Morgunblaðið - 26.06.2010, Blaðsíða 17
Fréttir 17INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
Costa del Sol
frá kr. 69.900
frá kr. 119.900 með öllu inniföldu
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum í spennandi sumarleyfis-
ferð til eins allra vinsælasta sólaráfangastaðar Íslendinga, Costa del Sol. Í boði
er ferð 6. júlí í 11 nætur. Fjölbreytt gisting í boði á ótrúlegum kjörum.
Costa del Sol býður allt það helsta sem maður getur óskað sér í fríinu.
Gríptu þetta einstaka tækifæri til að njóta lífsins á þessum vinsæla áfangastað í
sumarfríinu.
Ath. mjög takmarkaður
fjöldi íbúða og herbergja
í boði - verð getur
hækkað án fyrirvara.
Verð kr. 69.900
- Bajondillo ***
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í stúdíóíbúð í 11
nætur. Verð m.v. 2 í stúdíó kr. 79.900.
Sértilboð 6. júlí.
Verð kr. 109.900
Aguamarina *** með fullu fæði (+ drykkir með mat)
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með 1
svefnherbergi í 11 nætur með fullu fæði og drykkjum með máltíðum.
Verð m.v. 2 í stúdíóíbúð í 11 nætur kr. 139.900 með fullu fæði og
drykkjum með máltíðum. Sértilboð 6. júlí.
Verð kr. 119.900
- Hotel Griego Mar *** með „öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í fjölskyldu-
herbergi með „öllu inniföldu“ í 11 nætur. Verð á mann m.v. gistingu í
tvíbýli með „öllu inniföldu“ 11 nætur kr. 134.900. Sértilboð 6. júlí.
6. júli - 11 nætur
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
11 nátta ferð - ótrúleg kjör!
„Þessu er náttúrlega bara stefnt gegn sam-
keppni í þessum iðnaði og til þess að tryggja
stöðu kerfisins og mjólkursamlaganna sem lifa á
þröngum hagsmunum í skjóli ríkisins,“ segir
Hróbjartur Jónatansson lögmaður um fyrirhug-
aðar breytingar á búvörulögum þar sem þrengt
er mjög að þeim sem framleiða mjólkurvörur ut-
an styrkjakerfis ríkisins í landbúnaði, m.a. með
heimild til þess að beita afurðastöðvar háum
sektum ef þær taka við mjólk framleiddri utan
kerfisins og selja hana á innanlandsmarkaði. Af-
greiða átti frumvarpið í vor en því hefur nú verið
frestað til haustþingsins. Hróbjartur, sem starf-
aði fyrir mjólkurframleiðandann Mjólku, segir
að þegar það fyrirtæki kom inn á markaðinn og
fór að kaupa mjólk af bændum utan styrkjakerf-
isins hafi það stuðlað að bættri stöðu þeirra.
„Þeir gátu þá fengið annan kaupanda en sam-
lögin og ekki síst þá hækkaði verðið til þeirra.
Þannig myndaðist samkeppni um mjólkina.“
Hugsanlegt stjórnarskrárbrot
Hróbjartur segir ljóst að styrktarkerfið í
landbúnaði takmarki atvinnufrelsi manna og
ennfremur að hann efist um að lögin um það
standist stjórnarskrána. Sérstaklega ef gera
eigi það refsivert að framleiða mjólkurvörur ut-
an kerfisins. „Það sem er grundvallaratriði í
þessu, og menn þurfa að svara ef banna á slíkt,
er að þá þurfa að vera fyrir hendi einhver lög-
mæt sjónarmið sem heimila að tiltekin mann-
réttindi séu takmörkuð og ef þau sjónarmið eru
til staðar þarf löggjafinn að beita minnst íþyngj-
andi úrræðinu til þess að ná því markmiði fram.“
Það sé augljóst að tilgangurinn með þessum
breytingum sé að hindra samkeppni við mjólk-
ursamlögin sem starfa innan kerfisins í sam-
ræmi við ákvæði búvörulaga um að þau séu und-
anþegin samkeppni. „Það er bara ótrúlegt að
þetta skuli viðgangast,“ segir Hróbjartur.
Skjaldborg um styrkjakerfið
Fyrirhuguðum breytingum á búvörulögum beint gegn mjólkurframleiðendum utan styrkjakerfisins
Kerfið takmarkar atvinnufrelsi manna segir lögmaður Efast um að það standist stjórnarskrána
„Það er bara ótrúlegt að
þetta skuli viðgangast.“
Hróbjartur Jónatansson
lögmaður.
Þótt sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra vilji leggja sektir á
afurðastöðvar sem taka við mjólk
sem framleidd er utan kvóta vill
hann um leið auka svigrúm bænda
til að vinna sjálfir afurðir úr mjólk-
inni. Í frumvarpi sem væntanlega
verður afgreitt á haustþingi er
þeim veitt heimild til að vinna úr
allt að 10.000 lítrum mjólkur, án
þess að það teljist til nýtingar á
greiðslumarki býlisins.
Í skýringum með frumvarpinu
kemur fram að á síðustu árum hafi
nokkur fjöldi mjólkurbænda hafið
eigin framleiðslu, einkum á mjólk-
urís og ostum, heima á búum sínum.
Afurðirnar hafi bæði verið seldar á
búinu og í smásölu. Mikilvægt sé að
hlúa að þessaari framleiðslu sem sé
einn af vaxtarbroddum landbún-
aðar um þessar mundir. Breyting-
arnar séu einnig í samræmi við
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar VG
og Samfylkingar. runarp@mbl.is
10.000 lítrar
utan kvóta
Svigrúm til eigin
framleiðslu á býlum
Morgunblaðið/Arnaldur Halldór
Undanþága Ein stólpagóð kýr
getur mjólkað um 10.000 lítra á ári.
Lögregla höfuð-
borgarsvæðisins
stöðvaði kanna-
bisræktun á
þremur stöðum á
fimmtudag. Í öll-
um tilvikum var
um ræktun í fjöl-
býlishúsi að ræða
og játuðu húsráð-
endur á öllum stöðum aðild sína.
Teljast því málin upplýst.
Um var að ræða tvo karlmenn á
fertugsaldri og pilt um tvítugt. Hjá
þeim yngsta fannst á annan tug
plantna á lokastigi ræktunar en allt í
allt voru þetta um fimmtíu plöntur
auk þess sem lítilræði af hassi fannst
í einni íbúðinni.
Einnig var gerð húsleit í bílskúr í
Mosfellsbæ á fimmtudag og fannst
þar bæði amfetamín og maríjúana.
Húsráðandi hefur áður komið við
sögu lögreglunnar.
Lögregla fann
kannabisrækt í
fjölbýlishúsum