Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 70

Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 70
70 SKÓLABLAÐIÐ Vísifingur vinstri handar Smásaga eftir Skottu Það byrjaði þegar ég var 18 ára. Mér hafði gengið illa í skólanum og kom heim í vondu skapi. Ég skellti hurðinni á eftir mér, henti mér upp í rúm og sofnaði eftir dágóða stund. Þá byrjaði það. Gömul kona kom fram í draumi og fór að segja mér til syndanna. Ég svaraði fullum hálsi. En það gerði kerlinguna enn verri. Það sem vakti eftirtekt mína á kerlingunni strax í fyrstu var að hana vantaði vísifingur vinstri handar. Ég rankaði við mér á gólfinu. Ég var rugluð í kollinum enda var draumurinn svo skýr — og geðveikur. Svona gekk þetta nótt eftir nótt... Og kerlingin kom og ásótti mig aftur og aftur. Loks var hún farin að skipa mér fyrir verkum og hóta mér öllu illu. Að lokum fór ég að hlýða henni. Þá varð hún skárri. En þegar ég óhlýðnaðist henni, umturnaðist hún alveg og ætlaði að rjúka á mig. Og þá fór næsta nótt í enn verri martröð. Mér gekk allt í haginn, þegar ég hlýddi, svo að ég valdi þann kostinn. Það sem fór mest í taugarnar á mér var þegar hún skipti sér af stráskunum sem ég var með þessa og þessa stundina. Mér varð ekki svefnrótt ef henni líkaði ekki náunginn sem ég var að pæla í. Reyndar líkaði henni enginn svo hún lét mig aldrei í friði í þeim efnum. Svo vissi hún alltaf eitthvað ljótt um alla sem ég komst alltaf að seinna að var rétt. Hún vissi líka óorðna hluti. Hún rak mig í gegnum skólann og ég útskrifaðist í viðskiptafræði úr H.í. Þegar ég var 28 ára kynntist ég loks manni sem hún fann ekkert að. Hann var um þrítugt, ríkur og ágætlega gefinn, svo ég giftist honum. Mér gekk allt í haginn í viðskiptalífinu og peningarnir streymdu inn en ég var í óhamingjusömu hjónabandi. Ég var orðið andlegt eymdarflag. Mér fannst ég vera í fangelsi sem ekki einu sinni var hugsanafrelsi, og kerlingardraugurinn var fangavörðurinn. Mað- urinn minn var algjör bleyða og hundleiðinlegt karlrembusvín sem ekki gat kallast karlmaður með réttu. Það þótti kerlingunni örugglega best. Sem betur fór komst hún ekki inn í líf mitt nema í svefni. Þegar ég var 45 ára gerðist atburður sem gerbreytti tilverunni. Kerlingin hafði reynt allt sem hún gat til þess að afstýra honum. Ég var úti í hinni frægu París í mikilvægum viðskiptaerindum. Ég var að koma af fundi um kvöld og var á gangi yfir Signu. Ég staðnæmdist á brúnni og hugsaði um mína aumu tilvist sem ég hafði orðið að þola svo árum skipti. Ég horfði ofan í fljótið sem streymdi þunglega hjá. Svart og kalt vatnið kallaði á mig. Áður en ég vissi af var ég stokkin yfir brúarhand- riðið. Mengað vatnið gleypti mig og ég sökk eins og steinn. Bragðið var hryllilega vont, viðbjóðslegt... Mér skaut upp á yfirborðið aftur og sá hraðskreiðan vélbát æða rétt hjá. Ég synti fyrir hann... Sjálfs- tortímingin var alger. Rétt áður en skrúfan fór í mig vissi ég að aðeins vísifingur vinstri handar yrði eftir... 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.