Fréttablaðið - 15.10.2011, Page 32

Fréttablaðið - 15.10.2011, Page 32
15. október 2011 LAUGARDAGUR32 N anna Bryndís Hilmarsdótt- ir og hinir meðlimir hljóm- sveitarinnar Of Monsters of Men hafa verið á útopnu undanfarnar vikur. Fyrsta plata þeirra, My Head Is an Animal, kom í verslanir 20. september síð- astliðinn og hefur verið í stöðugri spilun á flestum útvarpsstöðvum síðan. Útgáfu- tónleikarnir fóru fram 6. október og þurfti að bæta einum við vegna mikillar aðsókn- ar. Þá voru þrír tónleikar á dagskránni á Airwaves-tónlistarhátíðinni sem nú stendur yfir, auk þriggja aukatónleika í tengslum við hana. Í kvöld spila þau í fyrsta sinn í Hörpunni. Ömmurnar syngja með Hljómsveitarmeðlimir Of Monsters and Men koma úr tveimur áttum. Annars vegar af Reykjanesinu og hins vegar úr vinahópi í Garðabænum. Nanna sjálf ólst upp í Garð- inum og gekk í skóla með Brynjari Leifs- syni, gítarleikara hljómsveitarinnar, sem er frá Keflavík. Þau tvö stofnuðu hljóm- sveitina upphaflega ásamt Garðbæingnum Ragnari Þórhallssyni, hinum söngvara hljómsveitarinnar. Síðar bættust fleiri Garðbæingar í hópinn. Það er einkennandi fyrir tónlist Of Monsters hvað hún rennur ljúflega ofan í breiðan hóp hlustenda. Það er líka fjöl- breyttur hópur sem hefur sést á tónleik- um hjá þeim. „Ég hef alveg séð ömmurnar syngja með og yngri krakkana líka,“ segir Nanna og brosir breitt. „Við virðumst ná til hópa sem við héldum aldrei að myndu hlusta á okkur. Það er ótrúlega gaman að því.“ Líður vel á sviðinu Of Monsters and Men vann Músíktilraunir í fyrra og síðan þá hefur líf meðlima hennar verið á fullum snúningi. Áður hafði Nanna komið fram ein undir nafninu Songbird, svo hún er orðin þaulvön að standa á sviði frammi fyrir fjölda manns. Hún kann vel við sviðsljósið. „Mér líður vel á sviðinu og ég verð ekkert mjög stressuð. Finn aðal- lega þetta góða stress. Það er samt ótrú- lega skrýtið að standa á sviði fyrir fram- an helling af fólki sem er að syngja lögin manns. Það var skrýtið á Nasa á miðviku- daginn, þegar við spiluðum Little Talks og allir sungu með. Við hefðum getað sleppt því að syngja sjálf. Þetta er eitt það skrýtn- asta sem ég lendi í og er alveg geggjað!“ Vinsæl á þjófasíðum Platan My Head Is an Animal var ekki búin að vera lengi í sölu hér á landi áður en búið var að leka henni á erlendar niðurhalssíður. Þar hefur hún verið vinsæl og var meðal ann- ars um tíma á topp tíu lista stærstu lokuðu niðurhalssíðu í heiminum, www.what.cd. Þar var Of Monsters and Men rétt á eftir stór- stjörnum á borð við Björk, Florence and the Machines og Outkast. „Það er skrýtið að það sé eitthvert fólk þarna úti í heimi að ná í plöt- una okkar. Að hún skyldi leka sýnir alla vega að það er einhver áhugi þarna úti. Platan er eins og er ekki aðgengileg fyrir utan Ísland, þannig að kannski er þetta eina úrræðið fyrir fólk sem myndi annars kaupa hana. Þannig að maður getur sko ekki verið allt of reiður yfir þessu.