Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 32
32 SKÓLABLAÐIÐ
Baltasar Kormákur
Viðtal: Margrét H. Blöndal og
Melkorka Thekla ólafsdóttir
Baltasar varð stúdent frá M.R. vorið 1986 og er nú
nemi á fyrsta ári í Leiklistarskóla íslands.
1 tvers vegna leiklist, Baltasar?
.Ætli það hafi ekki bara verið upp á egóið, athyglina.
Þetta listform hreyfingarinnar hentar ntér."
Ertu fæddur inn í leikhúsheiminn?
„Nei, ég var ekki hið dæmigerða leikarabarn sem
leikur í annarri hverri sýningu Þjóðleikhússins. Pabbi
hefur unnið við leikhús og ég fór mikið á leiksýningar
sem barn, en sem sagt: Ekki fæddur í hlutverkið."
Herranótt
Hver var þá byrjunin?
„Herranótt. Ég hafði ekki verið í ieiklist. áður en ég fór
í M.R., en byrjaði í Herranótt í 4. bekk. Þá var ég á nám-
skeiðinu, eins og alltaf eftir það, og tók þátt í sýning-
unni Oklahoma. Árið eftir var ég formaður Herranætur.
Við sýndum Náðarskotið og þar var ég í stóru hlutverki
sem og í sýningu Herranætur í fyrra á leikritinu Húsið á
hæðinni — hring eftir itring."
Var Herranótt góður undirbúningur undir námið í
Leiklistarskólanum?
„Tvímælalaust. Það er staðreynd að Herranótt er
stærsta og virtasta skólaleikfélag landsins. M.R. var
helsti uppalandi leikara hér áður fyrr og virðist vera
enn. í leiklistarskólanum eru fimm úr M.R., þar af fjórir í
mínum bekk. Starfið með Herranótt gaf mér mjög
mikið, bæði námskeiðin, og sýningarnar. En það er fár-
ánlegt hve lítið tillit er tekið til þeirra, sem starfa með
I lerranótt, af skólans hálfu. Aðvísuerusumirkennarar
umburðarlyndari en aðrirogjafnvel mjög hjálplegir, en
það er algerlega persónulegt framtak. Margir virðast
ekki gera sér grein fyrir hve mikil vinna er samfara því
að starfa með Herranótt. Það er svo margt sem þarf að
gera. í fyrsta lagi taka æfingarnar mikinn tíma og undir
það síðasta er oft æft jafnt daga sem nætur. En það eru
ekki aðeins æfingarnar sem eru tímafrekar. Það þarf
að smíða leikmynd, vinna „props", sauma búninga
o.s.frv. Svo stendur stjórnin í alls konar útréttingum.
Það er mikil vinna sem stendur að baki eins viðamikl-
um sýningum og Herranótt setur upp. Það hefur tekist
sérstaklega vel í ár með Rómeó og Júlíu. Þetta er mjög
góð sýning og stendur undir nafni Herranætur."
MR stífur skóli
En sá undirbúningur sem M.R. veitti þér?
„Inn í Leiklistarskólann er ekki krafist stúdentsprófs,
en vitanlega kemur það sér vel. Ég var í Náttúrufræði-
deild I og það var erfitt að samræma námið leiklistinni.
Nýmáladeild ii hefði kannski verið betri undirbúningur,
en Nát. 1 er mjög þroskandi og góð deild. Ég sé ekki eftir
deildarvali mínu. Reyndar ætlaði égfyrst í M.H., en það
tókst ekki, því að hann var ekki minn hverfisskóli. Þá
voru það M.R. og Kvennó sem komu til greina. M.R.
varð sem sagt fyrir valinu. Ég var ánægður með M.R. í
byrjun, en ieiður í lokin og var utan skóla síðasta árið.
M.R. er stífur skóli sem byggist upp á mötunarkennslu,
ítroðslu, og í raun stjórnar maður ekki mikið námi sínu
sjálfur. Það er slæmt fyrir framhaldsmenntun, þegar
allt í einu þarf að standa algerlega á eigin fótum."
Þegar þú hættir í M.R. misstirðu þá sambandið við
gömlu vinina?