Morgunblaðið - 16.07.2010, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2010
Meirihluti banaslysa í umferðinni
síðustu 10 ár hefur orðið á vegum
með bundnu slitlagi þar sem leyfileg-
ur hámarkshraði er 90 km á klukku-
stund. 72% þessara slysa hafa orðið í
dreifbýli og 68% í dagsbirtu. Þetta
kemur fram í ársskýrslu Rannsókn-
arnefndar umferðarslysa fyrir árið
2009.
Á síðasta ári fórust sautján manns
í fimmtán umferðarslysum á Íslandi.
Yfir helmingur þessara slysa var út-
afakstur, eða 53%. Ölvunarakstur
var algengasta orsök banaslysa árið
2009 en þrjú slys eru rakin til þess að
ökumenn voru ölvaðir og vanhæfir til
aksturs.
Rannsóknarnefndin veltir í skýrsl-
unni upp þeirri tillögu, að settir verði
áfengislásar í bifreiðir ökumanna
sem teknir hafa verið fyrir ölvunar-
akstur. Sú aðgerð er fyrst og fremst
hugsuð vegna ökumanna sem aka
endurtekið undir áhrifum áfengis og
láta sér ekki segjast. Auk þess að fá
áfengislás myndu ökumenn sækja
námskeið um hættu sem af ölvunar-
akstri stafar.
Í skýrslunni kemur jafnframt
fram að hraðakstur var aðalorsök
slyss tvisvar árið 2009 og í tveimur
slysum telur nefndin að ökumenn
hafi sofnað undir stýri. Þá telur
nefndin að fjórir af þeim 11 öku-
mönnum og farþegum bifreiða sem
fórust árið 2009 hefðu lifað slys af
hefðu þeir notað bílbelti.
andri@mbl.is
Ölvunarakstur helsta
orsök banaslysa árið 2009
Yfir 70% banaslysa í umferðinni síðustu tíu ár urðu í dreifbýli
Tegundir banaslysa
53%
20%
23%
ÚtafaksturAnnað
Framanákeyrslur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Allir nutu vel Höfuðborgarbúar kunna vel að meta bílleysið í miðborginni og flykktust margir hverjir af nærliggjandi kaffihúsum til að fylgjast með flinkum götulistamanni leika listir sínar.
Spá blíðviðri
víða um land fram
yfir næstu helgi
Morgunblaðið/Ernir
Buslað Fjölmargir bleyttu í sér í Nauthólsvík.
Morgunblaðið/Eggert
Á brókinni Þessir ungu herramenn léku sér fyrir framan Háskóla Íslands.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kagginn Á slíkum dýrðardegi voru sparibílarnir dregnir út.
Morgunblaðið/Eggert
Grasagarðurinn Hvar sem komið var við nutu Íslendingar jafnt sem útlend-
ingar veðursins til hins ítrasta. Sumir tóku sér kríu undir berum himni.
Veðrið leikur við nú við landsmenn og hitinn fór í tæpar
tuttugu gráður á Suðurlandi í gær. Veðurspár sýna áfram-
haldandi blíðviðri fram yfir helgi og í dag er spáð góðu
sumarveðri um mikinn hluta landsins nema helst suðaust-
anlands. Víða verður hitinn á bilinu 15-20 stig en draga
mun úr mestu hlýindunum á sunnudag.
Fjölmenni var við Nauthólsvíkina í Reykjavík. Margir
höfðu það einnig náðugt á Austurvelli, fengu sér ís og létu
erlenda ferðamenn um að stunda göngutúra með kort og
pinkla í sólarbreyskjunni, aðrir skelltu sér í sund. Sum
fyrirtæki gáfu starfsfólki frí vegna veðurs.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir í veðuryfir-
liti fyrir mbl.is að það merkilega virðist ætla að fara gerast
að veður fari hlýnandi á landinu á föstudag með norðan-
og norðaustanátt en slíku eigi landsmenn ekki að venjast.
Ástæðan sé sú að fyrir vestan og norðvestan landið sé hlýr
loftmassi sem eigi greiða leið yfir landið við þessar að-
stæður. kjon@mbl.is
Jotun pallaolía 3 ltr.TSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTS
ALA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SALA ÚTSA
LA ÚTSALA
TSALA ÚTSA
LA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SALA ÚTSA
LA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SAL
TSALA ÚTSA
LA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SALA ÚTSA
LA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SAL
TSALA ÚTSA
LA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SALA ÚTSA
LA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SAL
TSALA ÚTSA
LA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SALA ÚTSA
LA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SAL
TSALA ÚTSA
LA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SALA ÚTSA
LA ÚTSALA
ÚTSALA ÚT
SAL
G RÐ T L
50%
AFSLÁTTUR
Sumarblóm og
trjáplöntur