Morgunblaðið - 16.07.2010, Side 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2010
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Allt er á fullu við frágang í Landeyja-
höfn þannig að Herjólfur geti siglt
þangað inn með samgönguráðherra á
þriðjudag og áætlunarsiglingar geti
hafist morguninn eftir. Eins og stað-
an er nú bendir allt til þess að þetta
takist en lítið má út af bregða þar
sem margir verkþættir eru í járnum.
Þótt siglingar hefjist verður verkinu
ekki lokið og áfram unnið næstu vik-
urnar.
„Ég er ánægður, þetta lítur vel út,“
sagði Sigurður Áss Grétarsson, for-
stöðumaður hafnasviðs Siglingastofn-
unar, þegar hann skoðaði stöðu fram-
kvæmda við Landeyjahöfn, enn einu
sinni. „Verktakar hafa staðið sig ein-
staklega vel, undir þungri tímapressu
og ýmsum erfiðleikum, meðal annars
vegna eldgossins,“ segir Sigurður
Áss. Hann nefnir að bryggjan sé góð
og falleg smíði, grjótinu vel raðað í
garðana og einnig að vel hafi tekist til
við smíði aðstöðuhússins við höfnina.
Þá er hann ánægður með framlag
Landgræðslunnar sem annast hefur
uppgræðslu við höfnina og veginn
þangað.
Ekki er algengt að tíma- og kostn-
aðaráætlanir við slíkar stór-
framkvæmdir standist, ekki síst í því
umróti sem verið hefur í efnahagslíf-
inu. Frá upphafi var áætlað að taka
höfnina í notkun í þessum mánuði.
Um tíma var stefnt að 1. júlí en frá-
tafir vegna eldgossins sáu til þess að
það markmið náðist ekki.
Kostnaður við höfnina og tilheyr-
andi mannvirki verður um 4 millj-
arðar króna, að sögn Sigurðar Áss, og
er í samræmi við kostnaðaráætlun
sem gerð var 2007.
Á hafnlausri strönd
Landeyjahöfn er um margt sér-
stök. Hún er byggð út í sjó við svart-
an sand hafnlausrar suðurstrandar
landsins. Hún er innan við hlið í sand-
rifinu, í skjóli Heimaeyjar. Mark-
arfljót ber stöðugt fram mikið efni
sem berst meðfram ströndinni. Búist
er við að dæla þurfi efni upp úr höfn-
inni og innsiglingu hennar á næstu
árum þótt höfnin sé þannig hönnuð
að náttúruöflin sjái að mestu um það
verk.
Varnargarðarnir standa 600 til 700
metra út í sjó. Sigurður Áss vekur at-
hygli á að höfnin hafi verið flutt utar, í
raun út í sjó, til þess losna við sand-
fokið. Byggja þurfti varnargarðana
áður en farið var að huga að bryggju
og aðstöðu við höfnina.
Grjótið var tekið úr námu í Hamra-
garðaheiði fyrir ofan Seljalandsfoss
og selflutt niður að hafnarsvæðinu.
Suðurverk hefur unnið að því verki í
tæp tvö ár og að raða grjótinu. Jafn-
framt hefur verið unnið að vegagerð
og í vetur og vor hefur bryggjan verið
steypt og innri hafnargarðar gerðir.
Háaberg byggði bryggjuna sem und-
irverktaki Suðurverks.
Í gær fóru búkollurnar með síðustu
grjóthnullungana niður að höfninni.
Ekki var seinna vænna því Suð-
urverksmenn voru byrjaðir á því að
undirbúa veginn fyrir lagningu var-
anlegs slitlags sem á að ljúka áður en
gestir aka niður að höfninni næst-
komandi þriðjudag. Seinna slitlagið
verður sett yfir síðar. Þá er töluverð
vinna eftir við að ljúka vestari varn-
argarðinum og ganga frá fleiri görð-
um. Helgi S. Gunnarsson, yfirverk-
stjóri hjá Suðurverki, segir að unnið
verði áfram að þessu verki í sumar.
Eldgos og
allskonar veður
„Þetta hefur verið frábær tími. Við
höfum fengið allskonar veður og frá-
tafir hafa verið vegna eldgossins en
þetta er að hafast,“ segir Helgi en
hann hefur unnið við hafnargerðina
frá því í byrjun september 2008 að
Suðurverk kom sér upp aðstöðu á
svæðinu. „Ég hugsa ekki þannig, vil
klára mitt verkefni og hugsa svo ekki
meira um það,“ segir Helgi þegar
hann er spurður hvort hann sjái ekki
eftir því að þurfa brátt að hverfa frá
Landeyjahöfn.
Mikill sprettur hefur verið á starfs-
mönnum SÁ verklausna ehf. sem
Morgunblaðið/Eggert
Landgangur Farþegar munu ganga um borð í Herjólf um yfirbyggðan landgang af annarri hæð farþegahússins. Fyrsti hluti gangsins hífður á sinn stað.
