Morgunblaðið - 26.06.2010, Qupperneq 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
Þegar við minnumst
Binna kemur orðið
sposkur mjög sterkt
upp í hugann og „hvað – ég ?“-svip-
urinn sem spjaldaður knattspyrnu-
maður setur upp þegar hann þykist
ekkert skilja í dómgæslunni. Hver
kannast ekki líka við hnussið og sem
síðan fylgdi: „er ekki allt í lagi með
þig“ ef honum fannst þú fara með
fleipur, en hann var fljótur að sjá
spaugilegu hliðarnar á málunum,
sérstaklega á andstæðum skoðun-
um. Þetta varð til þess að nánast var
ógerningur að telja honum hughvarf
í dægurkarpi um menn og málefni.
Menn urðu að játa sig sigraða af
sannfæringu hans og stríðni.
Það er einhvern veginn ekki hægt
annað en að brosa að tilhugsuninni
um Binna, enda alltaf einhver sposk-
ur glampi í augunum. Þó að fráfall
hans sé okkur þyngra en tárum taki
er eins og þessi glettni hans og
óbærilegur léttleiki tilverunnar yfir-
taki alla hugsun um hann, jafnvel yf-
ir því hryggilega verki að skrifa um
hann minningargrein.
Við saumaklúbbsvinkonur Lúllý-
ar, jafnöldrur og skólasystur Binna,
erum búnar að þekkja hann nánast
frá barnæsku, hann verið í okkar
hópi og aldrei borið þar skugga á,
enda Binni traustur félagi og vinur.
Hann hafði af þessum sökum þá sér-
stöðu meðal eiginmanna sauma-
klúbbshópsins, að hafa þekkt allar
stelpurnar lengur, og að hans sögn,
með púka-stríðnisglampa, betur en
hinir eiginmennirnir. Binni var því
ekki bara maðurinn hennar Lúllýar
vinkonu okkar heldur var hann líka
hann „Binni okkar“ allra stelpnanna
í saumaklúbbnum, skólabróðir okkar
og vinur.
Binna var margt til lista lagt og
ber sumarbústaður þeirra Lúllýar
þess órækt vitni, en bústaðinn smíð-
aði Binni eigin höndum að mestu.
Þar er allt án málamiðlana og enginn
afsláttur gefinn af bestu vinnubrögð-
um og fullkominni fagmennsku niður
í smæstu smáatriði. Það var auðvitað
honum líkt því allt sem hann um-
gekkst naut natni hans og snyrti-
Brynjar Þór Hafdal
✝ Brynjar Þór Haf-dal fæddist í
Keflavík 7. september
1951. Hann lést á
heimili sínu 17. júní
2010.
Brynjar Þór var
jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju 24.
júní 2010.
mennsku og gat því
ávallt sýnt sínar bestu
hliðar.
Hópurinn okkar
hefur víða farið frá
fjallaskálum í fegurð
íslenskra fjalla til
menningarborga
heimsins þar sem mik-
ið var brallað og hleg-
ið, margt markvert
skoðað, en aðallega til
að vera saman og
njóta lífsins. Meðal
þeirra minninga á
Binni stóran sess þar sem andrúms-
loft hvers staðar og tíma litast af
kærkominni nærveru hans.
Á næsta ári verðum við skólafélag-
arnir í saumaklúbbshópnum 60 ára
og vorum byrjuð að huga að ferð
saman af því tilefni eins og við gerð-
um bæði þegar við urðum fertug og
fimmtug. Nú hefur hópurinn á tæpu
ári þurft að sjá á eftir tveimur góðum
mönnum á besta aldri og verða þess-
ar ferðir aldrei eins eftir svona mik-
inn missi. En lífið heldur áfram og
minningin um Binna mun halda
áfram að hlýja okkur hið innra um
ókomna tíð.
Þó okkur sé þungt í huga og sökn-
uður okkar sár verður okkur þó enn
þyngra að hugsa til þess hve mikið
þið hafið misst, elsku Lúllý okkar,
strákarnir ykkar, makar þeirra og
afastelpurnar. Við vonum að ljúfar
og bjartar minningar um þennan
góða dreng og glettna afa verði ykk-
ur nokkur huggun er fram líða
stundir.