“ Á toppnum í Fíladelfíu Það er ekki ólíklegt að Nanna og hljómsveitin muni bregða sér til Fíladelfíu í Bandaríkj- unum á næstunni. Þar hafa þau fyrir furðu- lega tilviljun vakið athygli og trónað á toppi vinsældalista útvarpsstöðva. „Það var maður hérna á Íslandi sem heyrði okkur spila í sánd- tjékki og hreifst af okkur, fór með plötuna okkar til vinar síns sem er útvarpsmaður í Fíladelfíu og sagði honum að tékka á okkur. Sá spilaði okkur í vinsælum útvarpsþætti og síðast þegar við vissum vorum við í fyrsta sæti á spilunarlista þessarar stöðvar, sem er víst nokkuð stór á bandarískan mælikvarða. Við erum farin að fá þónokkuð af „Please come to Philadelphia“ póstum, svo það er aldrei að vita nema við skellum okkur!“ Stríðnispúkar Nanna er greinilega alveg tilbúin til að fara á tónleikatúr með hljómsveitinni, þó að hún verði eina stelpan í þéttsetinni og sveittri hljómsveitarrútu. „Ég er búin að prófa það einu sinni. Við fórum hringinn með Agent Fresco og Lockerbie-strákunum í alltof litlum bíl. Ég var eina stelpan og þó það hafi óneit- anlega verið dálítið spes var það ógeðslega gaman.“ Hún hugsar sig vel um þegar hún fær spurninguna hvort hún sé strákastelpa. „Já, ætli það ekki bara. Samt á ég mikið af bæði stráka- og stelpuvinum. Ég hef aldrei spáð mikið í þetta en núna undanfarið hef ég feng- ið þessa spurningu svolítið oft. Það er auðvitað allt annar fílingur að vera með fimm strákum en stelpum. Þeir eru meiri stríðnispúkar. En það eru allir teknir fyrir og allt gert í góð- látlegu gríni. Ég geri sko líka grín að þeim!“ Myndlist, heimspeki, sálfræði … „Ég er nýbúin að átta mig á því að tónlist- in geti verið eitthvað svona „alvöru“,“ segir Nanna Bryndís þegar hún er spurð út í hvert hugur hennar stefnir í framtíðinni. Fleiri hlutir heilla hana þó og hún er líka í mynd- listarnámi við Myndlistaskóla Reykjavíkur og hefur áhuga á ýmsu bóknámi. „Ég hef alltaf verið mikið að teikna og var á tímabili mikið í því að búa til teiknimyndasögur. Ég er aðeins að komast aftur inn í þær pælingar. Annars er ég líka hrifin af bæði heimspeki og sálfræði. Mér finnst gaman að fylgjast með fólki.“ Miðað við vinsældir hljómsveitarinnar nú bendir ýmislegt til þess að tónlistin eigi eftir að hafa yfirhöndina enn um sinn. „Við erum öll í námi sem við höfum mikinn áhuga á. En á sama tíma erum við alveg ákveðin í að leggja okkur hundrað prósent í tónlistina. Við erum öll sammála um að taka þetta alla leið.“ Ætlum að taka þetta alla leið Flestir þeir sem hafa hlustað á útvarpið í meira en hálftíma á undanförnum mánuðum þekkja rödd Nönnu Bryndísar Hilmars- dóttur. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir settist niður með þessari ungu og hæfileikaríku söngkonu, sem stúderar teiknimynda- sögur í frítíma sínum og líður vel innan um strákana og stríðnispúkana í hljómsveitinni Of Monsters and Men. Á NASA Á MIÐVIKUDAGINN Of Monsters and Men var með þétt tónleikaplan á Airwaves-tónlistarhá- tíðinni. Þau spiluðu á Nasa á miðvikudaginn, á Glaumbar í gærkvöldi og verða í Hörpunni í kvöld. Þá eru ótaldir „off venue“ tónleikarnir sem voru þrír. MYND/MAGNÚS ELVAR FINNUR BARA GÓÐA STRESSIÐ Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söng- kona hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, kann alltaf betur og betur við sig á sviði. Hún veit ekkert skrýtnara en að heyra fólk syngja hástöfum með lögum sem hún hefur samið sjálf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.