Opnað fyrir Eyjarnar
Einstök framkvæmd í Bakkafjöru, Rangárþingi eystra, er brátt í höfn Hönnuðir Landeyjahafn-
ar glímdu í upphafi við vantrú á hugmyndinni Þeir segjast hafa hlustað á efasemdaraddir og tekið
tillit til þeirra og það hafi gert mannvirkið betra Höfnin verður tekin í notkun nk. þriðjudag
Umferð mun aukast um Suður-
landsveg þegar farþegar Herjólfs
þurfa að fara í Landeyjahöfn í stað
Þorlákshafnar. Þjónustufyrirtæki á
Hvolsvelli og víðar á leiðinni hafa
verið að búa í haginn fyrir þessa
breytingu. Þannig hefur söluskál-
inn Hlíðarendi verið stækkaður og
endurbættur á ýmsa vegu.
„Við höfum aðeins verið að
stækka og bæta tækjakostinn. Við
getum annað miklum fjölda á
stuttum tíma,“ segir Albert Ás-
laugsson sem rekur veitingastað-
inn Gallery pizza á Hvolsvelli
ásamt Björk Berglind Gylfadóttur.
„Umferðin í gegnum Hvolsvöll mun
aukast og þetta er upplyfting fyrir
okkur. Við vonum að það auki við-
skiptin,“ segir Albert.
„Þetta auðveldar einnig aðgengi
okkar að Vestmannaeyjum, nátt-
úru þeirra og mannlífi og það verð-
ur betra fyrir Vestmannaeyinga að
komast í land,“ segir Albert og
nefnir að hann muni hafa fleiri
tækifæri til að heimsækja systur
sína í Eyjum.
Upplyfting fyrir Hvolsvöll
UMFERÐ EYKST UM SUÐURLANDSVEG
Mikil tækifæri skapast í ferðaþjón-
ustu í Vestmannaeyjum með betri
samgöngum. Eyjamenn hafa verið
að búa sig undir að grípa þau. Meðal
annars hafa á síðustu mánuðum ver-
ið opnuð fimm eða sex ný kaffihús
og veitingahús og keyptur hefur
verið stór ferðaþjónustubátur til
bæjarins.
„Við höfum lengi verið að hugsa
okkur til hreyfings og fara niður í
miðbæ. Við sáum að miðbæjarkjarn-
inn væri að þéttast, við værum loks-
ins að fá miðbæ með breytingum á
samgöngum í kjölfar Land-
eyjahafnar, þannig að tímasetningin
reyndist nákvæmlega rétt,“ segir
Helga Jónsdóttir sem opnað hefur
Vinaminni kaffihús í tengslum við
flutning á bakaríi Arnórs bakara í
nýtt húsnæði.
Arnór Hermannsson bak-
arameistari og Helga hafa lengi rek-
ið lítið bakarí í úthverfi Vest-
mannaeyjabæjar. Húsnæðið var
löngu sprungið utan af rekstrinum
og þau tóku skrefið nú á dögunum
með því að opna bakarí í versl-
unarmiðstöð í miðbænum og kaffi-
húsið Vinaminni við hliðina.
„Ég hef átt mér þann draum í fjór-
tán ár að opna kaffihús sem tengt
væri byggðinni sem fór undir hraun
og var búinn að skipuleggja það fyr-
ir tíu árum hvernig það ætti að
vera,“ segir Helga. Hún hefur safn-
að heimildum um húsin sem hraunið
rann yfir í Heimaeyjagosinu og fólk-
ið sem þar bjó og ljósmyndum og
notar það í nýja kaffihúsinu. Þar
segir hvert borð sögu síns húss, stór-
ar ljósmyndir prýða veggina og
meira að segja bollarnir sem kaffið
er drukkið úr tengjast þessari sögu.
„Það er gífurleg breyting að fá
fjórar ferðir á dag og það gildir í
báðar áttir. Við fáum það ferðafrelsi
sem við höfum þráð í öll þessi ár.
Fólkið á fastalandinu fær einnig
frelsi til að heimsækja okkur.“
Hún segir þó að rekstur kaffihúss-
ins byggist ekki á væntingum um
aukinn ferðamannastraum. „Við
urðum að gæta okkar, að hafa raun-
hæfar áætlanir og miðum þær fyrst
og fremst við að þjóna Vest-
mannaeyingum. En við fögnum líka
hverjum nýjum ferðamanni sem
hingað kemur,“ segir Helga Jóns-
dóttir í Vinaminni.
Fögnum ferðafólkinu
Vinaminni Fjöldi nýrra kaffihúsa hefur opnað í Vestmannaeyjum.
Fimm eða sex ný kaffihús og veitingahús hafa verið
opnuð í Eyjum Hugur í fólki vegna bættra samgangna