Ljúf minning lifir.
Fríða, Sigríður og Guð-
mundur, Dröfn og Árni, Árn-
heiður og Jónas, Guðbjörg
og Árni Þór, Kristín og Hall-
ur, Marta og Jón.
Kæri vinur, þú kvaddir allt of
fljótt og óvænt. Kátur og hamingju-
samur eftir yndislegt kvöld með
Lúllý þinni og nýju vinnufélögunum,
lagðist þú á koddann þinn og sofn-
aðir svefni sem þú vaknaðir ekki af.
Það er ótrúlegt að þú sért farinn. Ég
heyri enn hláturinn þinn og sé
stríðnisglampann í augunum þínum.
Þessi minning mun fylgja mér alltaf.
Minningarnar koma ein af annarri,
við vinkonurnar kynntumst þér þeg-
ar við vorum öll í fyrsta bekk í Gaggó
í Keflavík. Þú labbaðir með okkur á
hverjum degi heim úr skólanum. Þú
vannst hjörtu mæðra okkar og varst
alltaf hann Binni þeirra. Fimmtán
ára vissir þú að Lúllý væri sú rétta
fyrir þig og vannst hjarta hennar og
hönd. Þið voruð fallegt par sem fór
saman í gegnum lífið í blíðu og
stríðu, stolt af sonum ykkar og
barnabörnum. Þú varst ekki bara of-
urmontinn pabbi og afi, þú varst líka
besti vinur þeirra, enda alltaf svo
stutt í barnið í þér og stríðnispúk-
ann.
Ég minnist nýársboðanna okkar,
sem byrjuðu á nýársdag 1985, þá
komuð þið Lúllý í heimsókn til okkar
Axels með strákana ykkar á snjó-
þotu. Þegar þið ætluðuð heim var
komið brjálað veður svo ekki sá á
milli húsa. Við Axel töfruðum fram
veislu úr afgöngum og við sátum við
kertaljós og nutum kvöldsins þar til
veðrið gekk niður. Þá var ákveðið að
gera þetta á hverju ári til skiptis hjá
okkur og ykkur, alltaf voru strák-
arnir ykkar með. Svo fjölgaði í hópn-
um, tengdadóttir bættist við og
barnabarnið hún Lovísa Sif. Aldrei
mátti ég breyta um forrétt þegar
boðið var hjá okkur Axel, sniglar à la
Fríða skyldi það vera og aðalréttur-
inn hjá ykkur varð að vera gæs à la
Binni, sem þú hafðir skotið og þið
Lúllý eldað af tærri snilld. Ég minn-
ist ferðanna með saumaklúbbnum á
hálendi Íslands, til útlanda og heim-
sókna okkar Axels í sumarbústaðinn
ykkar. Líka heimsóknir ykkar Lúllý-
ar til okkar Axels þegar við bjuggum
í Belgíu.
Það var aldrei lognmolla í kring-
um ykkur vinina, mikið hlegið og tal-
að hátt. Fyrir ellefu mánuðum síðan
barst þú kistu Axels míns og besta
vinar þíns til grafar, það voru þung
spor. Nú stöndum við æskuvinkon-
urnar og fjölskyldur við kistuna
þína, dofin og döpur. Annað stórt
skarð er höggvið í vinahópinn okkar.
Ég þakka þér fyrir elsku þína og um-
hyggju. Þín verður sárt saknað,
elsku vinur. Ég bið góðan Guð að
varðveita þig og gefa Lúllý, Einar,
Georg, Möggu og Arnaud og litlu
afastelpunum þínum þeim Lovísu Sif
og Jónu Kristínu styrk í þeirra miklu
sorg. Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín vinkona,
Sigurfríð.
Þegar sorgartíðindi berast er eng-
inn þeim viðbúinn. Hversdagslegar
áhyggjur eru í flestum tilfellum sak-
lausar og lítilfjörlegar samanborið
við skilaboð sem lama mann og skilja
mann orðlausan eftir með hugann
fullan af spurningum. Það var þann-
ig símtal sem vakti mig upp að
morgni 17. júní og mun seint fara
mér úr minni. Ég fékk þau skilaboð
að hann Brynjar Hafdal væri látinn.
