Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 36
36 SKÓLABLAÐIÐ
Kristín Guðmundsdóttir
Viðtal: Melkorka Thekla ólafsdóttir og
Margrét H. Blöndal
Kristín stundar nám við Tónlistarskólann í Reykja-
vík í þverflautu- og píanóleik, jafnframt því sem hún
kennir á þverflautu. 1 iún varð stúdent frá M.R. vorið ’84
og sneri sér þá alveg að tónlistinni.
Ertu góður nemandi, Kristín?
„Fyrirmyndarnemandi! - Reyndar er ég samvisku-
söm að upplagi og hef nær alltaf stundað tónlistar-
námið vel. Einu sinni var litli bróðir minn einnig að læra
á hijóðfæri. Hann bara sótti tímana og henti svo pok-
anum með nótunum út í horn. „Þú átt eftir að eyðileggja
þig á þessum æfingum", sagði hann við mig.“
Hefurðu lært lengi?
„Ég byrjaði 7 ára á blokkflautu og ætlaði að læra á
trompet. Það gekk ekki svo að ég hvíldi mig í hálft ár.
Þá byrjaði ég á þverflautunni og hef verið síðan.“
Hallærislegt að læra á hljóðfæri
Áhuginn óþrjótandi?
„í gaggó var ég oft að pæla í að hætta. Það var svo
hallærislegt að vera að læra á hljóðfæri. Ég var alltaf að
fara með það í felur, sagðist til dæmis hafa verið í heim-
sókn hjá ömmu þegar ég fór á sinfóníutónleika. En ég
héit áfram.”
Þig hefur ekki langað að gera eitthvað annað eftir
stúdentspróf?
„Ég var að hugsa um að fara út en gerði mér grein
fyrir að það var annaðhvort eða að fara út í eitt ár eða
tónlistin, svo að ég hélt beint áfram í tónlistarskólan-
um.“
Vantaði 10 tíma á sólarhringinn
Hvernig gekk að samræma tónlistina og námið í
M.R.?
„Ég var bæði í tónlistarskólanum og vann með skól-
anum, svo að námið var ekki alltaf í fyrsta sæti á verk-
efnalistanum. Það vantaði svona lo klst. á sólarhring-
inn. Ég var oft á síðustu stundu að redda mér með stíla
o.s.frv. fyrir tíma. En ég hugsa að ég hafi bara eytt meiri
tíma í svona reddingar en ef ég hefði lært heima. Núna
sé ég eftir því að hafa verið að reyna að sleppa létt í
gegn. Ég krufði aldrei neitt til mergjar. Einu sinni las ég
smásögu eftir Pétur Gunnarsson, eins konar dæmi-
sögu sem mér fannst lýsa eigin ferii í M.R. Hún var um
mann sem lenti í hrakningum uppi í óbyggðum. Loks