Morgunblaðið - 26.06.2010, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
10 Daglegt líf
„Ójá Íslendingar
vilja vera brúnir“
Það má ýmislegt á sig leggja til að reyna að líta betur út, meðal annars að troða
sér inn í talandi brúnkuklefa í von um að ná í smá óíslenskan húðlit. Blaðamað-
ur lét á brúnkuklefa reyna og komst að því að það er bara dálítið flott að vera
hunangsgljáður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gjúggíborg Blaðamaður kíkir út úr „geimstöðinni“.
Á þessari heimasíðu vinkvennanna
Áslaugar Ránar Einarsdóttur, eða
Ásu, og Anitu Hafdísar Björnsdóttur
er hægt að fylgjast með frábæru
framtaki þessara ungu kvenna og
flakki þeirra um heiminn, en þær
seldu allar eigur sínar á síðasta ári og
lögðu upp í tveggja ára ferðalag.
Á ferðalaginu sem hófst í desem-
ber hafa þær tekið flugið á svifvængj-
um á hinum ólíkustu stöðum eins og
Nepal, Indlandi, Taílandi og Malasíu.
En ferðalagið hefur annan og meiri
tilgang en þann einn að svífa um á
vængjunum og kynnast ólíkum svæð-
um í heiminum, því þær halda einnig
úti verkefni sem kallast The Flying
Effect, í samstarfi við UNIFEM á Ís-
landi, til að vekja athygli á frels-
ismálum kvenna um víða veröld.
Á ferð sinni gefa þær konum tæki-
færi til að ávarpa heiminn; í orðum,
ljósmyndum, myndböndum, teikn-
ingum eða hverju sem er til að koma
skoðunum sínum um frelsi, hug-
myndum og draumum á framfæri.
Þær vilja sýna gott fordæmi með
því að taka ákveðna áhættu sjálfar til
að láta drauma sína rætast.
Þær eru í stuttu hléi núna en
leggja aftur í hann í nóvember og þá
er stefnan tekin á Suður-Ameríku.
Vefsíðan www.theflyingeffect.wordpress.com
Ævintýr Ása og Aníta í Nepal við upphaf ferðarinnar, Himalayafjöllin í baksýn.
Svífandi um heiminn fyrir konur
Í kvöld er upplagt að skella sér í fjall-
göngu, njóta tónlistar við varðeld á
fjallstoppi og svamla svo um í Bláa
lóninu á eftir.
Lagt verður af stað kl. 20:30 frá
Sundlaug Grindavíkur í hina árlegu
Jónsmessugöngu á fjallið Þorbjörn.
Hljómsveitin Árstíðir mun gleðja
göngugarpa með tónlist sinni við
varðeld á fjallinu og spilar svo áfram
til miðnættis í Bláa lóninu, en þar
endar gangan.
Enginn þátttökukostnaður er í
gönguna og tilboðsverð í Bláa lónið.
Sætaferðir frá BSÍ, Reykjavík, og
frá SBK frá Reykjanesbæ.
Endilega …
… gangið á
fjallið Þorbjörn
Morgunblaðið/Golli
Árstíðir Gunnar Már syngur.
„Aðfaranótt laugardagsins verð ég
að vinna sem plötusnúður á 800 bar
á Selfossi, svo ég mun líklega sofa
fram að hádegi á laugardeginum [í
dag].
Ég ætla síðan að klára að undirbúa
og pakka niður fyrir ferðalag sem ég
er að fara í aðfaranótt miðvikudags-
ins. Fyrst verð ég nokkra daga í
Amsterdam, þaðan fer ég til Belgíu
og svo til London. Ég mun síðan enda
á tónlistarhátíðinni Oxegen á Írlandi.
Undirbúningurinn felst í því að at-
huga hvort ég sé ekki kominn með
allt og forðast Facebook svo ég verði
ekki öfundsjúkur út í alla vini mína
sem eru að fara á Hróarskeldu. Ætli
ég fari ekki líka í Vilbergsbakarí
hér á Selfossi. Þeir eru
alltaf að
monta sig
af ein-
hverjum
belg-
ískum
vöfflum og
þar sem ég
er að fara til
Belgíu ætla ég
að bera vöffl-
urnar hjá þeim
saman við þær í
Belgíu.
Um kvöldið er ég
aftur að vinna á 800
bar en nú á barnum.
Þetta er frekar hefð-
bundinn laugardagur hjá
mér því ég er yfirleitt
að vinna sem plötu-
snúður eða barþjónn á
800 bar um helgar. Ann-
ars starfa ég hjá Selfossbæ í
sumar við slátt.“
Sölvi Þór Hannesson
framhaldsskólanemi og
tónlistaráhugamaður
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Undirbýr ferðalag sem endar á
tónlistarhátíðinni Oxegen
Tónlist Sölvi mun sjá
Matthew Bellamy í
Muse á Oxegen.
