Fréttablaðið - 15.10.2011, Side 93
LAUGARDAGUR 15. október 2011 61
Rokktóber í 66°NORÐUR
www.66north.is Klæddu þig vel
KUL dömupeysa
Fæst líka í gráu og hvítu.
DIKTA í Ba
nkastræti
5
Í tilefni þes
s að Rokktó
ber
miðborgarin
nar og
tónlistarhát
íðin Iceland
Airwaves er
u í fullum g
angi
mun hljóms
veitin Dikta
spila
í verslun 6
6°NORÐUR
í Bankastr
æti 5,
laugardagi
nn 15. októ
ber,
kl. 14 - 14:
30.
ESJA parka
Fæst líka í svörtu.
ARNARHÓLL fr
akki
Fæst líka í dökk
bláu.
Söngkonan Rihanna var kosin
kynþokkafyllsta kona heims
af tímaritinu Esquire síðasta
fimmtudag. Söngkonunni þykir
hún þó ekki vera sérstaklega
kynþokkafull.
Rihanna, sem er þekkt fyrir
eldheit tónlistarmyndbönd og
kynþokkafulla sviðsframkomu,
vill ekki gangast við því að hún
sé sérstaklega kynþokkafull. „Að
tónleikum loknum finnst mér
ekki eins og ég hafi verið kyn-
þokkafull. Ég hugsa ekki einu
sinni út í það. En ætli fólki finn-
ist ekki ólíkir hlutir kynþokka-
fullir,“ sagði hún í nýlegu blaða-
viðtali.
Pæli ekki í
kynþokka
ALVEG ÓMEÐVITAÐ Söngkonunni
Rihönnu finnst hún ekki vera kynþokka-
full. NORDICPHOTOS/GETTY
Todmobile hefur sent frá sér
lagið Sjúklegt sjóv. Það er eftir
gítarleikarann Þorvald Bjarna
og textinn eftir Andreu Gylfa-
dóttur. Lagið verður á sjöundu
plötu hljómsveitarinnar, 7, sem
kemur út 10. nóvember. Andrea
og Eyþór Ingi Gunnlaugsson
skipta söngnum á plötunni á milli
sín og þeir Benedikt Brynleifsson
og Ólafur Hólm, sem hefur lengi
spilað með Nýdönsk, sjá báðir
um trommuleikinn. Föstudags-
kvöldið 18. nóvember leikur
Todmobile í fyrsta sinn í Hörpu,
eða í Eldborgarsalnum, og er
miðasala hafin á þá tónleika.
Nýtt lag frá
Todmobile
TODMOBILE Hljómsveitin hefur sent frá
sér nýtt lag, Sjúklegt sjóv.
Kim Larsen er vafalítið einn dáðasti tónlist-
armaður Dana fyrr og síðar, plötur hans selj-
ast alltaf í bílförmum, lögin hafa lifað lengi
með dönsku þjóðinni og Larsen sjálfur er
erkitýpa þjóðarsálarinnar; „ligeglad“.
En ný ævisaga um kappann, Solisten,
hefur leitt það í ljós að Larsen er „ligeglad“
um þrjú elstu börnin sín. Larsen, sem á sex
börn, hefur lítið samband við börnin sín
frá tveimur fyrstu hjónaböndunum. Hann
er orðinn afi en hefur sáralítið af barna-
börnum sínum að segja, og þau fá ekkert
að hitta sinn heimsfræga afa. Danskir fjöl-
miðlar fjalla ítarlega um málið enda hefur
Kim Larsen verið ákaflega annt um einka-
líf sitt, varið það með kjafti og klóm. Sjálfur
upplifði hann mikla höfnun aðeins fimm ára
gamall er faðir hans yfirgaf fjölskylduna.
Bókin Solisten dregur á flot fólk, nátengt
honum, sem hefur aldrei áður tjáð sig um
hann. Meðal þeirra er elsta dóttirin Alice
Eva sem segir í bókinni að hún hafi ekki hitt
pabba sinn síðan 2007. „Ég er búin að gefast
upp á því að hafa samband við hann. Hann er
bara svona.“ Hún bætir því við að skilnaður
móður hennar og Larsens hafi komið eins og
þruma úr heiðskíru lofti en hún var þá aðeins
fimmtán ára gömul. Hún hafi aldrei fengið
neinar skýringar á skilnaðinum. „Þegar ég
skrifaði bréf til pabba fékk ég bara póstkort
frá Óðinsvéum, sem var boð um að koma og
heimsækja hann og nýju kærustuna hans.
Þannig er þetta alltaf hjá honum, maður þarf
að ganga á eftir honum.“ - fgg
Kim Larsen sagður vondur pabbi
LÍTIÐ SAMBAND Kim Larsen hefur ekki hitt elstu börnin
sín í fjölmörg ár. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA