Morgunblaðið - 16.07.2010, Qupperneq 14
Nýr vefur fyrir áheitasöfnun í
tengslum við Reykjavíkurmaraþon
Íslandsbanka hefur verið opnaður á
vefsvæðinu hlaupastyrkur.is. Nýi
vefurinn er nokkuð svipaður og
reyndar byggður á sama grunni og
vefur „mottumars“.
Á vefnum geta hlauparar sett inn
myndir af sér, búið til myndband og
sagt frá því hvers vegna þeir hafa
valið að hlaupa fyrir tiltekið góð-
gerðarfélag. Almenningur getur
svo farið inn á síðuna og heitið á
hlauparana.
Nú eins og áður þurfa hlauparar
að skrá sig til þátttöku í Reykjavík-
urmaraþonið á vefsíðunni mar-
athon.is/reykjavikurmaraton. Þeg-
ar því er lokið geta þeir farið inn á
hlaupastyrkur.is og virkjað söfnun
sína með því að velja „nýskráning“.
Þau sem vilja heita á hlaupara fara
beint inn á hlaupastyrkur.is og
velja þar einstaklinga eða boð-
hlaupslið sem þau vilja heita á.
Hægt er að heita á hlaupara fram
að miðnætti mánudaginn 23. ágúst
en hlaupið fer fram laugardaginn
21. ágúst.
Nú hafa 57 góðgerðarfélög skráð
sig til þátttöku í áheitasöfnuninni
og 2.000 hlauparar til þátttöku í
hlaupinu.
57 góðgerðarfélög
hafa skráð sig til leiks
Hlaupa-
styrkur í
gagnið
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2010
STANGVEIÐI
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Laxveiðin hefur farið af stað með
látum í sumar. „Þetta er svo gott að
maður þorir varla að trúa á það,“
segir Þorsteinn Þorsteinsson hjá
Landssambandi veiðifélaga
„En árnar sem byrjuðu fyrst,
Norðurá, Þverá og Blanda, þær
hafa allar haldið áfram að gefa mjög
góðan afla og þar hafa verið góðar
göngur. Það finnst mér benda til að
þetta sé ekki bara fiskurinn sem er
snemma á ferðinni í ár, heldur sé
bara svo mikið af honum að ég er að
sannfærast meir og meir um að við
munum eiga von á góðu áfram,“
bætir Þorsteinn við.
Hann segir tvennt hafa komið
sérstaklega á óvart í Blöndu. „Í
fyrsta lagi hversu mikill hluti af
þessum afla er á neðsta svæðinu.
Annað svæðið hefur ekki skilað jafn-
miklu og stundum. En aftur á móti
efsta svæðið, sem er fyrir ofan út-
fallið úr virkjuninni, þó að þar sé
orðið mjög lítið vatn, þá hefur það
verið að gefa furðu mikið, komið
eitthvað yfir sjötíu laxa þar. Þar var
ekki opnað fyrr en um miðjan júní.“
Blanda er spútnik-áin í ár, en
veiðin þar hefur nánast verið fárán-
lega góð. Veiðimaður einn sem var á
neðsta svæðinu um liðna helgi land-
aði á tveimur dögum 52 löxum, öll-
um á flugu. Sá stærsti var 103 senti-
metrar eða um 22 pund, en hann
missti í votta viðurvist tvo aðra tals-
vert stærri.
Þorsteinn segir líka að stundum
sé fullmikið horft í veiðitölurnar án
þess að deila laxafjöldanum í fjölda
stanga. Hann nefnir Flókadalsá sem
dæmi. Hún er komin í 360 laxa á
einum mánuði og þar er aðeins veitt
á þrjár stangir. Það gerir að með-
altali fjóra laxa á dag á hverja
stöng, sem verður að teljast feiki-
lega gott. Sömuleiðis nefnir hann
Búðardalsá sem er komin í 150 laxa
á stuttum tíma, en þar er veitt á
tvær stangir.
Krökkt af bleikju í Fljótunum
En líf veiðimannsins snýst ekki
bara um lax. Fljótaá í Fljótum, ein
besta bleikjuá landsins, hefur verið í
essinu sínu að undanförnu. Veiði-
maður sem var þar í vikunni tjáði
blaðamanni að áin væri alveg stút-
full af fallegri bleikju. „Svo mikið að
í mörgum tilvikum að þegar veitt
var andstreymis með tveimur flug-
um þá voru tvær bleikjur á í einu,“
segir hann. Hann dvaldi við ána í
einn og hálfan dag ásamt konu sinni
og tveimur börnum og þetta gerðist
fimm sinnum. Þrátt fyrir að börnin
fengju mikið að reyna sig við veið-
ina, halda í stangirnar, rota fiskinn
og svo framvegis komu 40 bleikjur
og þrír laxar á land í þessum stutta
túr.
Í Fljótaá er öllum laxi sleppt og
er hann oft seint á ferð þar. Nú er
hins vegar komið talsvert af laxi í
ána. „Einn laxinn hjá okkur tók
pínulítinn vílynribb-kúluhaus, þegar
við vorum að egna fyrir bleikju. Við
höfðum prófað alls konar laxaflugur
sem hreyfðu ekki við honum. En
þegar við köstuðum bleikjuflugunni,
þá tók hann,“ segir veiðimaðurin
fengsæli.
