Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 12
12 SKÓLABLAÐIÐ
Dándimaður
Fyrstu kynni okkar.
Samkvæmi árið 1985.
Hann er klæddur eins og sannur vísindamaður, jakk-
inn í hæfilegu ósamræmi við buxurnar, og bindishnút-
urinn ber því vitni að honum er ekki tamt að ganga
með hálstau. Augun eru rannsakandi, og sá grunur
læðist að mér að þegar hann lítur öðru hverju í áttina til
mín, sjái hann mig fyrir sér sem kolefniskeðju og mo.
Þetta er í raun hálfvandræðalegt samkvæmi og ég
þekki fáa. Ég fæ mér annan sopa. Einhver ávarpar
hann með nafni. Sveinn Valfells, svo að þetta er þá
hann. Ég minnist þess að Birgir Ármannsson sagði
mér að maður með því nafni hefði tekið þátt í ræðu-
keppni bekkjardeilda og svívirt andstæðinga sína á
kvikindislegan hátt. Að mér setur óþægilega aðkenn-
ingu. Ætli hann sé að undirbúa það að svívirða mig?
Nógu flekkað er nú mannorð mitt, þó að þessi maður
fari ekki að gera mig að skotspæni sínum. Hann lítur á
mig með samanbitnar varir.
Haust 1985
Það er kvöld. Við Birgir Ármannsson erum að fylgj-
ast með lokaðri ræðukeppni niðri í Cösu í von um að
finna almennilega menn í ræðulið skólans. Sveinn
tekur til máls. Nú sannfærist ég. Maðurinn er brjálaður.
Ég sé að Birgir kinkar kolli. Héðan í frá verður ekki aftur
snúið. Sveinn Valfells er rétti maðurinn í ræðuliðið.
Fyrsta þolraun þessa ræðuliðs er keppnin við Verzl-
unarskóla íslands. Keppnin er spennandi, en meðan
beðið er eftir dómurum, spá menn fyrir um úrslitin og
reyna að ráða í stöðuna. Skyndilega tekur Sveinn pípu
úr fórum sínum og reykir. Ég, sem veit að reykingar eru
bannaðar í salnum, hleyp að honum og bendi honum
á það. Hann leggur þíþuna hægt frá sér.
Nótt eina fæ ég áríðandi orðsendingu frá yfirmanni
mínum. Sveinn er grunaður um að stunda óleyfilega
tilraunastarfsemi með eiturefni. Mér er falið að gera um
hann skýrslu og fylgjast með atferli hans. Ég hefst
handa með því að verða mér úti um persónulegar upp-
lýsingar.
Sveinn Valfells fæddist árið 1968 (en samt er hann í
5. bekk, greinilega eldri en jafnaldrar sínir, mjög dular-
fullt). Hann fluttist til Ameríku tveggja ára að aldri og
ólst þar upp næstu árin (athuga það betur síðar) fór þá
í æfingadeildina og svo í Ármúlaskóla (nægir honum
ekki einn gagnfræðaskóli? Greinilega lauslátur í skóla-
málum). Fór í M.R. (vinur minn sagði að Sveinn hefði
látið þau orð falla að hann hefði farið í M.R. til að geta
numið í eðlisfræði l og orðið vísindamaður í hvítum
slopp (grunsemdir mínar um eiturefnatilraunir auk-
ast)... Skýrslugerð haldið áfram eftir nánari rannsóknir.
1986
Sigurganga M.O.R.F.Í.S.-ræðuliðsins virðist óstöðv-
andi. Þeir eru komnir í úrslit. Síðustu daga hef ég séð
Svein ræða við ýmsar stúlkur niðri í Cösu. Hver segir
að ástin hafi dáið með hippunum. Ætli þær séu flæktar
í eiturefnahernaðinn?
Öðru hverju hef ég vaktað hús fjölskyldu Sveins, en
verð að hætta því um sinn, því að móðir hans kom að
mér á gægjum við kjallaraglugga Sveins, þegar hann
var að hátta sig eitt kvöldið. Sveinn fær sér stundum
gönguferðir á kvöldin með vini sínum og nágranna,
Magnúsi Þráinssyni. Um hvað skyldu þeir tala?
Kannski eru þeir að flassa á ungar stúlkur?
Ég hef komist að því að Sveinn fer í skotveiðitúra í
frístundum. Auðvitað er það aðeins fyrirsláttur. ffann
villir mér ekki svo auðveldlega sýn. Ég veit að hann er
Sigurlið MR í MORFIS-keppninni ’86. Sveinn Valfells er lengst
til hægri.