Morgunblaðið - 06.03.2010, Page 60
Heitast 10 °C | Kaldast 0°C
Suðvestanátt, víða 13-
20 m/s. Rigning eða
slydda S- og SV-lands, él
norðvestan til. Annars
úrkomulítið. » 10
LAUGARDAGUR 6. MARS 65. DAGUR ÁRSINS 2010
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,-.
)/),/-
)*0,+
*0,01.
*),223
)+,.-*
)).,2.
),3*/)
)/2,0.
)+0,3.
456
4 2" 5 *1)1
)*+,/.
)/*,30
)*3,1-
*0,0+-
*),-)+
)+,/)3
)).,/)
),3000
)/2,/-
)+0,/)
**/,0/30
%
78 )*.,*.
)/*,/
)*3,3*
*0,333
*),-.
)+,/--
))/,*3
),30+2
)/-,23
)+3,3-
FÓLK Í FRÉTTUM»
KVIKMYNDIR»
Brot úr Kóngavegi sýnt á
hátíð í Grundarfirði. »50
Arnar Eggert Thor-
oddsen fjallar um
rómantíska ímynd
og væntingar til
þátttakenda í spurn-
ingakeppnum. »54
SPURNINGAKEPPNIR»
Rómansinn
farinn
KVIKMYNDIR»
Lögregluskólinn snýr
aftur í áttunda sinn. »57
SPURNINGAKEPPNIR»
Lið MR og Kvennó hita
upp fyrir kvöldið. »56
Hjálmtýr Heiðdal
frumsýnir heimild-
armynd um við-
burðaríkt lífshlaup
Sveins Bergsveins-
sonar. »50
Hlutskipti
útlagans
LISTIR»
Menning
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Fyrsta háskastigi lýst yfir
2. Fannst látinn
3. Hvað á Steingrímur við?
4. Íþróttaálfurinn gaf Michelle epli
Íslenska krónan stóð í stað
Lovísa Elísabet
Sigrúnardóttir, eða
Lay Low, semur
tónlist við kvik-
myndina Kónga-
veg, sem verður
frumsýnd í lok
mars. Íslenskir út-
varpshlustendur fá forsmekkinn af
því sem koma skal því laginu „Bye
Bye Troubles“ eftir Lay Low verður
dreift á útvarpsstöðvar í næstu viku.
Leikstjóri myndarinnar er Valdís
Óskarsdóttir og í helstu hlutverkum
eru Gísli Örn Garðarsson, Daniel
Brühl, Nanna Kristín Magnúsdóttir
og Ólafur Darri Ólafsson.
TÓNLIST
Lay Low semur tónlistina
við Kóngaveg
Bandaríkjamað-
urinn David Car-
son er meðal
fremstu og róttæk-
ustu grafísku
hönnuða samtím-
ans. Hann verður
einn af heiðurs-
gestum og aðalfyrirlesurum á Hönn-
unarMars 2010 sem hefst 18. mars.
Hann er hvað þekktastur fyrir ótrú-
lega nýbreytni í hönnun tímarita
sem og óvenjulegar útfærslur á let-
urgerðum og prentfrágangi. Carson-
áhrifin mátti sérstaklega greina í
tímaritinu Ray Gun þegar Carson
starfaði þar sem listrænn hönnuður.
HÖNNUN
Einn af fremstu hönnuðum
heims á HönnunarMars
Póstkortamorð-
in, samvinnuverk-
efni þeirra Lizu
Marklund og
James Patterson,
fara beint á topp-
inn á bóksölulista
Félags bókaútgef-
enda, sem birtur er í Lesbók Morg-
unblaðsins í Sunnudagsmogganum í
dag, en bókin kom út í síðustu viku.
Millennium-þríleikur Stiegs Lars-
sons er áberandi á listanum, en
Larsson á bækurnar í öðru og þriðja
sæti og hann á líka söluhæstu bók
ársins hingað til, Loftkastalann sem
hrundi.
BÓKMENNTIR
Póstkortamorðin beint
á topp bóksölulistans
CINDY Sherman, einn kunnasti ljós-
myndari samtímans, verður meðal
gesta á Listahátíð í Reykjavík í vor og
verða verk hennar sýnd í Listasafni Ís-
lands. Sherman er einkum kunn fyrir
konsept-portrett sín og hefur hlotið
margvíslegar viðurkenningar fyrir verk
sín, meðal annars hin virtu MacArthur-
verðlaun.
Ljósmyndun verður gert hátt undir
höfði á Listahátíð að þessu sinni og
annar kunnur listamaður sem sýnir verk sín er David Byrne, sem margir
þekkja líklega betur sem tónlistarmann og forsprakka bandarísku nýbylgju-
sveitarinnar Talking Heads. Byrne hefur lagt stund á ljósmyndun um nokk-
urt skeið og hafa verk hans vakið athygli víða. Sherman og Byrne koma bæði
til landsins vegna sýninganna. Nánar er rætt um Listahátíð í Reykjavík við
listrænan stjórnanda hennar, Hrefnu Haraldsdóttur, í Sunnudagsmogg-
anum.
