Fréttablaðið - 15.10.2011, Síða 104
15. október 2011 LAUGARDAGUR72
FÓTBOLTI Mikil umræða hefur átt
sér stað um laun landsliðsþjálf-
ara Íslands. Eftir að umræðan um
erlendan þjálfara fór í gang hefur
heyrst að það kosti 60-70 milljónir
króna á ári að vera með erlendan
þjálfara. Geir Þorsteinsson, for-
maður KSÍ, segir að sú umræða
eigi sér enga stoð í raunveruleik-
anum.
„Stjórn KSÍ setti okkur ákveð-
inn fjárhagslegan ramma fyrir
þessa ráðningu. Við erum innan
þess ramma. Ég vil ekki segja
hvað Lars er nákvæmlega með í
laun en það er talsvert minna en
þessar 65 milljónir sem talað var
um í sænskum fjölmiðlum,“ sagði
Geir ákveðinn og bætti við að þó
svo að Lagerbäck væri með hærri
laun en fyrirrennarar hans væru
launin ekki það há að þau trufluðu
starfsemi KSÍ á nokkurn hátt.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem KSÍ neitar að gefa upp laun
en launaleynd hefur fylgt sam-
bandinu lengi. Af hverju er það?
„Við höfum ekki viljað gera það
áður og það hefur einfaldlega ekki
breyst. Lars er samt klárlega með
hærri laun en þjálfararnir á undan
honum,“ sagði Geir en er Lager-
bäck með hærri laun en hann? „Já,
Lars er með hærri laun en formað-
urinn.“
Svíinn segist vera sáttur við
sinn samning og tekur fram að
hann sé ekki að koma til Íslands
peninganna vegna.
„Ef ég hefði ekki verið sáttur
við samninginn þá hefði ég aldrei
skrifað undir hann. Ef ég væri á
höttunum eftir peningum hefði ég
farið eitthvert annað en til Íslands.
Ég er að koma hingað á fótbolta-
legum forsendum því hér er spenn-
andi tækifæri fyrir mig,“ sagði
Lagerbäck og glotti við tönn. - hbg
Formaður KSÍ segir allt tal um að Lagerbäck sé með 60-70 milljónir króna í árslaun sé úr lausu lofti gripið:
Lagerbäck er með hærri laun en formaðurinn
TEYMIÐ Formaður KSÍ ásamt nýja landsliðsþjálfaranum og aðstoðarmanni hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Í hádeginu í gær var eitt
verst geymda leyndarmál síð-
ustu vikna afhjúpað þegar að það
fékkst staðfest að hinn sænski
Lars Lager bäck yrði næsti þjálf-
ari íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu. Tekur hann við starfinu
af Ólafi Jóhannessyni, en aðstoð-
armaður Lagerbäcks verður Eyja-
maðurinn Heimir Hallgrímsson,
sem hefur náð frábærum árangri
með ÍBV síðustu tvö ár.
„Þetta eru forréttindi fyrir
mig,“ sagði Lagerbäck á blaða-
mannafundi KSÍ í gær. „Ég er
ánægður með að hafa fengið þetta
starf, enda eru öll mín kynni af
íslenskri knattspyrnu af hinu góða.
Ég hef alltaf borið virðingu fyrir
íslenskri knattspyrnu.“
Geir Þorsteinsson, formaður
KSÍ, sparaði ekki lofið. „Lars er
í hópi reyndustu landsliðsþjálf-
ara Evrópu og það er mikill feng-
ur fyrir íslenska knattspyrnu að
fá hann til starfa. Heimir hefur
síðan staðið sig mjög vel og hefur
menntað sig mikið í þjálfarafræð-
um. Það er ljóst að við höfum ráðið
mjög færa þjálfara til starfa.“
Lagerbäck er þó enn að störfum
hjá sænska knattspyrnusamband-
inu, þar sem hann hefur starfað
sem ráðgjafi. Samningur hans við
Svíana rennur út um áramótin og
þá mun hann hefja störf að fullu.
