Morgunblaðið - 16.07.2010, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2010
10 Daglegt líf
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
V
ið fræðum krakkana
með því að tala við þá
sem er auðvelt þar sem
við erum á svipuðum
aldri.
Við sem sjáum um fræðsluna
erum á aldrinum 17 til 20 ára og
höfum því nýverið stigið þau skref
sem unglingar á leið í framhalds-
skóla eru við það að stíga. Það er
mikil breyting að koma í mennta-
skóla og krakkarnir lenda oft í hóp-
þrýstingi. Því leggjum við áherslu á
hversu mikilvægt sé að hafa sterka
sjálfsmynd og hafa trú á sjálfum
sér. Hluti af þessu er að æfa þau í
að gera sér grein fyrir að allir geti
bæði haft kosti og galla. Einnig
fræðum við krakkana og eyðum
ranghugmyndum sem þau kunna að
hafa,“ segir Áslaug Arna Sig-
urbjörnsdóttir, jafningjafræðari hjá
Jafningjafræðslu Hins hússins.
Dugleg að spyrja
Áslaug Arna segir krakkana
hafa mikinn áhuga á öllu því sem
viðkomi næsta skrefi. Hvernig sé að
fara í menntaskóla og hversu mikið
lífið breytist. Flest séu þau dugleg
að spyrja um hvað sem er og fræð-
ararnir leggja sig fram um að svara
öllum spurningum en þurfi einhver
á faglegri aðstoð að halda er þeim
einnig bent á hvar þau geti leitað
sér slíkrar aðstoðar. Til að mynda
er hægt að senda inn nafnlausar
spurningar á heimasíðu Totalr-
áðgjafar sem Áslaug Arna segir
gott þegar málefnin séu viðkvæm.
Stór hópur umsækjenda
Alls starfa 20 fræðarar við
Jafningjafræðsluna í sumar. Inn-
tökuskilyrði eru nokkuð ströng og
er valið úr stórum hópi umsækjanda
sem fær þjálfun í hvernig eigi að
fræða og nálgast krakkana á sem
áhrifaríkastan hátt. „Krökkunum
finnst langflestum gaman að fá okk-
ur í heimsókn og það er gaman fyrir
okkur að geta leiðrétt rang-
hugmyndir hjá þeim en stundum
hafa þau bara heyrt góða hlið á mál-
unum. Þeim finnst þetta líka til-
breyting og margt sem þau læra er
gott fyrir framtíðina. Við sitjum í
hring á gólfinu og höfum spjallið
óformlegt, eins förum við líka í
ýmsa leiki og reynum að fá þau til
að stíga aðeins út fyrir þæg-
indasvæðið sitt. Við fræðum en
hræðum ekki og bendum á hvernig
megi passa sig á vissum áhættu-
atriðum. Við tölum um allt milli
himins og jarðar, áfengi og munn-
tóbak, misnotkun, vinnuréttindi,
kynlíf, klám og margt fleira,“ segir
Áslaug Arna.
Fjörug götuhátíð
Í dag heldur Jafningjafræðslan
götuhátíð í samstarfi við VÍS og
hefst hún kl. 14 á Austurvelli. Á há-
tíðinni mun fjöldi tónlistarmanna og
listamanna koma fram. Tónlist-
Best að ungur
fræði ungan
Hugmyndafræði Jafningjafræðslu Hins hússins byggist á því að ungur fræðir ung-
an. Í sumar einbeita fræðarar Jafningjafræðslunnar sér að því að heimsækja
vinnuskólana og undirbúa unglingana undir það sem koma skal í menntaskóla.
Grill Á götuhátíð Jafningjafræðslu Hins hússins verður nóg um að vera.
Skemmtiatriði Götulistamaðurinn Wally er einn af þeim sem skemmtir.
Fyrir þá sem finnst gaman að spá og
spekúlera í stjörnumerkjunum er til-
valið að kíkja á þessa síðu hans Gulla,
Gunnlaugs Guðmundssonar stjörnu-
spekings, sem margir líta á sem
kónginn hér á landi þegar kemur að
stjörnuspeki.
