Morgunblaðið - 29.05.2010, Síða 50
AF LISTUM
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ætli það sé rosalega flókið að verakarlmaður? Eru kröfurnar sem heimurinn
gerir til þeirra allt of miklar?
Þurfa þeir að „standa sig“, enn frekar en
konur?
Er ævi karlmanna lituð af eilífri glímu við
karlmennskuímyndina?
Er tilvistarkreppa viðvarandi ástand hjá
körlum?
Þessar spurningar og ótal margar aðrarflugu um hugann þar sem ég sat í Þjóð-
leikhúsinu síðastliðið fimmtudagskvöld og
varð vitni að því ógnarmikla sjónarspili sem
Bræður er, nýtt íslenskt dansverk.
Skynfærin áttu fullt í fangi með að mót-
taka allt sem fram fór. Leikur ljóss og skugga,
hljóðs, tals og iðandi líkama, allt var þetta svo
svalandi veisla fyrir augu, eyru og heilabú, að
nánast flæddi yfir bakka.
Margoft velti ég því fyrir mér hvernigværi hægt að semja verk þar sem þarf
að halda á svo mörgum þráðum í einu í hendi/
huga sér. Semja hverja hreyfingu fyrir hvern
og einn dansara og þeir svona margir í einu á
sviðinu, stundum eins og iðandi kös. Hugsa um
stöðu hvers og eins, svo ljósið lendi rétt á þeim,
svo skugginn skili sér eins og hann á að gera á
hvítu tjöldin. Og hvaða setning falli hvenær og
úr munni hvers.
Að allt styðji hvað annað.
Þær eru ekkert annað en snillingar kon-urnar sem gátu skapað þessa harmónísku
heild. Þeim Láru Stefánsdóttur, Ástrós Gunn-
arsdóttur og Hrafnhildi Hagalín hefur með
Bræðrum tekist að sjóða saman töfrastund
fyrir áhorf- og heyrendur. Tónlist Röggu Gísla
og búningar Filippíu Elísdóttur fullkomnuðu
sköpunarverkið.
Húrra fyrir öllum þessum fantaflottu kon-
um.
Ég ætla ekki að telja upp allt það sem varfrábært við þessa upplifun, en eitt af því
sem stendur upp úr, er dásamlegur húmorinn í
verkinu. Þegar dansarar bresta til dæmis í De-
benhams-auglýsingu, þá kitlar það einhverja
undarlega taug.
Það er svo gott að geta hlegið hressilega í
verki sem líka inniheldur heilmiklar pælingar.
Þarna var í orði og æði komið inn á deilur,
valdabaráttu, sjálfstæðisbaráttu, ástina, vin-
áttuna, einmanaleikann.
Það að vera (karl)manneskja.
Ég held ég hafi ekki áður séð dansverkþar sem talað mál leikur svo stórt hlut-
verk. Karlmannsrödd hljómaði oft yfir og allt
um kring og var sú rödd nokkuð fjölþjóðleg,
ýmist á ensku, þýsku, frönsku eða íslensku. Og
stundum tóku dansararnir/leikararnir til máls,
en það var einmitt líka óvenjulegt að hafa
nokkra óbreytta leikara í danshlutverkum.
Mannslíkaminn er svo mikið undur.Hvernig hægt er að toga hann og
teygja, beygla og snúa upp á, þar til hann
hættir að vera líkami heldur eitthvert fyr-
irbæri, eins og lifandi skúlptúr. Stundum voru
dansararnir eins og dýr, syndandi slöngur,
hestar, stundum eins og konur, stundum eins
og lítil börn. Stundum eins og hlaðnar byssur,
yfirmáta kynþokkafullir.
Takk fyrir þessa veislu.
Með heiminn á herðum sér
Ráðvilltir Bræðurnir fremur léttklæddir og ringlaðir á sviðið Þjóðleikhússins.
» Þær eru ekkert ann-að en snillingar kon-
urnar sem gátu skapað
þessa harmónísku heild
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2010
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
www.graenaljosid.is
VINSÆLUSTU MYNDIR BÍÓDAGA
- SÝNDAR ÁFRAM Í ÖRFÁ DAGA
Youth in Revolt kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.14 ára
Date Night kl. 6 - 8 - 10 B.i.10 ára
Un Prophéte kl. 6 - 9 B.i.16 ára
The imaginarium of Dr. P kl. 6 - 9 B.i.12 ára
Oceans kl. 3:20* - 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ
Snabba Cash kl. 3* - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
Robin Hood kl. 3* - 6 - 9 B.i.12 ára
The Back-Up Plan kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
Húgó 3 kl. 4* (650 kr.) LEYFÐ
Robin Hood kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
The Spy Next Door kl. 4 (550 kr.) - 6 LEYFÐ
Húgó 3 kl. 4 (550 kr.) - 6 LEYFÐ
Brooklyn‘s Finest kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI,
SMÁRABÍÓ OG BORGARBÍÓ
Stórskemmtileg teiknimynd fyrir alla fjöls-
kylduna með íslensku tali
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM
UNGLINGUR Í UPPREISN
Frábær gamanmynd með Michael Cera úr
Juno og Superbad
Þegar hann kynnist draumastúlkunni
er mikið á sig lagt til að missa sveindóminn
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í BORGARBÍÓ
Hafið er framandi
heimur fyrir flestum en
nú gefst þér einstakt
tækifæri til að ferðast
um undirdjúpin.
HHH
„Með öllum líkindum einhver ferskasta
unglingamynd undanfarinna ára... Cera
sýnir loksins á sér nýja hlið.”
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND Í SMÁRABÍÓI
HHHH
O.H.T. - Rás 2
Frá Neil Marshall
leikstjóra “The Descent”
kemur hörku spennumynd
*Aðeins sunnud.
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m