Margt líkt með Íslandi og Svíþjóð
Lagerbäck starfaði í tólf ár sem
þjálfari sænska landsliðsins;
fyrstu tvö árin sem aðstoðarþjálf-
ari og næstu fjögur sem aðalþjálf-
ari í samstarfi við Tommy Söder-
berg áður en hann tók alfarið
við starfinu sjálfur. Hann óttast
ekki að að koma inn í starfsum-
hverfi sem er minna í sniðum en
hann hefur vanist. „Ég tel að það
sé margt líkt með íslenskri knatt-
spyrnu og þeirri sænsku. Bæði
lönd eiga til að mynda marga leik-
menn sem eru í atvinnumennsku
erlendis og miðað við mína reynslu
er viðhorf knattspyrnumanna hér
á landi mjög gott,“ sagði Lager-
bäck. Hann hafði ekki áhyggjur
af því að fjárhagur KSÍ væri ekki
jafn sterkur og hjá knattspyrnu-
samböndum stærri landa, eins og
Svíþjóðar.
„Ef við erum að tala um peninga
eru stærstu upphæðirnar í boltan-
um í dag í kringum leikmanna-
kaup. Það er síðan allt annað mál
þegar kemur að undirbúningi
landsliða fyrir leiki. Öll landslið
fá jafn marga daga og því snýst
þetta meira um ferðakostnað og
hversu dýr hótel eru valin. Ég von-
ast til að ég geti undirbúið íslenska
landsliðið jafn vel fyrir leiki og ég
undirbjó það sænska.“
Eigum möguleika eins og allir
Lagerbäck segir að Ísland hafi
verið nokkuð heppið með riðil í
undankeppni HM 2014. „Þetta er
jafn riðill og nokkuð áhugaverður.
Ég tel að öll lið eigi möguleika ef
þau undirbúa sig vel og eru skipu-
lögð í sínum leik. Hvort það verður
nóg í tilfelli Íslands er of snemmt
að segja til um,” sagði Lagerbäck.
Hann nefndi tvö atriði til sögunn-
ar sem hann lítur á sem lykilþátt í
starfi landsliðsþjálfara.
„Það fyrsta er að hann verður að
skipuleggja leik liðsins eins vel og
mögulegt er. Á þeim tólf árum sem
ég eyddi sem landsliðsþjálfari Sví-
þjóðar fóru um 70 prósent tímans
í að undirbúa leikskipulagið. Hitt
sem ég vil nefna er að skapa góða
liðsheild, jafnt innan vallar sem
utan. Hún verður að vera jákvæð
því öðruvísi mun liðið aldrei ná
árangri,“ sagði hann og sendi síðan
leikmönnum skýr skilaboð. „Þeir
sem vilja spila með landsliðinu
verða að vera tilbúnir að leggja sig
100 prósent fram. Annars eiga þeir
ekkert erindi í liðið.“
Spurður hvort það væri raun-
hæft markmið að fara með Ísland
á HM sagði hann nauðsynlegt að
útiloka ekki neitt. „Við verðum
að gera okkur grein fyrir því að
Ísland er lítið land en við verðum
samt að gefa þessu möguleika. Ég
vil vinna fótboltaleiki – ég er ekki
hrifinn af því að tapa.“
Ítarlega er rætt við Lars Lager-
bäck í helgarkafla Fréttablaðsins,
á blaðsíðu 30. eirikur@frettabladid.is
Leikskipulag og liðsheild lykilþættir
Lars Lagerbäck var í gær ráðinn þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi
þjálfari ÍBV, verður aðstoðarmaður hans. Verkefni Lagerbäcks verður að koma Íslandi á HM í Brasilíu 2014.
