Morgunblaðið - 16.07.2010, Page 19
Fréttir 19ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2010
Svo kann að fara að innan nokkurra
ára verði ekki óalgengt að bresk
ungmenni haldi út á vinnumark-
aðinn eftir tveggja ára háskólanám í
stað þriggja eins og verið hefur.
Jafnframt gæti kostnaðarþátttaka
nemenda og foreldra þeirra aukist í
formi hærri skólagjalda, ellegar í
formi sérstaks skólaskatts sem mið-
aður verður við tekjur eftir útskrift.
Skjótt skipast veður í lofti
Þessi framtíðarsýn hefði líklega
þótt óhugsandi fyrir nokkrum árum
á meðan allt lék í lyndi og efnahagur
Bretlands óx hröðum skrefum.
Bretar standa nú hins vegar
frammi fyrir nýjum veruleika sem
Vince Cable, við-
skiptaráðherra
Bretlands og
áhrifamaður í
flokki Frjáls-
lyndra demó-
krata, samstarfs-
flokki Íhalds-
flokksins í
ríkisstjórn, telur
að kalli á róttæk-
ar breytingar á háskólakerfinu og
fjármögnun þess.
Cable lítur svo á að nemendur
muni fagna möguleikanum á að geta
lokið BA- eða BS-gráðu úr háskóla á
tveimur árum með því að fara hrað-
ar yfir og nýta sumarleyfin betur en
þeir sem þurfa nú þrjú ár í námið.
Þá geti aðrir farið þá leið að ljúka
námi á lengri tíma og eigi þess þann-
ig kost að greiða fyrir áfanga hverr-
ar annar með hlutastarfi, í stað þess
að taka lán til að greiða fyrir þriggja
ára nám utan vinnumarkaðarins.
Leggur Cable áherslu á að háskól-
arnir komist ekki hjá niðurskurði.
Skólarnir yrðu þrælakistur
Rætt er við Sally Hunt, sem fer
fyrir samtökum starfsfólks háskóla í
Bretlandi, á vef Daily Telegraph en
hún telur að með tveggja ára há-
skólanámi yrði skólunum breytt í
þrælabúðir þar sem kennarar hefðu
minni tíma aflögu fyrir rannsóknir.
Styttra nám og
hærri skólagjöld
Viðskiptaráðherra Bretlands telur háskólanám of dýrt
Vince Cable
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fylgishrun Demókrataflokksins í
kosningunum til efri deildar jap-
anska þingsins um síðustu helgi má
öðrum þræði rekja til hneykslismála
í kringum Yukio Hatoyama, fyrrver-
andi forsætisráðherra flokksins,
sem hrökklaðist frá völdum eftir að
fjölmiðlar greindu frá ólögmætum
styrkjum í kosningasjóð hans.
Þetta er mat Kristínar Ingvars-
dóttur, dr. í félagsvísindum frá Hi-
totsubashi-háskóla í Tókýó, sem tel-
ur vægi hugmynda demókrata um
hækkun sölu-
skatts úr 5% í
10%, til að standa
undir velferð,
hafa verið ofmet-
ið í fréttum.
„Nýlegar skoð-
anakannir sýna
mjög jafnt hlut-
fall þeirra sem
eru með og á móti
skattahækk-
unum. Það er orð-
inn mun meiri skilningur á þörfinni á
að afla ríkinu tekna með sköttum en
áður var. Sú túlkun á kosningunum
að þær endurspegli aðeins óánægju
japanskra kjósenda með fyrirhug-
aðar skattahækkanir er að mínu
mati of einhliða,“ segir Kristín sem
bendir á að hækkandi meðalaldur
þjóðarinnar og stigvaxandi útgjöld
til velferðarmála muni fyrr en síðar
kalla á róttækar aðgerðir.
Stinga höfðinu í sandinn
Kristínu, sem fylgist vel með jap-
önsku þjóðlífi og stjórnmálum,
finnst japanskir kjósendur hafa sýnt
ákveðna tilhneigingu til að stinga
höfðinu í sandinn fremur en að horf-
ast í augu við vandann.
