaði úr silíkoni, vír og
kristöllum, vann ég frá grunni og hann lítur eig-
inlega út eins og klaki. Ég bræddi líka göt í
hvítt filt til þess að fá snjóáferð á það. Síðan
vann ég með leður, sem ég brenndi í mynstur,
og silki og siffon. Það var mikið af textílum í
kjólunum og vakti það áhuga og eftirtekt hjá
dómnefndinni. Formaður Vauxhall Fashion Sco-
ut talaði lengi við mig eftir sýninguna um síli-
konið og hvernig ég yrði að halda áfram að þróa
það.“
Eigið merki er draumurinn
Vera útskrifast eftir þriggja ára nám í vor og
er nú að vinna að útskriftarverkefninu. „Ég er
að gera stóra línu, ég þarf að sýna þrjú heildar-
útlit en vinna teikningar fyrir þrjátíu og þrjú.
Lokaverkefnið er byggt á svipaðri hugmynd og
það sem ég gerði fyrir F.A.D., en meira hvernig
frost hefur áhrif á frumefnin og vinn ég stóran
hluta úr sílikoni,“ segir Vera sem sækir aug-
ljóslega innblástur til Íslands. „Gera það ekki
allir íslenskir hönnuðir?“ segir hún og hlær.
„Það er gaman að minnast á það að ég nota
fiskileður frá Atlants-leðri í lokaverkefni mitt.
Það hefur vakið nokkra athygli enda hefur fiski-
leður ekki uppgötvast almennilega í London.
Það þekkja það ekki allir hér en fólk er að
heyra af því núna. Kennararnir mínir eru mjög
spenntir fyrir leðrinu og hversu umhverfisvænt
það er,“ segir Vera. Hún stefnir á að vera í
London að minnsta kosti ár eftir útskrift.
„Ég ætla að halda áfram að byggja upp sam-
bönd og skapa tækifæri, það er vel stutt við
bakið á ungum hönnuðum hér. Ég ætlaði fyrst
að fara í fatahönnunarnám til Ítalíu og fór
þangað í þrjá mánuði á Leonardó-styrk eftir
Vera Þórðardóttir var valin til að sýna á aðalviðburð-
inum fyrir unga fatahönnuði á tískuvikunni í London
Vann með Swarovski-kristalla og sílikon
Tony Wellington Photography
Textíll Kjólarnir sem Vera sýndi á F.A.D. samkeppninni og færðu henni fjórða sætið.
52 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
DUPLEX-tónleikaserían verður
haldin í kvöld á Sódómu og Batt-
eríinu. Fram koma Langi Seli og
Skuggarnir, Ólöf Arnalds, For-
gotten Lores, Original Melody,
Weapons, Darke & Taylor og Tam-
arin/(Gunslinger).
DUPLEX á Sódómu og
Batteríinu í fimmta sinn
Fólk
Með öngulinn í rassinum er ný
þáttaröð á SkjáEinum. Þar munu
þeir tvíburabræður Gunnar og Ás-
mundur Helgasynir reyna með sér
í fluguveiði og ýmsu fleiru og atast
hvor í öðrum eins og bræðrum er
einum lagið. Ef öðrum gengur vel
verður hinn fúll og svo öfugt.
Í þáttinn koma líka góðir gestir
og spjalla um líf sitt í veiðinni.
Þannig koma Þorsteinn Joð, Hilm-
ar Hansson, Birgitta Haukdal og
fleiri í heimsókn til bræðranna.
Þátturinn er ætlaður fyrir alla fjöl-
skylduna og hægt verður að fylgj-
ast með ævintýrum bræðranna á
vefsíðunni ongullinn.123.is.
Með öngulinn í rass-
inum á SkjáEinum
Umsóknarfrestur um leik-
aranám við Listaháskóla Íslands
rann út 1. mars. Alls bárust 165 um-
sóknir í leikaranámið, er það 23%
aukning frá fyrra ári og metaðsókn
frá stofnun deildarinnar. Nú fara
fram inntökupróf og að þeim lokn-
um er um átta nemendum boðin
skólavist, leikurum framtíðarinnar.
En sjö leikarar útskrifast úr nám-
inu í vor.
Metaðsókn í
leikaranám LHÍ
Þjóðmenningarhúsið – The Culture House
National Centre for Cultural Heritage
Hverfisgötu 15 · 101 Reykjavík
Sími 545 1400 · www.thjodmenning.is
Sýningar · leiðsögn · verslun
Opið daglega kl. 11.00 – 17.00
Aðrar sýningar: Íslendingar, Póstkortaár,
Flora Islandica, Handritin.
Leiðsögn án endurgjalds í boði fyrir skólahópa.
Veitingar á virkum dögum.
SÝNINGAR Á
ÖLLUM HÆÐUM
Z
IK
Z
A
K
–
D
ag
ur
K
ár
i:
Th
e
G
oo
d
H
ea
rt
ÍSLAND :: KVIKMYNDIR
BERLÍN – KAUPMANNAHÖFN – REYKJAVÍK
THE GOOD HEART
Kvikmyndasögusýningin ÍSLAND :: KVIKMYNDIR hefur verið framlengd
til hausts. Nýjustu myndbrotin á sýningunni eru úr The Good Heart,
Sólskinsdreng, Brúðgumanum og Sveitabrúðkaupi. Hægt er að
horfa á yfir 100 kvikmyndir að eigin vali í fullri lengd, stuttmyndir,
heimildarmyndir, leiknar myndir og myndir byggðar á bókmenntum.
Sýningin er miðuð við aldurshópinn 16 ára og eldri. Frítt er á sýninguna
fyrir framhaldsskólanema, eldri borgara og öryrkja. Ýmsir viðburðir eru
áformaðir á sýningunni til hausts, upplýsingar á thjodmenning.is.
aga Borgarættarinnar > Land og synir > Börn náttúrunnar > Nói Albinói > A Little Tr
1904-2009
Hönnuðurinn
Vera Þórðar-
dóttir á fram-
tíðina fyrir
sér.Á stökkpallinum