Maður á besta aldri, alltaf hress og
kátur og hvers manns hugljúfi.
Þegar ég hugsa til baka um hann
Binna þá get ég ekki annað en bros-
að þótt tár falli á kinn. Hann Binni
tengdist mínu lífi á marga vegu.
Hann var mágur hans pabba og því
voru fjölskylduböndin sterk, hann
var faðir besta vinar míns og frænda
og svo vann hann hjá Símanum í
Keflavík og því þurfti hann að þola
mig hringjandi og kvabbandi í sér í
tíma og ótíma í tengslum við rekst-
urinn og var alltaf jafn hjálpsamur.
Þar sem ég og Georg sonur hans
vorum mjög mikið saman kom ég oft
á Heiðargarðinn til þeirra Brynjars
og Lovísu, stundum í mat og drykk
eða í spjall í stofuna og áttum við þar
ógleymanlegar stundir. Það kom
einnig fyrir að ég ætlaði mér bara að
renna við og sækja hann frænda
minn og lagði því bílnum í innkeyrsl-
una og flautaði. Þá kom það oftar en
ekki fyrir að Binni rauk út á plan til
þess að sækja mig enda með öllu
ómögulegt, að hans mati, að ég kæmi
ekki inn í spjall og færi yfir stjórn-
málaviðhorfið fyrst ég var mættur á
annað borð. Þetta þótti mér mjög
vænt um og rauk auðvitað inn til
þess að fara yfir málin. Já, þannig
var hann Binni, alltaf með eindæm-
um hress og fjörugur maður og það
þótti mér gaman. Hann var einnig
jákvæður og hvetjandi og stappaði í
mann stálinu þegar á þurfti að halda.
Ég hitti hann síðast um jólin og þá
áttum við gott spjall um námið og
framtíðina.
Ég er þakklátur yfir að hafa
kynnst honum Binna og mun varð-
veita þær mörgu góðu minningar
sem við áttum saman.
Í minningu Brynjars Þórs Hafdal:
Þakkir vér berum til vinar,
sá vinur er horfinn oss frá.
Minningar áfram þó lifa
og blómlegum fræjum þær sá.
Nú sólin hún sumarið vermir
og varlega vindurinn blæs,
er haustgolan hvín yfir hæðir
frá hólmunum upp flýgur gæs.
Hún flýgur í minningu þína,
sú minning er okkur svo hlý.
Í bili við kveðjum þig vinur.
Uns hressir við hittumst á ný.
(JFF)
Elsku vinir, við vottum ykkur okk-
ar dýpstu samúð.
Jóhann Friðrik, Erla
og Guðrún Elfa.
Stundum finnur maður ótrúlega
til vanmáttar, sér í lagi þegar eitt-
hvað skeður snöggt. Maður skilur
ekki hvers vegna slíkir hlutir koma
svo óvænt og ófyrirséðir inn í líf okk-
ar. Þannig var það að morgni
sautjánda júní, þegar síminn hringdi
og okkur var tjáð að hann Binni hefði
orðið bráðkvaddur. Hvernig mátti
það vera? Það hafði ríkt gleði og
hamingja hjá þeim hjónum nokkrum
klukkustundum áður, og allt í einu er
sem hendi sé veifað og sá er öllu ræð-
ur stöðvar hjartað hans og skilur
okkur eftir með spurningar, sem við
fáum ekki svarað. Þau voruð bara
unglingar þegar ástin knúði dyra í
lífi þeirra. Mamma og Pabbi sáu ekki
sólina fyrir þeim, hvort sem um var
að ræða í gleði eða sorg, þau sam-
glöddust yfir velgengni þeirra og
drengjanna. Nú eru kaflaskil og
Binni hefur sest við borðið hjá þeim
eins og hann gerði árum saman á
Suðurgötunni og mamma dekrar við
hann í mat og drykk eins og henni
einni var lagið. Þau hjónin byggðu
sér fallegt einbýlishús uppi í Heið-
argarði, og þegar þeim fannst tími til
kominn, skiptu þau um og fóru í íbúð.
