Morgunblaðið - 16.07.2010, Page 1
Fjöldi fólks streymdi í Nauthólsvíkina í gær en veðr-
ið var með eindæmum gott. Hitinn fór þó ekki nema
í 15,5°C í höfuðborginni en hæstur mældist hann
19,6°C í Húsafelli. Fólk var þó ekki eingöngu mætt
til að flatmaga í sólbaði heldur til að skemmta sér,
hvort heldur með skóflum og fötum, kútum, tenn-
isspöðum eða boltum. Þá voru eflaust sumir sem
mættu til að sýna sig og sjá aðra og njóta veðurblíð-
unnar í góðum félagsskap. Í dag verður veðrið held-
ur betra ef marka má spá Veðurstofu Íslands. Spáð
er hátt í tuttugu stiga hita á Suður- og Suðvestur-
landi og ætti það að haldast fram yfir helgi. »6
Morgunblaðið/Ernir
Víkin vinsæl í veðurblíðunni
F Ö S T U D A G U R 1 6. J Ú L Í 2 0 1 0
Stofnað 1913 164. tölublað 98. árgangur
UNGIR FRÆÐA
UNGA Í JAFNINGJA-
FRÆÐSLUNNI
ÓTRÚLEG
BYRJUN Á
LAXVEIÐI
UPPSKERUHÁTÍÐ
AFREKSFÓLKS
Í ÍÞRÓTTUM
BLANDA ER SPÚTNIK-ÁIN 14 ESPY-VERÐLAUNIN AFHENT 33HEIMSÆKJA VINNUSKÓLA 10
Lítið má út af bregða við frágang í
Landeyjahöfn ef takast á að sigla
með Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra inn í hana á þriðjudag – og
áætlunarsiglingar Herjólfs geti haf-
ist strax daginn eftir. Að sögn for-
stöðumanns hafnasviðs Siglinga-
stofnunar hafa verktakar staðið sig
einstaklega vel að undanförnu, undir
tímapressu, en á sama tíma hafa erf-
iðleikar steðjað að, m.a. eldgos.
Frá upphafi framkvæmda var
áætlað að höfnin yrði tekin í notkun 1. júlí en þegar byrj-
aði að gjósa í Eyjafjallajökli varð þegar ljóst að verkið
myndi tefjast eitthvað. Þó hefur ávallt verið miðað við
júlímánuð. Með tilkomu Landeyja-
hafnar rofnar einangrun Vestmanna-
eyja, að mati bæjarstjórans Elliða
Vignissonar.
Ferðatíminn fer úr 2 klukkustund-
um og 45 mínútum í rúma hálfa og
„[h]ægt verður að sækja atvinnu frá
Vestmannaeyjum upp á fastalandið
og öfugt.“
Íbúar Hvolsvallar eru ekki síður
spenntir og hafa þjónustufyrirtæki
verið að stækka við sig og bæta
tækjakost að undanförnu. „Þetta er upplyfting fyrir okk-
ur,“ segir Albert Áslaugsson, sem rekur veitingastaðinn
Gallery pizza á Hvolsvelli. »16 og 17
Verktakar standa sig vel
Höfnin Unnið er af fullum krafti við frágang
enda afar stutt í formlega opnun.
Einangrun rofin þegar Landeyjahöfn verður tekin í notkun
Morgunblaðið/Eggert
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Julio Escolano, einn höfunda skýrslu Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um íslenska
skattkerfið, segir Íslendinga standa frammi
fyrir því að velja á milli hárra skatta eða
óstöðugs efnahagskerfis sem afleiðingar af
veikri stöðu ríkis-
ins. Báðir kostir séu
slæmir en skatta-
hækkanir séu þó ill-
skárri. Þetta kom
fram á blaðamanna-
fundi sem haldinn
var í samgöngu-
ráðuneytinu í gær.
Escolano, ásamt
öðrum skýrsluhöf-
undum, gerði grein
fyrir efni skýrsl-
unnar og svaraði
spurningum í gegn-
um fjarfundabúnað.
Hann segir að líta
eigi á skýrsluna eins og greiningu læknis,
leitað hafi verið til sjóðsins um eins konar
ástandsskoðun á skattkerfinu á Íslandi.
Skattahækkanir ekki stefna AGS
Escolano segir AGS ekki taka afstöðu til
þess hvort hækka eigi skatta frekar en að
beita öðrum aðgerðum til að bæta fjárhag
ríkisins, né hvernig æskilegt sé að tekjudreif-
ing sé. Það sé hlutverk stjórnmálamannanna
sjálfra að taka ákvörðun um slíkt. Verði nið-
urstaðan sú að hækka eigi hér skatta liggja
tillögur sjóðsins fyrir. Hann sagði þó í fram-
haldinu að íslensk yfirvöld hafi beðið nefnd-
ina að horfa sérstaklega til tekjuaukningar-
möguleika og jöfnunar tekjudreifingar með
þrepaskiptingu tekjuskatts. Jafnframt hafi
ríkið viljað auka samræmi skattkerfisins við
það sem tíðkast annars staðar, til að mynda í
Evrópu. Nefndinni hafi hins vegar ekki verið
ætlað að fjalla um hugsanlegan niðurskurð
opinberra útgjalda.
Skatta-
hækkun
illskárri
Ríkisstjórnin „pant-
aði“ ekki niðurstöður
Hækkun um
1-2%?
» Niðurstaðan í
skýrslu AGS er
sú að hægt sé að
auka skatttekjur
ríkisins um 1-2%
af vergri lands-
framleiðslu með
hækkunum sem
lagðar eru til.
Lögregla telur að mikil aukning
á þjófnaði á tjaldvögnum og felli-
hýsum bendi til þess að um skipu-
lagða brotastarfsemi sé að ræða.
Henni gengur illa að finna vagnana
og veit ekki hvað um þá hefur orð-
ið.
Líklegt er talið að stolnir ferða-
vagnar séu seldir hér á landi en
ekki fluttir úr landi, þó slíkt sé ekki
útilokað. Að sögn starfsmanna Vík-
urverks er mikil eftirspurn eftir
notuðum fellihýsum og tjaldvögn-
um hér á landi um þessar mundir.
Kaupmáttur hefur minnkað umtals-
vert og fólk ferðast meira innan-
lands í kjölfar kreppunnar.
Lögregla hvetur fólk til að vera á
varðbergi ef það ákveður að fjár-
festa í notuðum ferðavagni og
kanna öll gögn vel. »4
Stolnir ferðavagnar
seldir hér á landi
Stolinn? Gæta þarf að sér ef kaupa skal
notað hjólhýsi eða tjaldvagn á næstunni.
Saksóknari tel-
ur að sakborn-
ingar í stóru
fíkniefnamáli
sem rekið er fyr-
ir Héraðsdómi
Reykjavíkur hafi
breytt framburði
sínum á seinni
stigum máls til
að halda hlífi-
skildi yfir Davíð
Garðarssyni sem lögregla telur
nauðsynlegan tengilið í innflutningi
á kókaíni til landsins.
Lögregla hleraði síma í þágu
rannsóknarinnar mánuðum saman
og kom fyrir eftirlitsbúnaði. »12
Halda hlífiskildi yfir
mikilvægum tengilið
Davíð Garðarsson
mætir í dómshús.
19°C
Hitinn í Reykjavík kl. 18 í dag,
samkvæmt spá Veðurstofu Íslands
Heiðskírt
Þegar líður á daginn í Reykjavík,
Akureyri og Bolungarvík
‹ SUMAR OG SÓL ›
»