Morgunblaðið - 16.07.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.07.2010, Blaðsíða 11
Ég er nýkominn heim úr knöppu ferðalagi umKaliforníu. Kalifornía er skemmtilegurstaður að heimsækja enda margt að sjá oggera í hinu gullna fylki. Það setti þó strik í reikninginn að ég missti rándýru sólgleraugun mín ofan í San Francisco-flóann. Ég sat um borð í ferju þegar ég leit upp úr reyf- aranum sem ég var að lesa og sá sólsetrið gylla him- in, borg og flóa. Ég skildi vel af hverju brúin víð- fræga hlaut nafnið Golden Gate þegar ég virti þetta fyrir mér. Rétt í þessu sigldi ferjan framhjá Alcatraz- fangelsinu sem stóð þarna einangrað á litlu skeri á miðjum flóanum eins og það væri að taka út sína eig- in refsingu fyrir þann hrylling sem þar átti sér stað um áratugabil. Hvað gat ég annað gert en að stökkva út á þilfar og smella mynd af þessum sögulegu undr- um verkfræði, náttúru og mannvonsku. Ég spratt á fætur með myndavélina í hönd og hljóp út á þilfar en hraði ferjunnar og kvöldgolan voru slík að gleraugun fuku af mér og út í sjó. Þetta þótti mér miður enda þótti mér fjarska vænt um þessi gleraugu, þau voru nefnilega með sjóngleri í. Ég lærði að fljúga með þau á nefinu, þau gerðu mér kleift að aka bifreið í átt að sólsetrinu, ég hef snjó- brettað með þau niður margan tindinn en nú eru þau horfin, farin, sokkin. Merkilegt hvað manni tekst að tengjast dauðum hlutum. Hljómar kannski eins og bölvuð efnishyggja en mér þótti á mjög einlægan hátt vænt um þessi gleraugu. Þau voru mér mikils virði. Þessi pistill á hins vegar ekki að vera einhvers konar minningargrein um gleraugun mín. Þá grein má finna aftar í blaðinu. Um leið og í land var komið hljóp ég niður verslunargötuna í leit að nýjum sólgleraugum. Gleraugun voru af gerðinni Ray Ban Aviator sem flestir þekkja (til glöggvunar var Tom Cruise með slík gleraugu í hlutverki Maverick í kvik- myndinni Top Gun). Ray Ban-gleraugu, eins og margt annað, eru á mjög ósann- gjörnu og uppsprengdu verði hér heima á Íslandi og því vildi ég nýta tækifærið og kaupa ný á viðráðanlegu verði. Ég fálm- aði mig í gegnum mann- þvöguna í átt að næstu gleraugnaverslun, ruddist inn og þar tók á móti mér þessi yndislega afgreiðslu- kona sem heilsaði mér bros- andi með orðunum „Hi, how are you? Great to see you!“ Kannski er ég bara einfaldur neytandi en mér finnst ofboðslega gott að láta heilsa mér á svona hlýjan máta. Öll samskipti mín við þessa konu voru til fyrirmyndar og eftirbreytni. Hún nam það strax að ég var í miklu uppnámi enda niðurbrot- inn eftir sorglegan missi. Hún veitti mér mikla og góða þjónustu með jákvæðu fasi þar sem vandamál voru virt sem tækifæri til að finna lausn. Ég þakkaði fyrir góða þjónustu og hugsaði með hlýhug til þjónustuparadísarinnar sem Bandaríkin eru. Sama hvað fólk hefur út á þetta land að setja, sem er eflaust margt, þá getur enginn neitað því að hvergi í heiminum má finna jafn mikla og jákvæða þjónustulund. Ég velti því stundum fyrir mér hver viðbrögð Ís- lendinga væru ef afgreiðslumaður á Íslandi heilsaði með orðunum „Hæ, hvað segirðu? Frábært að sjá þig!