Flestar konur hafa slitið sambandi eða verið sagt upp. Tímaritið
Glamour gerði könnun meðal kvenna á því hvað telst eðlileg sam-
bandsslitahegðun.
– 80% kvennanna sögðust hafa reynt að hafa upp á fyrrverandi
á netinu, 19% viðurkenndu að hafa orðið svolítið helteknar af
því.
– 54% viðurkenndu að þær létu sig dreyma um fyrrverandi í
rúminu.
– 64% urðu vinir þess sem þær sögðu upp. 46% hafa beðið fyrr-
verandi um að vera vinur sinn á Facebook.
– 15% kvenna hafa óvart kallað nýjan elskhuga nafni þess
gamla, 2% í hita ástarleiksins.
– 49% sögðu að kynlíf með fyrrverandi væri æsandi en samt
mjög slæm hugmynd. Aðeins 6% þótti það í lagi.
– 35% segjast enn geyma símanúmer fyrrverandi í farsímanum
sínum.
– 32% sögðu að þær væru enn ástfangnar af einum úr hópi
sinna fyrrverandi.
Sambönd
80% reyna að hafa upp á fyrrverandi á netinu
Reuters
Ástarknús 64% kvenna eiga fyrrverandi sem vin.
Á Vísindavefnum segir að flest
brúnkukrem innihaldi efnið dihy-
droxyacetone (DHA), þau brúnku-
krem verka þannig að DHA gengur
í efnasamband við ákveðnar am-
ínósýrur sem er að finna í ríkum
mæli í efstu lögum húðarinnar.
Við efnahvarfið myndast brún lit-
arefni sem kölluð hafa verið „mel-
anoidin“. Breytingar á lit húð-
arinnar koma fyrst fram um 1
klukkustund eftir að efnið er borið
á og ná hámarki eftir 8-24 klukku-
stundir. Liturinn dofnar síðan og
hverfur á 5-7 dögum.
Lítið hefur verið gert af rann-
sóknum til að meta öryggi DHA,
enn sem komið er virðist þó ekk-
ert benda til þess að efnið sé
skaðlegt og er það því mikilvægur
valkostur fyrir þá sem vilja hafa
brúnan húðlit.
DHA og amínósýrur
AF VÍSINDAVEFNUM
PRUFUTÍMINN
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Hérna eru herlegheitin,“sagði Erla Björk Stef-ánsdóttir hjá Airbrushog Makeup gallery í
Dalshrauni og leiddi mig bakatil í lít-
ið herbergi. Þar stóð Mystic Tan
brúnkuklefinn dálítið dularfullur.
Ég hafði aldrei séð slíkt fyrirbæri
áður og varð hálf feimin, átti ég að
þora í þetta?
„Þetta tekur bara tvær mínútur
og liturinn kemur mjög jafnt og fal-
lega út,“ sagði Erla og stappaði í mig
stálinu. Tveir litir voru í boði og
brúnkan á að koma smátt og smátt
fram á líkamanum, næstu tíu til tólf
tímana eftir spreyið, og á að duga í
fimm til sjö daga.
„Þeir sem vilja vera vel brúnir
fara í tvöfaldan tíma. Það er alltaf
brjálað að gera í þessu, sérstaklega
á fimmtudögum og föstudögum áður
en fólk fer á djammið. Þær sem eru
að gifta sig koma mikið og svo var
allt brjálað að gera yfir ferming-
arnar,“ sagði Erla og útskýrði svo
fyrir mér hvernig klefinn virkar.
Voru það engin geimvísindi eins og
ég hélt. Svo rétti hún mér hárnet og
einnota g-strengs nærbuxur og ég
fékk mér smá „tan“.
Kaldur og kraftmikill
Ég veit ekki hvernig er að vera í
geimflaug en datt sú samlíking í hug
þar sem ég stóð inni í brúnkuklef-
anum. Enskumælandi rödd bauð
mig velkomna og sagði mér ná-
kvæmlega hvað ég átti að gera. Í
gólfi klefans eru fjögur fótspor nr. 1,
2, 3 og 4. Fyrst átti að vera með
hægri fót á nr. 1 og þann vinstri á nr.
3, síðan færa sig smátt og smátt
hringinn að skipun raddarinnar í
klefanum. Úðagusurnar komu fjór-
um sinnum; tvisvar að framan, fyrst
á ská á vinstri og svo á ská á hægri,
og svo eins tvisvar á bakinu. Hönd-
unum átti að halda aðeins frá lík-
amanum.
Úðinn byrjaði að neðan og færði
sig upp. Hann var kaldur og kraft-
mikill en mjög fíngerður og það var
ekki eins og taumarnir væru að leka
niður líkamann eða neitt slíkt, þetta
dreifðist vel og var ekki blautt. Ekki
var sérlega gott að anda þessum fína
úða að sér.
Dvölin í klefanum tók enga
stund og eftir spreyið þakkaði klef-
inn fyrir sig og ég beið í smá stund