Morgunblaðið - 26.06.2010, Page 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
Andri Karl
andri@mbl.is
„[V]erkefni okkar, langmikilvæg-
asta verkefni næstu ára, er að móta
nýtt íslenskt samfélag sem byggir á
einstaklingsfrelsi og jafnrétti, að
móta stefnu sem í senn styrkir at-
vinnulífið, reisir íslenskt efnahagslíf
úr öskustónni og kemur í veg fyrir
að þeir atburðir sem hér gerðust í
hruninu geti endurtekið sig. Og al-
veg eins og á árum áður þá verður
þetta mikla verkefni ekki leyst far-
sællega nema Sjálfstæðisflokkurinn
standi þar sterkur að baki,“ sagði
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokks, í setningarræðu
sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokks
í Laugardalshöll í gær.
Um 1.200 landsfundarfulltrúar
hlýddu á ræðu Bjarna, töluvert
færri en heyrðu setningarræðu
Geirs H. Haarde, þá fráfarandi for-
manns, í mars á síðasta ári, en þá
voru 1.900 fulltrúar mættir. Skýrist
fækkunin kannski helst af því að um
aukafund er að ræða og hann hald-
inn um mitt sumar.
Höfum gengist við ábyrgð
Bjarni kom víða við í ræðu
sinni. Ræddi um úrslit síðustu kosn-
inga til Alþingis og sagði það ár sem
liðið er einkum hafa snúist um upp-
gjör við fortíðina og aðdraganda
bankahrunsins. „Það getur enginn
haldið því fram að við höfum ekki
horfst í augu við það sem úrskeiðis
fór,“ sagði Bjarni og bætti við: „Við
höfum viðurkennt að rammi við-
skiptalífsins var ekki nægjanlega
sterkur og við leyfðum ríkisbákninu
að þenjast út. Við höfum fyrir löngu
gengist við ábyrgð á þessu. En
glannaskapur, lögbrot og siðleysi í
viðskiptalífinu var aldrei í boði Sjálf-
stæðisflokksins.“
Þá tók hann fram að Sjálfstæð-
isflokkurinn hefði einn flokka end-
urgreitt ofurstyrki. Samfylkingin
sem tekið hefði á móti tugmilljóna
króna styrkjum hefði ekki endur-
greitt eina krónu. Jafnframt hafi
Sjálfstæðisflokkurinn haft forgöngu
um breyttar reglur um fjármál
stjórnmálaflokka og frambjóðenda.
„En ég veit að enn eru margir
sem eru ósáttir við flokkinn sinn.
Ósáttir við okkar þátt í hruninu og
við það hvernig okkur hefur tekist
til í uppgjörinu. Ég hef fengið minn
skammt af gagnrýni og hlusta eftir
því sem sagt er.“
Varnaðarorðin hafa ræst
Evrópumálin voru Bjarna einn-
ig ofarlega í huga. Hann minnti á
orð sín í ræðustól Alþingis þess efn-
is að glapræði væri að ráðast í þann
leiðangur sem aðildarumsókn að
ESB er, án þess að fyrir lægi víð-
tækur stuðningur þjóðarinnar og af-
gerandi pólitísk forysta fyrir mál-
inu. Hann sagði og ljóst að þau
varnaðarorð hefðu ræst.
„Þeir sem nú kvarta sáran und-
an því að engin sé forystan í Evr-
ópuleiðangrinum verða því að leita
annað en í okkar hús með sínar um-
kvartanir. Umsóknin var aldrei í
boði Sjálfstæðisflokksins. Hún er í
boði Steingríms J. og Vinstri
grænna,“ sagði Bjarni og einnig, að
við núverandi aðstæður væri réttast
að leggja málið til hliðar enda mikil-
vægt að nýta alla krafta til að sigr-
ast á þeim efnahagserfiðleikum sem
við er að glíma. „Þegar því verkefni
er farsællega lokið verða allar for-
sendur fyrir hendi til að meta af-
stöðu okkar til aðildar á ný þar sem
þjóðin hefur verið höfð með í ráð-
um.“
Bjarni tók þó skýrt fram, að
Sjálfstæðisflokkurinn muni beita
sér af alefli í hagsmunagæslu fyrir
Ísland í viðræðuferlinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Setning Bjarni Benediktsson sagði í ræðu sinni að Sjálfstæðisflokkurinn berjist fyrir frelsi, ábyrgð og umhyggju.
Móta þarf nýtt íslenskt samfélag
Umsóknin um
aðild að ESB var
aldrei í boði Sjálf-
stæðisflokksins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á fundi Björn Bjarnason, Jónmundur Guðmarsson og Kjartan Gunnarsson.
Dagskrá landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins heldur áfram í
dag og meðal annars verður
kosið um forystu flokksins.
Frambjóðendakynningar fara
fram kl. 9.15, kosning for-
manns kl. 13.30 og kosning
varaformanns kl. 15.
Klukkan 17 verður fundi slit-
ið með ávarpi formanns flokks-
ins.
Ljóst um
miðjan dag
FORYSTAN KOSIN Í DAG
’Traustið verður ekki unnið meðeinu tilsvari, einni afsögn eða einufrumvarpi. Það er langtímaverkefni semkrefst þolinmæði. Ég hef helgað mig all-an þessu verkefni og ég er búinn undir
langa baráttu.
’ Það getur enginn haldið því framað við höfum ekki horfst í augu viðþað sem úrskeiðis fór.