“ Persónulega mundi ég eflaust strax velta því fyrir mér hvort viðkomandi væri eitthvað klikkaður eða hvort hann væri hreinlega að hæðast að mér. Maður bara býst ekki við já- kvæðni og mikilli þjón- ustulund þegar maður á í viðskiptum á Ís- landi. Auðvitað er þetta mikil einföldun en allir sem hafa komið til Bandaríkjanna skilja hvað ég á við. Margir telja þetta þó óþarfa uppgerð. Ef- laust er eitthvað til í því en þegar ég brosi til þeirra sem ég á í við- skiptum við, þá býst ég við því að fá bros til baka. Það á að vera jafn sjálfsagður hluti viðskipta og skiptin á gjaldmiðli og vöru. Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is »Sama hvað fólk hefur út á þettaland að setja, sem er eflaust margt, þá getur enginn neitað því að hvergi í heiminum má finna jafn mikla og jákvæða þjónustulund. Heimur Jónasar Margeirs ss Fræðari Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir spjallar óformlega við unglingana. armennirnir eru á öllum aldri og til gamans má geta að það munar 61 ári á yngsta og elsta flytjandanum á hátíðinni. Fram koma Fönksveinar, Kristmundur Axel, Sing for me Sandra, Original Melody, Ramses, Jón Jónsson, GÁVA, The assassin of a beautiful brunette, Friðrik Dór og Raggi Bjarna. Þar fyrir utan fer Þorsteinn Guðmundsson með gam- anmál, parkour strákar sýna listir sýnar ásamt götulistamanninum Wally og flóamarkaður Hins húss- ins verður í fullum gangi þar sem hægt er að kaupa sér notuð föt ásamt öðru glingri. „Það verður líka frítt að borða og við dreifum smokk- um. Með þessari hátíð viljum við sýna að það er hægt að skemmta sér án áfengis en hátíðin var vel sótt í fyrra og við búumst við öðru eins í ár,“ segir Áslaug Arna. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2010 Daglegt líf 11 Fræðsla Jafningjafræðslunnar er gagnvirk og unnin á jafnrétt- isgrundvelli þar sem allir fræð- arar eru sjálfir á aldrinum 17-21 árs. En rannsóknir sýna að ungt fólk er móttækilegra fyrir boð- skap frá fólki sem er á svipuðu aldursbili og það sjálft heldur en frá eldra fólki. Í sumar heim- sækja jafningjafræðarar vinnu- skóla víðs vegar um land og spjalla við unglingana um það sem helst brennur á þeim. Svipaður aldurshópur MÓTTÆKILEGRI SKILABOÐ Þó að við eldumst er samt svo mik- ilvægt að gleyma ekki að leika sér við og við eins og þegar maður var yngri. Að hoppa á trampólíni er t.d. mjög góð skemmtun bæði fyrir börn og fullorðna og um að gera að finna ein- hvern sem á eitt svoleiðis í garðinum sínum. Píluleikurinn er líka klassískur þar sem skipt er í tvö lið og krítaðar eru vísbendingar á jörðina. Þá byrjar annar hópurinn að fylgja pílunum og gera þær æfingar og þrautir sem mælst er til. Á leiðarenda þarf síðan að finna hinn hópinn sem hefur falið sig þar. Brennó og skotbolti eru líka stórskemmtilegir leikir sem fara má í á túnum borgarinnar. Í útilegunni er líka um að gera að hafa leiki og jafn- vel leikjamót. Keppa má í frisbí, fót- bolta, badminton og svo sem hverju því sem fólk hefur gaman af. Virkjum barnið innra með okkur í sumar og leikum okkur af lífi og sál í góða veðr- inu. Endilega … … leikið ykkur í blíðunni Morgunblaðið/Ómar Trampólín Einn á fleygiferð. + = TUDOR frístundarafgeymir Exide hleðslutæki Rafmagnað frí... ár eftir ár Mesta úrval landsins af rafgeymum fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi Mænuskaðastofnun Íslands um 3000.- kr. í síma 908-7070 Lesið inn nafn og heimilisfang og fáið sendan geisladiskinn Spinal Chords með Porterhouse í kaupbæti. Nánara á www.facebook.com/porterhouse S T Y R K I Ð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.