Fréttablaðið - 15.10.2011, Side 2

Fréttablaðið - 15.10.2011, Side 2
15. október 2011 LAUGARDAGUR2 Valur, er hún ekkert að minnka – plágan? „Nei, og ef þessu fer ekki að linna verð ég orðinn loðdýraeyðir í stað meindýraeyðis.“ Valur Richter er meindýraeyðir á Ísafirði þar sem undanfarið hefur mikið borið á minkum í byggð, jafnvel í heimahúsum. LÖGREGLUMÁL Fréttablaðið og lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu hafa efnt til samstarfs um að koma í veg fyrir birtingar hugsanlegra dulinna vændisauglýsinga. Fréttablaðið hefur undanfarnar vikur gengið ákveðið eftir því að til samstarfsins yrði efnt og var fyrsti fundur af því tilefni hald- inn í gær. Niðurstaða fundarins var að lögreglan sendi auglýs- ingadeild Fréttablaðsins lista yfir atriði sem bentu eindregið til þess að um vændisauglýsingu væri að ræða en grunur leikur á að slíkar auglýsingar hafi verið dulbúnar sem nudd auglýsingar. Auglýsingadeild blaðsins mun í framhaldinu gera nýjar vinnu- reglur sem notaðar verða við mót- töku smáauglýsinga um nuddþjón- ustu en þar til þær eru tilbúnar verður tekið fyrir birtingu allra nudd auglýsinga í smáauglýsing- um blaðsins. „Mér finnst það mjög mikið fagnaðarefni að ráðist hafi verið í svona sam- starf og vænti þess að það leiði til að vændi verði ekki eins aðgengilegt og það hefur verið,“ segir Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfir- maður kynferðisbrotadeildar. Vegna ummæla sinna fyrir rúmum tveimur vikum um að Fréttablaðið kynni að vera milli- gönguaðili um vændi var Björgvin spurður hvort blaðið hefði verið til rannsóknar vegna slíks. „Við höfum velt fyrir okkur hvernig eigi að túlka milligöngu í lögunum en Fréttablaðið hefur aldrei verið til rannsóknar hjá lögreglu vegna milligöngu um vændi.“ Jón Laufdal, auglýsingastjóri Fréttablaðsins, fagnar auknu sam- starfi við lögregluna. „Við höfum unnið með lögreglunni lengi á þann hátt að við höfum upplýst hana um kaupendur þessara aug- lýsinga,“ segir Jón og bætir við að stefna blaðsins sé að birta ekki auglýsingar sem brjóta í bága við lög eða snúa að ólöglegu athæfi. Leiðbeiningum lögreglunnar verði bætt við fyrri verklagsregl- ur og dugi vonandi til að hindra að þeir sem vilji auglýsa ólöglega starfsemi finni smugu til þess. „Við fögnum frekara samstarfi við lögregluna og væntum góðs árangurs af samvinnunni,“ segir Jón Laufdal. - ss Samvinna Fréttablaðsins og lögreglunnar gegn duldum vændisauglýsingum: Vændi verði síður aðgengilegt BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON HEILSA „Slíkt er ekki samkvæmt opinberum ráðleggingum,“ segir Elva Gísladóttir, verkefnis- stjóri næringar hjá landslæknis- embætti, sem mælir á móti vikulegum nammidögum. Að sögn Elvu er af og frá að líkamanum sé hollt að fá vikulegt sjokk skyndibita og sykurs með einum sukk- degi. Slíkt sé bábilja sem líkamsræktarfólk prédiki gjarnan. Þá hvetur hún fólk til að vanda sælgætisval fyrir börn því víða sé pottur brotinn í merkingum á litarefnum sem eru talin tengj- ast ofvirkni barna. - þlg / sjá allt 3 Vikulegt sykurjsokk óhollt: Nammidagar varhugaverðir ELVA GÍSLADÓTTIR FÓLK Höfundur barnabókar um forvarnir gegn einelti ætlar sér að stefna samtökunum Regnboga- börnum fyrir að hafa ekki greitt sér fyrir bókina fyrir átta árum. Málið á rætur sínar að rekja til ársins 2003 þegar höfundur- inn, Harpa