Morgunblaðið - 29.05.2010, Side 47
Menning 47FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2010
Gunnar Guðbjörnsson og
Jónas Ingimundarson halda
tónleika í Sal Tónlistarskóla
Akraness á mánudag kl.
20.00 og í Þorlákskirkju í
Þorlákshöfn á þriðjudag kl.
20.00.
Gunnar og Jónas hafa unn-
ið saman í á þriðja áratug og
haldið fjölda tónleika hér á
landi og erlendis. Ferðir
þeirra um Ísland eru orðnar
margar og utan landsteinanna má nefna tón-
leika í Wigmore Hall í London og óperuhúsinu
í Wiesabaden í Þýskalandi.
Á dagskránni eru íslensk sönglög, skandinav-
ísk ljóð og lög eftir Richard Strauss.
Tónlist
Gunnar og Jónas á
ferð og flugi
Gunnar
Guðbjörnsson
Í Gerðarsafni stendur nú yf-
irlitssýning á verkum Haf-
steins Austmanns, Kvika, sem
opnuð var á Kópavogsdögum.
Sýningin er haldin vegna 75
ára afmælis listamannsins.
Á morgun kl. 15:00 mun list-
málarinn Jón B.K. Ransu
verða með leiðsögn um sýn-
inguna, skoða verk Hafsteins
gegnum sögu abstraktlistar
sem hann rekur aftur til 1850
þegar spíritistar hófu að nýta óhlutbundið mynd-
mál og ósjálfráðar aðferðir sem síðar urðu við-
teknar í módernismanum. Einnig mun hann fjalla
um hvernig lesa má liti og form í myndum Haf-
steins gegnum tónfræði.
Myndlist
Leiðsögn um Kviku
í Gerðarsafni
Hafsteinn
Austmann
Fullkomleikaárátta – Samtal
um vald, sjálfsmynd og ófull-
komleika er yfirskrift samtals
sem boðað er til í Listasafni
Reykjavíkur – Hafnarhúsi á
morgun kl. 15:00. Samtalið er
byggt á sýningu Unnars Arnar
J. Auðarsonar, Í safni ófull-
komleikans 1939–2010, sem ný-
lega var opnuð í Hafnarhúsinu.
Þar ræða saman þau Íris Ell-
enberger, Sigurjón Baldur
Hafsteinsson og listamaðurinn sjálfur. Stjórnandi
er Oddný Eir Ævarsdóttir. Samtal fjórmenning-
anna fer fram í sýningarsalnum í fréttasetti frá
árdögum Ríkissjónvarpsins. Allir eru velkomnir
og aðgangur er ókeypis.
Myndlist
Fullkomleikaárátta
í Hafnarhúsinu
Unnar Örn
J. Auðarson
Það þurfti að rugga
bátnum, keppnin
var pikkföst og það þurfti
að endurskoða allt 48
»
Tilkynnt var í vikunni að rithöfund-
urinn Einar Már Guðmundsson
hlyti viðurkenningu úr minning-
arsjóði danska rithöfundarins og
róttæklingsins Carls Scharnbergs
(1930-1995). Verðlaunin hlýtur Ein-
ar fyrir ritstörf sín og virka þátt-
töku í samfélagsumræðu. Í umsögn
valnefndarinnar segir meðal ann-
ars:
„Einar Már Guðmundsson er ein-
stakur maður. Í Hvítu bókinni sam-
einar hann skarpa samfélagsgrein-
ingu og ljóðræna yfirsýn á
óvenjulegan hátt, og í yfirstandandi
deilu Íslendinga um leiðir út úr
kreppunni er hann ötull talsmaður
þess að fjármálafurstar og pólitíska
valda- og fjölmiðlaelítan beri
ábyrgð en ekki íslenska þjóðin.“
Verðlaunin, sem nema 10.000
dönskum krónum, verða veitt við
hátíðlega athöfn 9. júní næstkom-
andi.
