Fréttablaðið - 15.10.2011, Síða 57
LAUGARDAGUR 15. október 2011 9
Hárgreiðslustofa - Stóll til leigu
Eigum stól til leigu á hárgreiðslustofunni Barbafín
í Suðurveri. Leitum að metnaðarfullu og sjálf-
stæðu hárgreiðslufólki sem er tilbúið að leggja
sitt af mörkum til að gera góða hárgreiðslustofu
enn betri! Leiga aðeins 65.000 á mánuði.
Upplýsingar veitir Kristbjörn í síma: 847-4107
Reginn ehf. auglýsir eftir
verkefnastjóra
Reginn ehf. auglýsir laust til umsóknar starf verkefnastjóra hjá félaginu. Reginn ehf. er einkahlutafélag í eigu Lands-
bankans. Tilgangur félagsins er að annast umsýslu og rekstur fasteigna og fasteignafélaga. Í því felst að félagið leigir
út, kaupir og selur fasteignir. Reginn vinnur auk þess að uppbyggingu og þróun einstakra fasteignaverkefna.
Félagið á dótturfélög sem sérhæfa sig í ákveðnum tegundum fasteigna, svo sem atvinnuhúsnæði, íbúðarhúsnæði og
þróunarverkefnum. Félagið verður skráð í Kauphöll Íslands á fyrri hluta árs 2012.
Leitað er að áhugasömum og kraftmiklum einstaklingi sem hefur reynslu af verkefnastjórnun. Megin verkefnið verður
umsjón með „Laugavegsreitum“ sem félagið er að kaupa og mun þróa áfram og selja.
Helstu verkefni
» Verkefnastjórnun við uppbyggingar- og
þróunarverkefni.
» Undirbúningur, stjórnun og eftirlit
með verkefnum á sviði
fasteignauppbyggingar og reksturs.
» Áætlanagerð á sviði byggingafram-
kvæmda og fasteignareksturs ásamt
eftirfylgni og frávikagreiningu.
» Stjórnun byggingatæknilegra verkefna,
s.s. umsjón með samningum við
ráðgjafa, verktaka og þá aðila sem
koma að viðkomandi verkefnum.
» Útboð, almenn innkaup og samninga-
gerð á sviði fasteignareksturs.
» Þátttaka í áætlanagerð og
hagkvæmnisútreikningum.
Hæfniskröfur og eiginleikar
» Háskólamenntun á sviði byggingaverk-
fræði, arkitektúrs eða sambærilegt.
» Góð tölvukunnátta.
» Frumkvæði og fagmennska í starfi.
» Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
» Færni í samskiptum og þægilegt
viðmót.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir
Júlía Björgvinsdóttir, Reginn ehf.,
í síma 512 8900
Umsóknir og fylgigögn sendist á
julia@reginnehf.is
merkt „Reginn ehf. verkefnastjóri“.
Umsóknarfrestur er til og með
24. október 2011.
Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál.
»
»
»
»
»
»
»