’ [T]il þess að framtíðarhorfur Ís-lendinga gefi okkur tilefni til bjart-sýni verður að koma böndum á ríkisfjár-málin. Þar hefur núverandi stjórn valiðleið skattahækkana sem sjálf sagan hef-
ur sýnt okkur að hefur alltaf mistekist.
Við skattleggjum okkur ekki út úr krepp-
unni. Endalausar skattahækkanir á ein-
staklinga og fyrirtæki verður að stöðva.
’Að koma lagi á ríkisfjármálin er ekkiauðvelt verk en Sjálfstæðisflokk-urinn er tilbúinn að takast á við það. Viðætlum ekki að velta þessum vanda áframtíðarkynslóðir.
’Við viljum skapa traustan rekstr-argrundvöll fyrir orkufrekan iðnaðog tökum skýra stefnu gegn fyrning-arleiðinni í sjávarútveginum um leið ogvið vinnum að endurbótum á fiskveiði-
stjórnarkerfinu.
’Þeir sem nú kvarta sáran undan þvíað engin sé forystan í Evrópuleið-angrinum verða því að leita annað en íokkar hús með sínar umkvartanir. Um-sóknin var aldrei í boði Sjálfstæð-
isflokksins. Hún er í boði Steingríms J.
og Vinstri grænna.
’Við núverandi aðstæður væri rétt-ast að leggja málið til hliðar, ekkibara vegna framkominna hótana um aðekkert verði af samkomulagi nema viðgöngum að afarkostum Breta, heldur er
líka mikilvægt að við nýtum alla okkar
krafta til að sigrast á þeim efnahagserf-
iðleikum sem við er að glíma.
Orðrétt úr
ræðu Bjarna
Hagsmunum Íslands er best borgið
utan ESB og réttast að leggja til
hliðar áform um að sækja um aðild,
styðja þarf við atvinnustarfsemi á
borð við stóriðju og fyrningarleið í
sjávarútvegi er hafnað. Þetta kemur
fram í drögum að stjórnmálaályktun
sem lögð var fyrir landsfund Sjálf-
stæðisflokksins.
Ályktunin verður afgreidd síðar í
dag en orðalag gæti breyst eitthvað í
meðförum landsfundarfulltrúa. Í
drögunum segir að landsfundur
Sjálfstæðisflokks leggi áherslu á að
horfið verði frá skattheimtustefnu á
atvinnulífið, dregið úr flækjustigi og
skriffinnsku. „Styðjum atvinnustarf-
semi á borð við stóriðju, orkufrekan
iðnað. Fögnum aðkomu erlendra að-
ila að margs konar fjárfestingu í at-
vinnulífinu og viljum að einstakling-
ar hasli sér völl í atvinnustarfsemi
svo sem heilbrigðis- og mennta-
tengdri starfsemi.“
Ennfremur er lögð áhersla á að
horfið verði frá núverandi atvinnu-
stefnu, sem komi í veg fyrir atvinnu-
uppbyggingu, þ.m.t. orkufrekan iðn-
að. Óvissu varðandi landbúnaðinn
verði að eyða og fiskveiðiréttur skil-
greindur til langs tíma.
Í ályktuninni er því einnig fagnað
að nýlegur dómur Hæstaréttar
lækki skuldir og bæti hag fjölda
fólks. En einnig vill landsfundurinn
að „[g]ripið verði til almennra úr-
ræða fyrir heimilin í landinu og efnt
til víðtæks samráðs um það. Sérstak-
lega verði hugað að hagsmunum
þeirra sem tóku verðtryggð lán“.
Rannsókn á embættisfærslum
Þá segir að úrslit sveitarstjórnar-
kosninga kalli á endurmat á stjórn-
málastarfinu. Taka þurfi upp ný
vinnubrögð og auka samstarf stjórn-
málaafla um veigamikil mál. Einnig
að almenningur komi að ákvarðana-
töku og stefnumótun um hin stærri
mál, sbr. Icesave, ESB og undirbún-
ing stjórnarbreytinga.
Þá vill landsfundur Sjálfstæðis-
flokks að rannsókn fari fram á emb-
ættisfærslum og ákvörðunum
stjórnvalda og samskiptum þeirra
við bresk og hollensk stjórnvöld.
Rannsaka þurfi hvort lagareglum
hafi verið fylgt, starfsskyldur brotn-
ar eða upp hafi komið dæmi um mis-
tök eða vanrækslu í starfi.
Leggja ætti áform um
aðild að ESB til hliðar
Horfið verði frá skattheimtustefnu og dregið úr skriffinnsku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjör Afar góð stemning var á meðal
landsfundarfulltrúa í gærkvöldi.
Ekkert bendir til þess að mótframboð muni berast gegn sitjandi formanni á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Fundur var settur í gær en í dag verður
gengið til kosninga um forystu flokksins.
Staða varaformanns Sjálfstæðisflokksins losnaði í kjölfar afsagnar Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Allt bendir til þess að tvær konur muni
sækjast eftir embættinu að þessu sinni. Þær eru Ólöf Nordal þingmaður og
Lára Óskarsdóttir. Sú fyrrnefnda gaf kost á sér fyrir nokkru. Lára er hins
vegar minna þekkt og kveðst ekki hafa blandað sér mikið í pólitík fram að
þessu. gislibaldur@mbl.is
Einungis slegist
um varaformanninn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Setningarathöfn Fjölmennt var við setningu landsfundarins. Útlit er fyrir
að Bjarni Benediktsson gefi einn kost á sér til embættis formanns.