Fréttablaðið - 15.10.2011, Page 103
LAUGARDAGUR 15. október 2011
512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR
Fólk með lausnir
Hjá Nýherja starfa hátt í 300 sérfræðingar í upplýsingatækni.
Lausnir okkar byggja á skilningi á þörfum viðskiptavina,
framúrskarandi tækniþjónustu og tæknibúnaði frá heims-
þekktum framleiðendum.
Með frumkvæði og metnað að leiðarljósi finnum
við réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki.
Nýherji hf. Sími 569 7700 www.nyherji.is
FÓTBOLTI Liverpool mun tjalda
öllu sem til er þegar liðið fær
Englandsmeistara Manchester
United í heimsókn í ensku úrvals-
deildinni í sannkölluðum risaleik
á Anfield í hádeginu.
Meiðslalistinn er tæmdur
hjá mönnum Kenny Dalglish
og fyrirliðinn Steven Gerrard
mun byrja sinn fyrsta leik síðan
6. mars, en hann hefur verið
lengi að koma til baka eftir
nárameiðsli.
United er búið að tapa þremur
síðustu leikjum sínum á Anfield
og hefur ekki unnið erkifjendur
sína í Bítlaborginni síðan í
desember 2007. Dalglish hefur
enn fremur aldrei tapað fyrir Sir
Alex Ferguson á Anfield í fimm
leikjum þar, en þar á meðal er 3-1
sigur Liverpool í vor.
United-maðurinn Wayne
Rooney verður í sviðsljósinu
en þessi fyrrverandi Everton-
maður og markahæsti leikmaður
deildarinnar hefur ekki
skorað á Anfield í síðustu sex
leikjum. Eina mark Rooneys í 9
deildarleikjum á Anfield kom í
janúar 2005. - óój
Risaleikur á Anfield í dag:
Gerrard byrjar
á móti United
STEVEN GERRARD Kenny Dalglish teflir
fyrirliðanum fram í dag. MYND/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, hefur biðlað
til stuðningsmanna félagsins
að hætta að syngja um Hills-
borough-slysið í leikjum á móti
Liverpool, en erkifjendurnir
mætast á Anfield í dag.
United-menn hafa ítrekað reynt
að strá salti í sárin með því að
syngja um slysið á Hillsborough-
vellinum í Sheffield í undanúr-
slitaleik bikarsins árið 1989 þar
sem 96 stuðningsmenn Liverpool
krömdust til bana.
„Ég lít alltaf á þessa leiki sem
leiki ársins í enska boltanum. Við
þörfnumst hver annars og verð-
um að sýna virðingu. Söngvar
um Hillsborough hjálpa hvorugu
félaginu,“ sagði Ferguson.
- óój
Skilaboð Sir Alex Ferguson:
Hættið að
syngja um
Hillsborough