Jafnhliða því byggðu þau sér glæsi-
legt sumarhús, þar sem þau hugðust
gleðjast með vinum og fjölskyldu.
Það var gaman að koma til þeirra og
sjá gleðina í augum þeirra yfir unnu
verki, en á hverju hausti komum við
saman systkinin og makar til að
halda upp á lífið og tilveruna.
Brynjar vann næstum allan sinn
starfstíma hjá Símanum en síðustu
mánuðina hjá Keili, þar sem hann
naut sín vel og var mjög ánægður í
starfi. Við Binni áttum af og til gott
spjall yfir kaffibolla síðustu mánuð-
ina og röktum fyrri tíma og framtíð-
ina, sem ekki verður rakið hér. Um
leið og við Anna biðjum góðan Guð
að styrkja syni hans og fjölskyldur
viljum við, elsku Lúllý mín, þakka
ykkur Binna fyrir allar góðu stund-
irnar sem við höfum átt saman. Við
biðjum hann sem öllu ræður að halda
verndarhendi yfir litlu fjölskyldunni
þinni. Guð blessi minningu Brynjars
Þórs Hafdal.
Friðrik Georgsson.
Í daglegu lífi verða margvíslegar
manngerðir á vegi okkar. Sumir
fanga meiri athygli en aðrir. Fyrir
mörgum árum átti sá er þetta ritar
tíð samskipti við þjónustufyrirtæki
nokkurt. Fulltrúi þess gagnvart mín-
um vettvangi vakti athygli fyrir lif-
andi áhuga á verkefni sínu en ekki
síður fyrir þægilega návist –
skemmtilegar athugasemdir um líð-
andi stund en ekki síst hið einkar fal-
lega bros sem ekki gat annað en kall-
að fram hið jákvæða.
Svo skiptu báðir um vettvang en
heilsuðust á förnum vegi og ávallt
birtist brosið milda og góða. Leiðir
okkar lágu svo saman sl. haust þegar
Binni kom til Keilis og bauð fram
krafta sína. Sagðist einfaldlega vera
að leita sér að vinnu og fannst hið
unga fyrirtæki, Keilir, spennandi
vettvangur. Og enn kom brosið
milda. Það reyndist gæfa okkar Keil-
isfólks að fá Binna í liðið. Lifandi
áhugi og trúnaður við skapandi verk-
efni var aðalsmerki hans í starfinu.
Hann naut þess að móta og skapa og
ekki síður að vinna í návist unga
fólksins. Daginn fyrir hið óvænta
andlát hans hafði næsti yfirmaður
Binna orð á því hversu lánsöm við
hefðum verið að fá Binna til okkar –
stutt mörgum sögum af frumkvæði
hans og natni í starfi. Ekki síður
vann hann sér strax væntumþykju
og virðingu allra starfsmanna Keilis
– þar sem ljúf lund og lipurð með
brosinu góða laðaði fram hið já-
kvæða í umhverfinu. Og svo var
hann hrifsaður frá okkur – svo
snöggt og svo óvænt.
Skarð hans verður aldrei fyllt en
glæsileg verk hans munu standa og
minna okkur lengi á frábæran sam-
starfsmann og góðan fagmann.
Við sendum Lovísu, konu Binna,
og fjölskyldu allri okkar dýpstu hlut-
tekningu. Blessuð sé minning Brynj-
ars Hafdal.
F.h. starfsfólks Keilis,
Hjálmar Árnason.
