Morgunblaðið - 16.07.2010, Page 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2010
Hringurinn færði nýlega svæfing-
ardeildinni á skurðstofum kvenna-
deildar Landspítalans góðar gjafir.
Um er að ræða sérhannaðan barka-
spegil sem er til notkunar ef vanda-
mál verða við barkaþræðingu, auk
púlssúrefnismælis sem getur betur
en flestir aðrir gefið upplýsingar
um súrefnismagn í blóði.
Báðar þessar gjafir munu auka
mikið öryggi þeirra sjúklinga sem
fara í aðgerðir á skurðstofum
kvennadeildar. Sérstaklega munu
þessar gjafir auka öryggi þeirra
kvenna sem fara í keisaraskurð og
gildar það sama um börn þeirra.
Gjafir frá Hringnum
Gjöf Hringurinn gaf LSH barkaspegil og púlssúrefnismæli.
Sonja Björg Helga-
son, íþróttakennari,
stofnandi og fyrrver-
andi forstjóri Nestis,
lést á Droplaugar-
stöðum þriðjudaginn
13. júlí sl., 91 árs.
Sonja fæddist í
Reykjavík 16. nóv-
ember 1918, dóttir
hjónanna Ingileifar
og Helge N. Karlson.
Hún dvaldi í for-
eldrahúsum í Lerum
í Svíþjóð til fimm ára
aldurs. Eftir það ólst
hún upp á Laufásvegi
6 hjá fósturforeldrum sínum Sig-
urði Sigurðssyni alþingismanni og
Björgu Guðmundsdóttur.
Sonja var í Miðbæjarskólanum,
lauk prófum frá Kvennaskólanum
og íþróttakennaraprófi frá Kung-
liga Gymnastiska Institutet í
Stokkhólmi 1939. Hún var íþrótta-
kennari við Miðbæjarskólann,
Kvennaskólann, Húsmæðraskólann
og Landakotsskóla auk þess að
stunda kennslu hjá ýmsum íþrótta-
félögum.
Sonja stofnaði Nesti hf. ásamt
manni sínum Axel Helgasyni árið
1957. Eftir lát Axels starfrækti
hún Nesti. Sonja skrif-
aði í tímarit, samdi
leikþætti og kennslu-
efni. Hún starfaði
einnig hjá Styrktar-
félagi vangefinna,
Þroskaþjálfaskóla Ís-
lands og við Heilsu-
ræktina í Glæsibæ og
Jógastöðina. Sonja
sótti námstefnur
NFPU í Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi.
Sonja var sæmd
gullmerki ÍKÍ og
Íþróttafélags fatlaðra.
Hún var formaður
Kvenfélags Kópavogs og gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Odd-
fellowregluna og var félagi í
Gamma Delta.
Sonja giftist Axel Helgasyni,
rannsóknarlögreglumanni og síðar
forstjóra Nestis, 1943. Axel
drukknaði í Heiðarvatni í Mýrdal
1959. Þau eignuðust fimm börn,
Ingibjörgu, f. 1944, d. 1944, Helga
Þór, f. 1946, Erlu Björk, f. 1948,
Önnu Björgu, f. 1953, d. 1953 og
Ósk, f. 1954.
Útför Sonju fer fram frá Bú-
staðakirkju mánudaginn 26. júlí kl.
11.00.
Andlát
Sonja B. Helgason
Gunnar Levy Gissur-
arson, framkvæmda-
stjóri Gluggasmiðj-
unnar, lést þann 14.
júlí sl.
Gunnar fæddist í
Reykjavík hinn 24.
ágúst 1949. Að loknum
grunnskóla lærði hann
til smiðs og síðar húsa-
smíðameistara. Þá
nam hann tæknifræði
við Tækniskóla Ís-
lands.
Hann starfaði sem
framkvæmdastjóri
Húsnæðismálastofn-
unar og sinnti ýmsum trúnaðarstörf-
um á sviði iðnaðar.
Hann tók virkan þátt í starfi Iðn-
aðarmannafélagsins og var kjörinn
varaborgarfulltrúi fyrir
R-listann á kjörtíma-
bilinu 1994-1998. Þá var
hann formaður bygg-
ingarnefndar Reykja-
víkur.