Sherman og Byrne
koma á Listahátíð
David Byrne Cindy Sherman
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
BRANDUGLAN er eina uglan sem verpir hér á
landi að staðaldri en ekki er heiglum hent að ná
henni á mynd. Hún er náttfugl og mest á ferli
snemma á morgnana eða seint á kvöldin. Sigurjón
Einarsson áhugaljósmyndari var svo heppinn að
ná góðum myndum af branduglu í Borgarfirð-
inum á fimmtudaginn. Sigurjón býr á Hvanneyri,
er umhverfis- og skipulagsfræðingur að mennt og
starfar hjá Landgræðslu ríkisins.
„Hún sat á vegstiku þegar ég sá hana fyrst og
var óvenjuspök,“ segir Sigurjón. Hann segir bran-
duglu oft sjást undir Hafnarfjallinu enda geti þar
verið mikið af mús, eftirlætisfæðu uglunnar. Séu
ungarnir margir, fimm eða sex, og orðnir stálp-
aðir dugi ugluparinu varla sólarhringurinn til að
veiða ofan í fjölskylduna nema verið sé að allan
sólarhringinn.
Branduglan er einkvænisfugl og Sigurjón segir
oft gaman að fylgjast með uglunni í tilhugalífinu.
Þær eigi til að læsa klónum saman og hrapa í átt
til jarðar en taka auðvitað flugið í tæka tíð. „Þær
fljúga líka hátt upp og láta sig detta, klappa sam-
an vængjunum undir kviðnum. Þetta er mjög
skemmtilegur fugl.“
Uglur eru einstakir fuglar að því leyti að augun
vísa beint fram eins og á fólki, ekki til hliðanna
eins og almennt á fuglum. Lengi hefur uglan verið
kennd við mikla visku í þjóðtrú margra landa
enda augnaráðið greindarlegt.
Vænghafið um einn metri
Brandugla er að mestu staðfugl á Íslandi, hún
er að meðaltali 37-39 sentimetrar að lengd og veg-
ur 300-400 grömm. Hún er því fremur lítill rán-
fugl. Hún er venjulega þögul en stundum gefur
hún frá sér hátt væl. Vænghafið er um einn metri
en vængjatökin sögð silaleg og flugið rykkjótt.
Hún getur þó verið snögg og er fimur flugfugl.
Stofn branduglunnar hér á landi er ekki stór,
líklega aðeins 150-200 varppör, en hér gætu verið
allt að 500 fuglar yfir vetrartímann. Hún lifir
mest á hagamús og jafnvel húsamús sem hún finn-
ur þá í grennd við mannabústaði. Einnig étur hún
smáfugla og unga annarra tegunda. Sumir álíta
að branduglunni sé að fjölga nokkuð hér á landi
vegna aukinnar kornræktar og útbreiðslu lúpínu.
Hvorttveggja tryggi meiri stöðugleika í fæðu-
framboði músa og þá einnig uglunnar.
Ljósmyndir/Sigurjón Einarsson
„Mjög skemmtilegur fugl“
Mikið um branduglu undir Hafnarfjallinu
Stingandi augu Branduglan tyllti sér á trjágrein er Sigurjón náði stærri myndinni en á þeirri minni
horfði uglan beint í linsuna með stingandi augum. Fáum sekúndum síðar var hún flogin á braut.
SALA á áfengi í vínbúðum ÁTVR
dróst umtalsvert saman fyrstu tvo
mánuði ársins miðað við sömu mán-
uði í fyrra. Í febrúar var sala áfengis
8,1% minni í lítrum en árið 2009 og
það sem af er árinu hefur salan dreg-
ist saman um 8,7%.
Vegna tíðra verðhækkana á áfengi
er salan í krónum talið þó meiri nú
en í fyrra. Áfengi seldist fyrir 2.691
milljón fyrstu tvo mánuði ársins en
2.632 milljónir sömu mánuði í fyrra.
Hlutfallslega er samdrátturinn
mestur í sölu á blönduðum drykkjum
en þar hefur salan dregist saman um
37% í samanburði við árið 2009. Svip-
aða sögu er að segja um ókryddað
brennivín og vodka en salan á því
hefur minnkað
um 25% á milli
ára.
Samdráttur í
sölu lagerbjórs
hefur mest áhrif á
söluþróun, en lag-
erbjór er um 79%
af heildarmagni
seldra lítra. Salan
á lagerbjór dróst saman um 7,8% í
febrúar en ef litið er til sölu ársins þá
er samdrátturinn 8,2% miðað við ár-
ið 2009.
Sala á rauðvíni hefur dregist sam-
an um 7,6% fyrstu tvo mánuði ársins
og sala á hvítvíni um 6,6%.
sisi@mbl.is
Samdráttur í sölu
áfengis 8,7% í ár