ÞEIR EIGA AÐ KOMA ÍSLANDI Á HM Lars Lagerbäck, nýr landsliðsþjálfari Íslands, og Heimir Hallgrímsson, aðstoðarmaður hans, á blaðamannafundi KSÍ í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Undankeppni Svía undir stjórn Lagerbäcks
HM 2002* 8 sigrar, 2 jafntefli, 0 töp komst á HM í Japan og Suður-Kóreu
EM 2004* 5 sigrar, 2 jafntefli, 1 tap komst á EM í Portúgal
HM 2006 8 sigrar, 0 jafntefli, 2 töp komst á HM í Þýskalandi
EM 2008 8 sigrar, 2 jafntefli, 2 töp komst á EM í Sviss og Austurríki
HM 2010 5 sigrar, 3 jafntefli, 2 töp komst ekki á HM í Suður-Afríku
Samanlagt: 34 sigrar, 9 jafntefli, 7 töp Sigurhlutfall 71,2%
Markatala: 105-24 (2,1 mark í leik - 0,5 mörk fengin á sig í leik) *Með Tommy Söderberg
FÓTBOLTI Geir Þorsteinsson, for-
maður KSÍ, segir að það hafi
komið sér á óvart hversu marg-
ir erlendir þjálfarar sýndu því
áhuga að þjálfa landsliðið.
„Við fengum gríðarlega margar
umsóknir um starfið og ég hef
varla tölu á því hvað þær voru
margar. Það voru samt í það
minnsta 30 þekkt nöfn úr knatt-
spyrnuheiminum sem sóttu um,“
sagði Geir um áhugann á starfinu
og hann staðfesti að hann hefði
meðal annars átt fund með Roy
Keane um starfið.
„Það voru margir Englending-
ar sem sóttu um en einnig komu
umsóknir frá Þýskalandi, Hol-
landi og Skandinavíu. Þessi mikli
áhugi kom mér nokkuð á óvart ef
ég á að segja eins og er.“ - hbg
Margir vildu þjálfa Ísland:
30 þekktir sóttu
um starfið
ROY KEANE Ræddi við KSÍ eftir allt
saman. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Lars Lagerbäck, nýr
landsliðsþjálfari Íslands, mun
áfram búa í Svíþjóð en sagðist þó
ætla að eyða eins miklum tíma og
mögulegt væri hér á landi.
„Ég vil eyða eins miklum tíma
og ég get hér,“ sagði Lagerbäck í
gær. „Ég mun líka ferðast mikið
og fylgjast með íslenskum knatt-
spyrnumönnum á meginlandi
Evrópu og því er það ekkert
verra fyrir mig að búa í Svíþjóð,“
sagði Lars. - esá
Nýr landsliðsþjálfari:
Býr áfram ytra
FÓTBOLTI Lars Lagerbäck verður
áttundi erlendi þjálfari íslenska
karlalandsliðsins í knattspyrnu
sem stýrir íslenska landsliðinu
í undankeppni stórmóts þegar
hann tekur við á næsta ári.
Tuttugu ár eru liðin síðan
Svíinn Bo Johansson hætti með
landsliðið, en hann var síðasti
erlendi þjálfari landsliðsins. Sjö
íslenskir þjálfarar hafa síðan
fengið tækifærið, en Bo tók á
sínum tíma við starfi Þjóðverjans
Siegfried Held.
Bretinn Tony Knapp er ennþá
sá þjálfari sem hefur stýrt A-
landsliðinu í flestum leikjum.
Ólafur Jóhannesson var einum
leik frá því að jafna met Knapp,
sem stýrði íslenska liðinu í 40
leikjum í tveimur lotum, 1974-
1977 og 1984-1985. - óój
Erlendir þjálfarar í undan-
keppnum HM eða EM:
Bo Johansson 1 sigur í 6 leikjum (5 töp)
Siegfried Held 2 sigrar í 15 leikjum (7 töp)
Tony Knapp 3 sigrar í 18 leikjum (13 töp)
Júri Ilitchev 0 sigrar í 8 leikjum (8 töp)
Henrik Enoksen 0 sigrar í 3 leikjum (3 töp)
Duncan McDowell 0 sigrar í 2 leikjum (2 töp)
Alexander Weir 0 sigrar í 4 leikjum (4 töp)
Erlendir landsliðsþjálfarar:
Sá fyrsti í heil
tuttugu ár
BO JOHANSSON Stýrði íslenska liðinu frá
1990 til 1991. MYND/GETTYIMAGES