Gissur, faðir Gunn-
ars, stofnaði glugga-
smiðju árið 1942 á
Miklatúni en Gunnar
tók við rekstrinum 1986
og starfaði sem fram-
kvæmdastjóri Glugga-
smiðjunnar alla tíð síð-
an.
Gunnar lætur eftir
sig eiginkonu, fjögur
börn og fimm barnabörn.
Útför Gunnars verður gerð frá
Fríkirkjunni í Reykjavík föstudag-
inn 23. júlí kl. 13.00.
Andlát
Gunnar Levy
Gissurarson
NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR
30%-50%
Skoðið sýnishorn á laxdal.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Verslaðu glæsilegan fatnað þar sem gæði og þjónusta skipta máli
Útsala
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2870 – www.friendtex.is
Opið mánudaga – föstudaga 11.00-18.00
Lokað á laugardögum
Úrval af fatnaði úr eldri
listum á kr. 1.000, 2.000
og 3.000
Buxnatilboð
3 stk. á kr. 6.00050% 40%
Ath. Ekki útsala á Praxis vörum
Vesti
áður 9990,-
nú 3990,-
Hörbuxur
áður 13490,-
nú 6475,-
Til sölu veitingarekstur
í hjarta borgarinnar
Staðurinn býður upp á mikla möguleika og er
vel tækjum búinn. Er með fullt veitinga-,
skemmtana- og útiveitingaleyfi. Áhugasamir
hafi samband á veitinga.rekstur@gmail.com.
Vinsælu
Yoohoo tuskudýrin
í miklu úrvali
Dreifingaraðili
Danco
Sími til Íslands
Missagt var í punktum um árið 1904
á baksíðu í gær að Ísland hefði kom-
ist í símasamband við önnur lönd
það ár. Hið rétta er að samið var um
ritsíma við „Hið mikla norræna
fréttaþráðarfélag“ árið 1904 en sæ-
síminn var opnaður 1906.
LEIÐRÉTT
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu var 306,7 stig í júní
2010 og lækkaði um 0,7% frá
fyrra mánuði. Þetta kemur fram í
Markaðsfréttum Þjóðskrár Ís-
lands, en vísitala íbúðaverðs á
höfuðborgarsvæðinu sýnir breyt-
ingar á vegnu meðaltali fer-
metraverðs.
Síðastliðna 3 mánuði hækkaði
vísitalan um 1,1%, síðastliðna 6
mánuði hækkaði hún um 1,5% og
lækkun síðastliðna 12 mánuði var
1,3%.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka
eftir stærð og hvort það telst fjöl-
býli eða sérbýli. Reiknað er með-
alfermetraverð fyrir 9 flokka
íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er
vegin með hlutdeild viðkomandi
flokks í heildarverðmæti á mark-
aði miðað við undangengna 24
mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað
að varpa ljósi á þróun fasteigna-
verðs samkvæmt þeim gögnum
sem liggja fyrir á hverjum tíma.
Vísitala
íbúðaverðs
lækkar
Sjávarútvegsráðherra hefur látið
breyta reglugerð um stjórn makríl-
veiða þannig, að skipum sem hafa
leyfi til strandveiða verður heimilt
að stunda makrílveiðar á handfæri
og línu.
Þegar hafa veiðst 45.000 tonn af
makríl það sem af er vertíðinni og
segir ráðuneytið að ætla megi að
yfir 80% aflans hafi farið til mann-
eldisvinnslu. Mikil makrílgengd er
nú við vestanvert landið og hefur
fiskurinn veiðst á stöng í höfnum
undanfarna daga. Sjávarútvegs-
ráðuneytið segir, að sérstök ástæða
sé því til að skapa svigrúm fyrir
nýjar veiðiaðferðir, sem líklegar séu
til að skapa grundvöll fyrir fjöl-
breyttri vinnslu á verðmætum af-
urðum og auka atvinnu í sjávar-
byggðum. Ennfremur þyki eðlilegt,
vegna þess hve stutt sé síðan farið
var að veiða makríl hér í teljandi
magni, að veita fleiri aðgang að
veiðunum en þeim sem veitt hafa
síðustu árin.
Strandveiðimenn
geta veitt makríl
Þegar veiðst 45.000 tonn af makríl