„Er svo gott að maður
þorir varla að trúa á það“
Tíu bleikjur í fimm köstum í Fljótaá í Fljótum, sem er stútfull af fallegum fiski
Morgunblaðið/Golli
Bítur ekki hvað sem er Júlía Þorvaldsdóttir með lax úr Fljótaá. Hann tók agnarsmáa vínylpúpu sem ætluð var í
bleikjukjaft en hafði áður hundsað fjölda laxaflugna sem kastað var til hans. Hann vissi því hvað hann vildi.
Aflahæstu árnar
Þverá/Kjarrá (14)
Blanda (12)
Norðurá (14)
Grímsá/Tunguá (8)
Haffjarðará (6)
Langá (12)
Miðfjarðará (10)
Elliðaár (-)
Ytri-Rangá & Hólsá (18)
Eystri-Rangá (18)
Selá í Vopnafirði (5)
Flókadalsá (3)
Laxá í Kjós (8)
Víðidalsá (6)
Laxá í Leirársveit (6)
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Á sama tíma
í fyrra
668
481
1.045
250
505
495
201
319
519
236
305
254
270
246
176
Staðan 15. júlí 2010
1722
1694
1430
776
743
687
682
576
526
461
400
360
340
328
320
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Fákaflug, hátíð hestamanna, verður
haldið dagana 30. júlí til 2. ágúst nk.
á Vindheimamelum. Eins og flestum
er kunnugt var Landsmóti hesta-
manna á Vindheimamelum frestað í
ár sökum hestaflensunnar, mörgum
til mikillar armæðu. En hestamenn
deyja ekki ráðalausir og hafa hesta-
mannafélögin í Skagafirði ákveðið að
blása til hestamannamóts og
skemmtunar á Vindheimamelum um
verslunarmannahelgina í stað
Landsmóts.
Skemmtileg dagskrá
Hátíðin hefur upp á ýmislegt að
bjóða og verður þar keppt í A- og B-
flokki gæðinga, unglinga og barna-
flokkum. Keppt er í tölti, 100 metra
skeiði og kappreiðum, að ógleymdri
kynbótasýningu. Á staðnum verður
1.000 fermetra tjald og munu hljóm-
sveitir leika fyrir dansi öll kvöldin.
Meðal skemmtikrafta verða Helgi
Björnsson og reiðmenn vindanna,
Hvanndalsbræður, Magni og SSSól.
Auk hljómsveita verður veitingasala,
barnagarður, sölubásar og trúba-
dorar. Ragnar P. Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Fákaflugs, segir að-
stöðuna á Vindheimamelum mjög
góða og yrði það synd ef hún yrði
ekki nýtt.
Hestapest stendur ekki í vegi
„Þó hestaflensan sé í gangi er fólk
komið með fullt af hestum sem það
vill sýna,“ segir Ragnar. „Það var
ákveðið að keyra þetta áfram og
halda flott hestamannamót með
ákveðnum útihátíðarbrag. Þetta er
svona „mini-landsmót“ ef svo má að
orði komast“. Ragnar segir mótið
skapað af Skagfirðingum til að hafa
gaman og hefur fólk gríðarlegan
áhuga á að sýna hrossin sín. „Þetta
var ákveðið í fljótu bragði með stutt-
um fyrirvara en við erum búin að
setja saman glæsilega dagskrá,
einnig fyrir fólkið sem nennir ekki
að sitja alltaf í brekkunni“.
„Við verðum með miða í forsölu á
N1 og kostar 8.000 krónur en frítt er
inn á mótið fyrir 14 ára og yngri.
Mótsgjöld eru í algjöru lágmarki,“
segir hann. Skráning í keppni þarf
að berast fyrir mánudaginn 26. júlí.
Fákaflug kemur í stað Landsmótsins
Mikill fólksfjöldi Myndin sýnir Landsmót hestamanna frá því í fyrra en við-
burðurinn er vinsæll meðal landsmanna, hestamanna sem og annarra.
Skagfirðingar halda stórt hestamannamót um verslunarmannahelgina
Þrátt fyrir hestapest er hellingur af fólki með hesta sem það vill sýna
Ástæða þess að flugmaður varð að
nauðlenda lítilli flugvél á túni á
Skeiðum fyrir réttu ári var sú að
flugvélin varð bensínlaus. Flug-
maðurinn aðgætti ekki hvort nóg
bensín væri á bensíntankinum áður
en hann lagði af stað í flugferðina.
Rannsóknarnefnd flugslysa hefur
nú birt skýrslu um málið.
Í skýrslunni segir að félagi flug-
mannsins hafi sagt honum að nóg
eldsneyti væri á vélinni. Því fylgdi
hann ekki ábendingum í gátlista.
Flaug af stað með
of lítið eldsneyti
Í ágúst ætlar Hlynur Guðmundsson
frjálsíþróttaþjálfari að bjóða öllum
6-12 ára börnum í Mosfellsbæ (og
næsta nágrenni) að koma og reyna
fyrir sér íslenskri glímu.
Gerð hafa verið mörg belti fyrir
þennan aldur og verður Hlynur
með þau á Varmárvelli þriðju-, mið-
viku- og fimmtudaga allan ágúst-
mánuð milli kl.14 og 15.30.
Þátttökugjald fyrir kostnaði er
3.000 kr.
Börnum boðið að
læra glímu