Að morgni 17. júní var ég við störf
mín í lögreglunni þegar samstarfs-
maður minn spyr hvaða útkall hafi
verið í Pósthússtræti 3. Skoðaði ég
útkallið í dagbókinni og sá að þú
varst dáinn. Að maður sem hefur
hugsað um heilsu sína jafn sam-
viskusamlega og þú í yfir 30 ár sért
farinn, verður til þess að maður skil-
ur enn verr en áður hvernig þetta
allt er skipulagt. Já, Binni minn, það
er óhætt að segja að samviskusemi
hafi verið einn þinn helsti kostur. Því
verki eða verkefni sem þú tókst að
þér skilaðir þú bæði vel og samvisku-
samlega. Ávallt átti maður góðan að
þar sem þú varst þegar maður var
stopp í verki heima við og gat þá
hringt í þig og málið var leyst. Því
handalagnari maður var vandfund-
inn. Undanfarna daga hefur maður
verið að hugsa til baka og upp í hug-
ann koma bara jákvæðar hugsanir
um atburði og samskipti og er það
gott. Í gær þegar við Inga fórum
með strákana okkar og tengdadóttur
til Lúllý var margt rifjað upp og
meðal annars sögur um þig og Einar
Orra síðan hann var lítill strákur.
Börn hafa sótt í návist þína og barn-
gæska þín og elska hefur alltaf sést á
þér og hafa mín börn notið þess sem
og önnur.
Kæri bróðir, að bera þig til grafar
á afmælisdaginn minn eru örlög sem
engan gat órað fyrir. En enginn
mannlegur máttur gat komið í veg
fyrir fráfall þitt og því verður maður
að una. Nú er það okkar sem eftir er-
um að veita hvert öðru styrk en á
móti þér tekur mamma og hugsar
um þig.
Einar Helgi og fjölskylda.
Hann Binni vinur minn er farinn.
Mín fyrstu kynni af Binna, sem var
verkstjóri hjá Pósti og síma hf. voru
að hann hringdi í mig í morgunkaffi-
tíma vorið 1976 og vildi fá mig í
vinnu, en við hjónin stofnuðum véla-
fyrirtæki árið 1974. Upp frá þessu
samtali urðu með okkur margar og
góðar stundir.
Mér fannst gott að vinna fyrir
Binna, hann var drífandi og vissi vel
um allt sem varðaði símalagnir á
svæðinu. Okkar leiðir hafa legið
saman alla tíð síðan. Sonur Binna,
Einar Friðrik, var í vinnu hjá okkur
og reyndist okkur vel. Svo dimmdi
yfir þegar Binni missti vinnuna
haustið 2009 eftir 40 ára starf hjá
símanum og þá misstum við sem er-
um í verktakabransanum mikið. Að
missa Binna úr þessari vinnu gerði
það eiginlega að verkum að allt fór
úr skorðum í sambandi við símalagn-
ir og fleira á svæðinu.
Ég hitti Binna nokkrum dögum
fyrir andlátið og var hann alsæll yfir
vinnu sem hann var kominn með hjá
Keili og það var bjart yfir Binna.
En svo kom kallið, alltof fljótt,
maður á besta aldri. Hann var farinn
að njóta lífsins með bústað í Þrast-
arskógi sem þau hjónin voru svo
ánægð með og góða íbúð að Póst-
hússtræti 3, Reykjanesbæ.
Þegar við hjónin fréttum af and-
láti Binna þann 17. júní vorum við í
lausu lofti og algerlega tóm. Þetta
var erfiðasti 17. júní sem við höfum
upplifað.
Elsku Lovísa, Einar Friðrik,
Georg, barnabörn og vinir, megi Guð
styrkja ykkur í sorginni. Við vottum
ykkur samúð.
Sigurjón, Sigrún og fjöl-
skylda – Pósthússtræti 1,
Reykjanesbæ.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför,
SIGRÍÐAR DAVÍÐSDÓTTUR,
Engjaseli 65,
Reykjavík.
Runólfur Runólfsson, Gerður H. Hafsteinsdóttir,
Sigríður Hafdís Runólfsdóttir, Ólafur Tryggvi Sigurðsson,
Davíð Arnar Runólfsson, Jamilla Johnston,
Atli Freyr Runólfsson
og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra er studdu okkur í veikindum
og sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og
afa,
ÞÓRARINS SIGURÐSSONAR,
Heiðvangi 28,
Hafnarfirði.
María Sif Sveinsdóttir,
Gunnar Þór Þórarinsson, Eva Gunnarsdóttir,
Sveinn Bjarki Þórarinsson, Kolbrún Kristínardóttir,
Egill Örn Þórarinsson
og barnabörn.