Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 18

Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 18
18 SKÓLABLAÐIÐ V etrar morgunn Melkorka Thekla ólafsdóttir María vaknaði snemma eins og vanalega. Ekki af því hún þyrfti þess, ekki þurfti hún að mæta til vinnu, heldur fannst henni hún ekki þurfa mikinn svefn lengur. Eiginmaður hennar lá hrjótandi í sínu rúmi, hinum megin í herberginu. Rauðnefjaður eftir margar drykkjunætur með vinum sínum. Einu sinni í viku spil- uðu þeir saman póker, gömiu vinirnir. Og drukku. Henni var ekki illa við það, heldur voru pókerkvöldin orðin gamall vani. María klæddi sig í þunna silkisloppinn sem eigin- maður hennar hafði keypt handa henni í viðskiptaferð til Hong Kong. Glæsilegur var hann, en heldur víður. Hún hafði grennst með árunum. E.t.v. stóð það í ein- hverju sambandi við verkinn í maganum sem hafði þjáð hana í nokkurn tíma. María gekk fram, náði í Morgunblaðið, hitaði sér te og lét fara vel um sig við eldhússborðið. Hún var þarna. Greinin. Maginn herptist saman og verkurinn gerði vart við sig. Minning — Þór Þorkell Þórarinsson Fæddur2l.5.1921. Dáinn 3.1. 1987. Þór Þorkell var sá indælasti maður sem ég hef þekkt. Hann var besti elskhugi sem ég hef nokkru sinni kynnst. Hann sameinaði uppfyllingu þarfa minna á fullkominn hátt, blíður og viðkvæmur en jafnframt ástríðufullur. Hann gaf mér allt sem ég þráði — nema ástina. Ástinagat hann ekki gefið, því hana átti kona hans. Án ástarinnar var ástalíf okkar ekki eins full- komið og það hefði annars verið. Við nutum ávallt samvistanna hvort við annað og gerðum okkur margt til gmans en uppistaðan í sambandi okkar var hið frábæra kynlíf sem við lifðum. Það var mjög fjölbreytilegt og skemmtilegt og við krydd- uðum það með ýmsum tilfæringum. Þeim minn- ingum vil ég þó halda fyrir sjálfa mig. En við nutum ekki aðeins líkama hvort annars, heldur nærðust sálir okkar hvor á annarri. Við ræddum upplifanir okkar á ýmsum sviðum, svo og úr daglega lífinu. Þór Þorkell var yndislegur maður að ræða við. Hann var bæði frábær hlust- andi sem og ræðumaður og var hafsjór fróðleiks. Ég vil Ijúka þessum línum með þökkum til hans indælu eiginkonu sem við létum aldrei verða vara við samband okkar en hefði vafalaust tekið því með miklum skilningi. Ég veit. reyndar manna best, hve góð eiginkona hún var og kann ég henni bestu þakkir fyrir að sjá svo vel sem hún gerði um þann sem ég elska. Með samúðarkveðjum til aðstandenda María. María klippti greinina gætiiega út án þess að skemma annað það er var í blaðinu. Hún kveikti á eld- spýtu og bar eldinn óstyrkum höndum að úrklippunni. Greinin brann hratt og stafirnir hurfu — hver af öðrum. Þeir voru ekki orð lengur, heldur stafir sem brunnu inn í sálina. María sópaði öskunni ofan í lítinn trékassa. í þunnum slopp og á inniskóm hljóp hún yfir freðna jörð- ina. Andstutt stóð hún í fjörunni, — lítil, gömul, skjálfandi af kulda. Hún opnaði kassann, — hægt, gætilega. Skyndilega svipti hún lokinu upp á gátt, ekki gömul né þreytt lengur, heldur sterk. Vindurinn hljóp um kass- ann og þeytti minningunum upp í loftið, tætti þær sundur, blés þeim út yfir hafið þar sem lífvana augu hennar sáu þær hverfa í djúpið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.