Lúth- ersdóttir, gerði samkomulag við þáverandi framkvæmda- stjóra samtak- anna, Freyju Friðbjarnardóttur, um að gefa öllum börnum sem áttu að byrja í skóla haustið 2004 bókina að gjöf. Fjöldi barna það ár var 4.173 og lét Harpa því prenta 5.000 ein- tök. Framtakið var auglýst í bækl- ingi frá samtökunum árið 2003, en ekkert varð síðan af gjöfinni, því bókin var ekki talin nægilega góð til að gefa til grunnskólanna, að mati sérfræðinga. Harpa lagði út um tvær milljónir króna í útgáfu bókarinnar á sínum tíma. Hún hefur verið í regluleg- um samskiptum við forsvarsmenn Regnbogabarna síðan bókin var gefin út, en upplagið hefur verið geymt í húsnæði samtakanna í fjölda ára. „Þetta er mjög sárt. Mér líður eins og ég hafi verið svikin,“ segir Harpa, sem var sjálf lögð í mikið einelti alla sína barnæsku og var það kveikjan að bókinni, sem ber heitið Má ég vera memm?. Samtökin hafa boðið Hörpu hálfa milljón króna og allar bækurnar til baka, en hún vill ekki taka því. „Ég viðurkenni að ég var svo vit- laus að trúa því að eineltissamtök stæðu við orð sín,“ segir Harpa. „En ég er með sannanir sem sýna fram á að samkomulagið var gert áður en ég lét prenta bækurnar.“ Stefán Karl Stefánsson, stofn- andi Regnbogabarna, viðurkennir vissulega að mistök hafi verið gerð á sínum tíma. „Þetta voru mistök og bráðlæti í fólki í upphafi. Við tökum hluta af því á okkur,“ segir Stefán Karl. „Við buðum henni 500 þúsund og bækurnar til baka, en hún vildi ekki taka því. En við viljum leysa úr þessu máli í góðu, það er engin spurning.“ Stefán Karl segir samtökin hafa reynt allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma til móts við Hörpu, en allt komið fyrir ekki. Lögfræðingur Hörpu er nú að undirbúa stefnu á hendur Regn- bogabörnum, og hefur fundað með forsvarsmönnum þeirra. sunna@frettabladid.is Ætlar sér að stefna Regnbogabörnum Höfundi forvarnabókar um einelti finnst hún hafa verið svikin af Regnboga- börnum. Samtökin báðu hana um 4.000 eintök af bókinni árið 2003 en hafa ekki greitt fyrir. Formaður Regnbogabarna segir málið byggt á misskilningi. VILTU VERA MEMM? Harpa Lúthersdóttir segir sér líða eins og samtökin Regnboga- börn hafi svikið sig, eftir að hafa ekki staðið við samkomulag sitt við hana árið 2003. MYND/ÚR SAFNI STEFÁN KARL STEFÁNSSON Ég viðurkenni að ég var svo vitlaus að trúa því að eineltissamtök stæðu við orð sín. HARPA LÚTHERSDÓTTIR ORKUMÁL Orkustofnun, með lið- sinni Veðurstofu Íslands, ÍSOR og Orkuveitu Reykjavíkur, er að leggja lokahönd á minnisblað vegna smáskjálftavirkni á Heng- ilsvæðinu. Skjálftarnir tengjast niðurdælingu á jarðhitavökva frá Hellisheiðarvirkjun. Úttektin er gerð að frumkvæði iðnaðarráðu- neytisins en skjálftavirknin hefur valdið íbúum nærliggjandi byggða nokkrum áhyggjum. Markmið úttektarinnar er að varpa ljósi á eðli skjálftahvið- anna og leitast við að spá fyrir um hversu lengi þær geti varað. Leita á einnig svara við því hvort smá- skjálftarnir dragi úr spennu í jarð- lögum og komi þannig í veg fyrir stærri skjálfta. Þá á að afla upp- lýsinga um samsvarandi virkni erlendis. Samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun og OR má reikna með því að mesta virknin vegna niður- dælingarinnar á svæðinu sé að baki, reikna má með mestri virkni í upphafi. Búist var við jarðskjálft- um þegar jarðhitavökvanum yrði dælt niður