Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 56
56 SKÓLABLAÐIÐ
Frá þýðanda
Texti þessi, „What the Bomb Said", er af síðustu plötu
Rama Buck, Flopping in Style Ariel. Textann valdi ég
ekki til þýðingar vegna þess, að hann væri bestur texta
snillingsins, heldur vegna þess að hann er (a) stuttur og
(b) fremur auðskiljanlegur miðað við marga aðra, og
þ.a.l. (c) nokkuð auðþýðanlegur, aukþess semhanner
(d) ekki eins nátengdur meðfylgjandi tónlist og aðrir
textar.
Þeir, sem áhuga hafa á ljóðsifjum, geta tekið til
samanburðar: T.S. Eliot, The Waste Land, 1. 52, 70—
76, 209—14 og 322—58, ásamt Gerontion eftir sama
höfund. Það tæknilega apparat, sem Rama Buck fær
frá Eliot, er þó einungis hismið utan um kjarna frum-
legrar hugsunar (sem að nokkru er sprottin úr dóms-
dagssýn Nostradamusar og kínverskri stjörnuspeki).
Baldur Urðvarni
Það sem sprengjan sagði
Eineygði heildsalinn, það skapgerðarspil:
grjóti og vatni gott teikn
og viiliblómi.
Líkið spírar ekki framar
í garðinum hjá þér.
Harmur þess við eldsins kveðju
og síðasta faðmlag
hlýtur að ríða því að fullu.
Ferhyrnd andlit stara úr hverjum
ferhyrndum glugga. Svipbrigðalaus,
horfa á tígurinn að leik
með sitt ár.
Svo saklaus.
Svipir af þurru grasi
flytja enduróm ferhyrndra hugsana:
Brjóttu fyrir okkur hneturnar
og sýndu okkur skyrturnar hvítu
í nýju ljósi!
Ferhyrndir gluggar, þeir eru andiit.
Ferhyrnd andlit, þau eru gluggar
inn í þinn garð.
í ár mun líkið ei blómstra.
Eldurinn kemur upp úr
opnum heildsalasekk
til að kveðja.
Ég er uppspretta hláturs
og sætrar gleymsku,
lind mildra lyga
um lík og garða.
Ó, lygar, ó, ölvun
víkið úr vegi
úr vegi.
Rama Buck
Baldur Urðvami þýddi