Þar er meðal annars hægt að fá
ókeypis stjörnuspá fyrir hvern ein-
asta dag en aftur á móti þarf að
borga ef fólk vill sækja sér mán-
aðarspá, ársspá eða framtíðarbók.
Einnig er hægt að gerast áskrifandi
að stjörnuspá dagsins og fá eitt SMS
sent í símann á hverjum degi. Þetta
er persónuleg stjörnuspá, einungis
gerð fyrir viðkomandi, en ekki alla
sem eru fæddir í sama merki.
Hvert SMS kostar 19 kr.
Á þessari síðu er líka hægt að sjá
hvernig hvaða merki passa saman,
lesa sér til um hvert merki fyrir sig
og svo er líka hægt að senda þaðan
póstkort til vina og vandamanna og
velja á milli afmæliskorts, hryllings-
korts og stjörnumerkjakorts.
Á síðunni getur fólk slegið inn sinn
afmælisdag og séð hvaða frægir ein-
staklingar eiga sama afmælisdag.
Einnig er hægt að sjá nöfn hinna
frægu sem eru í sama stjörnumerki.
Líka mola og hugleiðingar.
Vefsíðan www.stjornuspeki.is
Vatnsberi Hinn loftkenndi vatnsberi er andlega þenkjandi.
Frægir fæddir sama dag og þú?
Fatahönnuðurinn Anderson D er
rísandi stjarna á meðal fatahönnuða
frá Fílabeinsströndinni. Hann hefur
löngum haft ástríðu fyrir tísku og
hefur hannað föt frá unga aldri.
Hann þykir vera forvitnilegur hönn-
uður og alltaf skrefi á undan með
frumlegum útfærslum. Anderson D
lauk fatahönnunarnámi frá Abidjan,
stærstu borginni á Fílabeinsströnd-
inni, árið 2002 og hefur hannað sína
eigin fatalínu frá árinu 2003.
Anderson D er þekktur fyrir sinn
sérstaka og smekklega stíl þar sem
hann blandar saman nýjum stefnum
og straumum við hefðbundinn afr-
ískan stíl. Í klæðnaðinn notar hann
vaxborið og handofið efni, bast, trjá-
greinar og ýmiss konar málma í
bland við satín og organza-efni en
herlegheitin skreytir hann síðan
með pallíettum og steinum. Hönnun
Anderson D var til sýnis nú á dög-
unum á tískuvikunni í Dakar þar
sem helstu hönnuðir Afríku koma
saman og sýna hönnun sína.
Reuters
Fatahönnun Anderson D blandar
saman ólíkum stefnum og efnum.
Tískusýning Hin árlega tískuvika í Dakar er nú í fullum gangi.
Frumleg hönnun
Anderson D
Bast í bland við satín og pallíettur
Hollywood-skartgripahönnuðurinn
Jennifer Meyer, sem einnig er þekkt
fyrir að vera gift leikaranum góðkunna
Tobey Maguire, er þekkt fyrir að sækja
innblástur í náttúruna við hönnun
sína. En nú kveður við nýjan tón og
hefur Jennifer hannað nýja skart-
gripalínu sem er í mjög anda Carrie-
hálsfestarinnar góðu, uppáhalds-
hálsfesti Carrie Bradshaw í Sex and
the City.
Í línunni eru bæði hálsmen og
eyrnalokkar úr 18 karata gulli en
Meyer hefur mótað nokkur uppáhalds-
orð sín úr gulli eins og ást, koss, elsk-
an og fleiri sæt og krúttleg orð. Eyrna-
lokkarnir eru hannaðir þannig að hægt
er að blanda ólíkum orðum saman
eins og t.d. ég og þú og vildi Meyer
með þessu búa til skartgripi sem fælu
í sér yfirlýsingu og væru tilvaldir til að
gefa góðri vinkonu sinni eða maka.
Skartgripir Meyer hafa verið vinsælir
og meðal annars bar Jennifer Aniston
tvær hálsfestar úr smiðju hennar í
hlutverki sínu í kvikmyndinni Marley
and Me.
Hálsmen í anda Carrie
Reuters
Sætt par Jennifer Meyer er spúsa Spider-Man, öðru nafni Tobey Maguire.
Ný skartgripalína úr smiðju Jennifer Meyer