Hvítbókin hefur þegar verið gef-
in út í Þýskalandi og Noregi auk
Danmerkur.
Morgunblaðið/Eggert
Viðurkenndur Rithöfundurinn Ein-
ar Már Guðmundsson.
Einar Már
hlýtur við-
urkenningu
Verðlaun fyrir ritstörf
og samfélagsumræðu
Ásgerður Júlíusdóttir
asgerdur@mbl.is
Á dagskrá Listahátíðar á Kjarval-
stöðum næstkomandi þriðjudag kl.
20:00 er liður sem nefnist Hamar,
steðji, ístað – samræða um tónlist í
samtímanum þar sem rætt verður
um deigluna í samtímatónlist. Um-
sjón með verkefninu hefur Elísabet
Indra Ragnarsdóttir en hún sá um
að velja gesti í umræðurnar en hver
um sig um ber upp sitt erindi og í
lokin munu opnar umræður eiga sér
stað. „Við munu tala um samtíma-
tónlist, tónleikaformið eins og við
þekkjum það núna og hvaðan það er
komið. Mörkin milli klassískrar tón-
listar og popptónlistar verða einnig
rædd og mun tónskáldið Daníel
Bjarnason stjórna þeirri umræðu en
hann var að gefa út plötu sem var
markaðssett eins og poppmúsík.“
Elísabet segir að það sé afar mik-
ilvægt að skapa umræður sem þess-
ar um tónlist en miklar breytingar
hafa orðið í tónlistarsköpun með
tæknibyltingunni. „Það sem hefur
verið að gerast á undanförnum árum
er að fólk er að búa til tónlist án þess
að hafa þessa áralöngu þjálfun að
baki sem klassískt menntað tónlist-
arfólk hefur. Með tilkomu tölva og
ýmiskonar upptökutækni virðist
nánast hver sem er geta búið til tón-
list. Það er orðið mjög mikið um
sjálfmenntað tónlistarfólk, jafnvel
fólk sem kemur úr myndlist og er að
búa til tónlist út frá myndlist-
arlegum eigindum. Áður fyrr átti
fólk gjarnan hljóðfæri heima við og
settist saman á síðkvöldum undir
söng og leik. En með tæknibylting-
unni hafa þessi viðhorf breyst og
tónlist er orðin mjög svo tölvuvædd.
Tónlist úr tölvum breytir þeim bak-
grunni og þeirri þekkingu sem tón-
listarfólk þarf að hafa til að geta búið
til tónlist. Svo virðist núorðið að allir
geti búið til tónlist og markmiðið er
að skapa umræður á jákvæðum nót-
um um þessar miklu breytingar sem
orðið hafa á undanförnum áratugum
og setja þær í tónlistarsögulegt sam-
hengi.“
Hamar, steðji, ístað á Kjarvalsstöðum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Deigla Elísabet Indra Ragnarsdóttir stýrir umræðum um breytingar á tón-
listarsköpun á undanförnum áratugnum.
Samræður um
samtímatónlist
Rætt um
samtímatónlist
» Þátttakendur í umræðunum
á Kjarvalsstöðum eru Berglind
María Tómasdóttir flautuleik-
ari, Anna S. Þorvaldsdóttir tón-
skáld, Daníel Bjarnason tón-
skáld, Davíð Brynjar Franzson
tónskáld, Halldór Úlfarsson,
hljóðfærahönnuður og mynd-
listarmaður, og Njörður Sig-
urjónsson, doktor í menningar-
stjórnun.
Tríóið Sírajón kemur fram í Selinu
á Stokkalæk á morgun kl. kl.
16:00. Þetta verða fyrstu tónleikar
tríósins, sem stofnað var fyrir
stuttu, en það skipa Anna Áslaug
Ragnarsdóttir píanóleikari, Laufey
Sigurðardóttir fiðluleikari og Ein-
ar Jóhannesson klarínettuleikari.
