Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1987, Qupperneq 62

Skólablaðið - 01.03.1987, Qupperneq 62
62 SKÓLABLAÐIÐ kom auga á mig og ég veifaði bréfinu til þeirra. Þau skildu að ekki var heppilegt að trufla mig að svo stöddu, þar sem ég var með bréf auk þess sem ég sat undir trénu. Þau voru farin að þekkja mínar venjur. Ég hélt lestrinum áfram... ...Ég heyrði að þau rifust heiftarlega en hækkuðu ekki röddina því að þetta var greinilega mál sem að- eins fjögur eyru máttu heyra. En tvö aðskotaeyru höfðu án þeirra vitundar teygt úr sér og gleyptu nú hvert orð sem þau sögðu; „Palli, ég get þetta ekki lengur. Helvítis nornin er eilíf. Getum við ekki notað eitthvað sterkara? Ég meina, það sem við notum núna er ekki nógu sterkt, það bítur ekk- ert á hana.“ „Láttu nú ekki svona, Dóra mín,“ sagði hann með töflu-ískursrödd sinni. „Við þurfum ekkert að gera út af við hana. Það er nóg að gera hana svolítið ruglaða svo að hún geti ekki sagt frá.“ „Já, þetta getur þú sagt, fíflið þitt, þú sem þarft ekki að sitja yfir henni, gefa henni lyfið og hlusta á hana rövla daginn út og daginn inn. Oj bara, ekki ætla ég að gera það lengur. Ég ætla aftur í vinnuna. Þú getur fengið þér frí núna,“ sagði hún. Það leið svolítil stund áður en hann svaraði þessu. Nú talaði hann rólega, greinilega til að sefa hana. „Dóra mín, gerðu nú ekkert í hugsunarleysi. Ekki viltu að allt komist upp. Þú veist að ég get ekki tekið mér frí. Það er nóg að þú verðir í fríi í 2—3 vikur í viðbót, þá getum við ráðið einhverja heimska stelpu til að sitja hjá henni. Auk þess verður fólk farið að gleyma þessu og við getum farið að hugsa okkur til hreyfings, flutt út eða eitthvað. Ertu ekki sammála?“ „Nei/'hvæsti hún. „Égerþað ekki. Þúgeturbararáðið einhverja strax á morgun því að ég er búin að tilkynna mig í vinnuna. Væri það ekki grunsamlegt ef ég hrindi og segðist ekki koma?" Það kom fát á manninn sem hún talaði við og kallaði Palla. Mér virtist hann líklegur til þess að rota hana en í stað þess greip hann svo fast í handlegg hennar að hnúar hans hvítnuðu. „Allt í lagi. Ég auglýsi þá í Morgunblaðinu á morgun," sagði hann og dró hana með sér út. Þegar ég vaknaði morguninn eftir flýtti ég mér fram úr og skoðaði Morgunblaðið vandlega. Við aðra yfir- ferð sá ég auglýsinguna; „Ung stúlka óskast til að gæta veikburða sjúklings í gamla bænum. Vaktavinna. Nánari upplýsingar fást á Öldugötu 67, allan daginn." Áður en ég áttaði mig á því var ég búin að klippa hana út. Það var eins og eitthvað æðra og máttugra stjórnaði mér. Seinna um daginn fór ég og sótti um stöðuna. Dökkhærða konan tók á móti mér. Henni brá svolítið í fyrstu en virtist jafna sig fijótt. Ég þóttist vera svolítið heimsk og viti menn, ég fékk vinnuna. Ég var mjög undrandi á því hve fljótt hún ákvað að ég fengi vinnuna. Ég þurfti ekki einu sinni að segja hvað ég hafði gert áður en það skýrðist um leið og ég sá sjúkl- inginn. Þegar ég mætti morguninn eftir, rétt fyrir átta, útskýrði hún fyrir mér hvað ég ætti að gera. Ég sá manninum, sem kallaðist Palli, bregða fyrir. Ég get ekki lýst svipnum á honum. Það var eins og hann hefði séð draug. Þau fóru í vinnuna og ég fékk mér sæti við hlið- ina á sjúkraherberginu. Um kl. ÍO heyrði ég að sjúkl- ingurinn rumskaði og gekk inn til hans. Ég hafði búist við eldri konu en það sem mætti augum mínum var... Ó, guð, það var ung kona sem leit út í öllum smáat- riðum eins og ég... Nú skildi ég hví ég hafði fengið vinnuna svona fjótt, og út af hverju þeim brá svona við að sjá mig. Sjúkl- ingurinn virtist ekki gera sér grein fyrir því hve líkar við vorum. Hún bara muldraði eitthvað sem ég skildi ekki. Ég ákvað að gefa henni ekki lyfið. Ég gaf henni það ekki heldur um kvöldið eins og ég hafði fengið fyrir- mæli um að gera. Ég ályktaði að þau myndu ekki gefa henni það um kvöldið því að 7 tímar voru á milli þess sem ég gaf henni það og þetta virtist vera sterkt lyf. Næstu tvo daga svaf hún að mestu en þriðja daginn kom hún til sjálfrar sín. I tenni brá auðvitað mikið þegar hún sá mig svo að ég flýtti mér að segja henni hvers vegna ég var þarna komin og hvað ég hafði heyrt. Hún þagði smástund eftir að ég lauk máli mínu, en sagði svo: „Já, það gat verið. Þetta er þeim líkt. Alltaf sömu ógeðin. Hvaða mánaðardagur er annars í dag?" „24. apríl," sagði ég. „24. apríl. Guð, ég hef verið hérna í mánuð. Ég hef misst mánuð úr lífi mínu og son minn," sagði hún með grátstafi í kverkunum. Svo sagði hún mér að fyrir nákvæmlega mánuði hefði hún horft á Palla og Dóru drepa son hennar með köldu blóði. Ástæðan var vafa- laust sú að hann átti að erfa eftir frænda sinn, þegar hann yrði 21 árs, allar eigur hans, sem voru heil auðæfi. Ef hann yrði hins vegar ekki svo lánsamur að lifa til 21 árs aldurs átti Páll P. Pálsson að erfa allt (þ.e.a.s. Palli, sá sem talaði með töfluískursröddinni). En launráð Palla og Dóru (Dóra er unnusta Palla) höfðu mistekist. Móðir drengsins, Eva, hafði óvart orðið vitni að því þegar þau hrintu honum niður stigann með þeim af- leiðingum að hann háisbrotnaði og dó. Þau höfðu síðan ákveðið að láta líta svo út sem Eva hefði fundið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.