í jörðina að nýju. - shá Niðurstaða úttektar á smáskjálftavirkni á Hengilssvæðinu liggur fyrir í næstu viku: Mesta virknin líklega að baki FRÁ HELLISHEIÐI OR er gert skylt sam- kvæmt starfsleyfi að skila afgangsvökva aftur ofan í jörðina og auka þannig sjálfbærni auðlindarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEILSA Nýfædd börn sem fæðast heima koma betur út á Apgar- mælikvarðanum, sem mælir ástand nýfæddra barna, en börn sem fæðast á sjúkrahúsum. Þetta er niðurstaða forrann- sóknar sem Berglind Hálfdáns- dóttir ljósmóðir hefur gert. Hún skoðaði afturvirkt mæðraskrár kvenna sem fætt höfðu heima annars vegar og hins vegar konur sem fætt hafa á sjúkrahúsi. Hún flytur fyrir- lestur um samanburð á heima- fæðingum og sjúkrahúsfæð- ingum á ráðstefnu í Hörpu 21. október. - sg / sjá allt 2 Rannsókn á heimafæðingum: Heimafædd börn hressari FÓLK Forseti Íslands, Ólafur Ragn- ar Grímsson, fór í gærkvöldi í við- tal við bandarísku útvarpsstöð- ina KEXP, sem sendir nú út beint frá Kex Hostel í miðborg Reykja- víkur. Fjöldi fólks fylgdist með for- setanum í viðtalinu, enda er Kex með dagskrá í tilefni af Air- waves-tónlistarhátíðinni. For- setinn ræddi meðal annars um íslenska tungu, eldfjöll og menn- ingarvitund Íslendinga í löngu viðtali. Hann þakkaði útvarps- stöðinni fyrir að mæta á hátíðina og gefa fólki alls staðar í heimin- um kost á því að hlýða á. - þeb Ólafur Ragnar Grímsson í gær: Forseti í viðtal vegna Airwaves Á KEX Í GÆRKVÖLDI Forsetinn mætti í viðtal á útvarpsstöðinni frá Seattle. BRETLAND Varnarmálaráðherra Bretlands, Liam Fox, sagði af sér embætti í gær. Fox lét náinn vin, Adam Werr- itty, fylgja sér í átján utanlands- ferðir. Werritty hafði sagst vera ráðgjafi Fox en svo var ekki. Fjöl- miðlar í Bretlandi greindu frá því að fjársýslumenn og ráðgjafafyr- irtæki tengd Ísrael og Srí Lanka hefðu borgað fyrir ferðir Werr- itty. David Cameron forsætisráð- herra hafði óskað skýringa frá ráðherranum, sem svo sagði af sér í gær. - þeb Varnarmálaráðherra hættir: Sagði af sér vegna vinar VEÐUR Rafmagn fór í gærkvöld af Járnblendiverksmiðjunni og álveri Norðuráls á Grundartanga eftir að eldingu sló niður í háspennu- línu á Mosfellsheiði. Að sögn Páls Pálssonar, verkfræðings hjá Landsneti, voru verksmiðjurnar án rafmagns í um tuttugu mín- útur og urðu ekki fyrir neinum skaða. Þá segir Páll almenna við- skiptavini Landsnets aðeins hafa orðið vara við lítilsháttar flökt á rafmagni vegna útsláttarins, sem varð klukkan 20.11. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni mældust eldingar allt frá Snæfellsnesi og austur fyrir Mýrdalsjökul á tímabilinu frá klukkan fimm síðdegis og fram á kvöld. Ástæðan var mikið skúraveður. Flestar eldingar voru frá Hellisheiði og austur úr og sló meðal annars niður í Hveragerði og á Selfossi. - gar Elding sló út háspennulínu: Rafmagn fór af verksmiðjum Hádegisfundur | Allir velkomnir - frír aðgangur Matvælaframleiðsla morgundagsins - verður nóg af mat fyrir íbúa jarðar? mánudagur 17. október kl. 12:00-13:30 Fyrirlestrarsalur Íslenskrar erfðagreiningar, Vatnsmýri. Fundurinn fer fram á ensku Nánari upplýsingar á www.bondi.is Fyrirlesari: Julian Cribb, höfundur bókarinnar „The Coming Famine: The global food crisis and what we can do to avoid it“ SPURNING DAGSINS
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.