Einar segir að þó tríóið sé að
stíga sín fyrstu tónleikaskref eigi
það sér nokkurn aðdraganda. „Við
erum öll ættuð frá Mývatni, af
Reykjahlíðarætt, og þar hefur
Laufey ráðið tónlistarríkjum,“ seg-
ir Einar, en Laufey hefur meðal
annars haldið þar úti tónleikaröð
sem ber heitið Músík í Mývatns-
sveit.
„Þær Anna hafa spilað talsvert
saman og ég með Laufeyju. Hún
hafði svo samband við mig fyrir ári
og stakk upp á því að við myndum
stofna tríó saman og ég tók því
fagnandi. Við byrjuðum svo að
velja verk og fengum líka Jóhann
Tómasson til að skrifa fyrir okkur
verk sem við frumflytjum í haust.“
Heiti tríósins vekur eðlilega
nokkra athygli. Einar segir þau
hafa velt nafninu fyrir sér um hríð
og um tíma hafi þau gælt við
Reykjahlíðartríóið, en þá hafi Sig-
urður Stefánsson í Kammermús-
íkklúbbnum stungið upp á að þau
nefndu sig eftir ættföðurnum; séra
Jóni Þorsteinssyni í Reykjahlíð
sem er langalangalangafi þeirra.
„Sírajón vafðist fyrir okkur um
tíma, en við losnuðum ekki við það
úr kollinum – ættfaðirinn stóð yfir
okkur.“ Á efnisskránni eru tvö
tríó, annars vegar klassískt frá
Mozart-tímum eftir Jan Vanhal,
mjög fallegt verk, og svo Saga dát-
ans eftir Stravinskíj, en að vísu án
sögumanns. Önnur verk, ekki tríó-
verk, eru eftir Mozart, Chopin og
Schumann.
Tónleikar í Selinu á Stokkalæk
Tríóið Sírajón stígur
fram í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Reykjahlíðarættmenni Tríóið Sírajón; Einar Jóhannesson, Anna Áslaug
Ragnarsdóttir og Laufey Sigurðardóttir.
Undirbúningur hefur verið hafinn að
því að lýsa upp jökul á Íslandi og
hefur þýski listamaðurinn Gert Hof
verið fenginn til verksins, sem hann
mun vinna í samstarfi við Bergljótu
Arnalds tónskáld.
Hof hefur verið hér á landi und-
anfarna daga að skoða aðstæður.
Ekki hefur verið ákveðið hvaða jök-
ull verður fyrir valinu en hann sagði
í samtali við Morgunblaðið að at-
burðurinn myndi eiga sér stað í
október.
Bergljót og Páll Ásgeir Davíðsson
eiga hugmyndina að verkinu, sem
ber heitið Rödd náttúrunnar eða
Vox naturae, og þau fengu Hof til að
setja ljósasýninguna upp. Bakhjarl
er fyrirtækið Northern Lights
Energy.
„Hér passar allt,“ sagði Hof þegar
hann var spurður um aðstæður á Ís-
landi. Hann sagði að markmiðið væri
að vekja athygli á loftslagsbreyt-
ingum. Það yrði að vara fólk við og
sterkar myndir væru besta leiðin til
þess. Hof hefur víða sett upp áhrifa-
miklar ljósasýningar og vakið
heimsathygli. Hann hefur lýst upp
sigursúluna í Berlín, Rauða torgið í
Moskvu og Akrópólishæð í Aþenu.
Hann kvaðst vera aðdáandi Leynd-
ardóma Snæfellsjökuls eftir Jules
Verne og því hefði það kveikt í sér að
vinna verkefni á Íslandi og hann
bætti við: „Ég vil framkalla myndir
sem snerta við fólki.“
Upplýst Rödd
náttúrunnar
Þýskur listamaður lýsir upp jökul til að
vekja athygli á loftslagsbreytingum
Ljósasýning Gert Hof og Bergljót
Arnalds með Snæfellsjökul í baksýn.