„Það eru engar einfaldar lausnir á
stórum og langvarandi vandamálum
eins og Japanir eiga við að etja. Það
gæti þurft að ráðast í sársaukafullar
aðgerðir. Það verða engar einfaldar
töfralausnir. Kjósendur eru hins
vegar ekki komnir í þennan gír, þótt
margir átti sig á vandamálunum.“
Flokksbróðir Hatoyama, Naoto
Kan, tók við forsætisráðherraem-
bættinu fyrr í sumar, og telur Krist-
ín að hann hafi ekki mikinn tíma.
„Japanskir kjósendur eru oft
óþolinmóðir og eru kannski ósáttir
við Kan sem stendur, en það vinnur
með honum að Japanir eru heldur
ekki sérstaklega hlynntir því að
skipta strax aftur um forsætisráð-
herra.
Kan er fimmti forsætisráðherra
landsins á fjórum árum og margir
óttast hvaða áhrif tíð
forsætisráðherraskipti muni hafa á
ímynd landsins.
Mín tilfinning er sú að Kan fái
hálft til eitt ár til að sýna hvað í hon-
um býr. Róðurinn verður hins vegar
þungur. Hann stendur frammi fyrir
risavöxnu verkefni og getur ekki
einu sinni reitt sig á stuðning flokks-
bræðra sinna sem stendur.“
Reyna að slá
uppskurðin-
um á frest
Japana bíða sársaukafullar aðgerðir
Reuters
Áhyggjuleysið að baki? Ungu kyn-
slóðarinnar í Japan bíða vandamál.
Iðnveldi
» Japan er annað stærsta
hagkerfi heims.
» Íbúafjöldinn er um 130 millj-
ónir og fer meðalaldurinn hratt
hækkandi.
» Frjálslyndi lýðræðisflokkur-
inn hefur haft tögl og hagldir í
stjórnmálum síðustu áratugi.
Kristín
Ingvarsdóttir
Þremur milljónum vinnustunda og
óteljandi heilabrotum frá því hönnun
hennar hófst var hulunni loks svipt
af orrustuþotunni Taranis í flugskýli
BAE systems í Lancashire í vikunni.
Taranis gæti heitið Þór á íslensku
enda nefnd eftir þrumuguð Kelta.
Þotan virðist við fyrstu sýn
smærri útgáfa af F-117 Nighthawk,
orrustuþotunni sem var illgreinan-
leg á ratsjám.
Þegar nánar er að gáð má sjá að
engir gluggar eru í þotunni, aðeins
loftinntak í nefinu, ef svo má kalla.
Þarf ekki flugmann
Skýringin er einföld: Orrustu-
þotan Taranis þarfnast ekki flug-
manns. Hún flýgur sjálf og getur
varist árásum óvinaþotna í loftbar-
dögum, rétt eins og ef um dæmi-
gerða orrustuþotu væri að ræða.
Það er vopnarisinn BAE systems,
annar mesti vopnaframleiðandi
heims, breska varnarmálaráðu-
neytið, Rolls-Royce flugvélaverk-
smiðjurnar, og fyrirtækin QinetiQ
og GE Aviation Systems, dóttur-
félag General Electric, sem smíða
þotuna í sameiningu.
Fyrirtækin skipta með sér verk-
um og má nefna að Rolls-Royce sér
um hreyflana en BAE Systems og
QinetiQ um stýrikerfið, þ.e.a.s. hug-
búnaðinn sem stýrir þotunni.
Stórt skref fram á við?
Ómönnuð loftför eru þegar notuð í
hernaði og er njósnavélin MQ-1
Predator þar ef til vill þekktust en
hún er búin Hellfire-flugskeytum
sem grandað hafa fjölda fólks, tali-
bönum sem og óbreyttum borg-
urum, í Afganistan og Pakistan.
Ljóst er að bresk hermálayfirvöld
eru spennt fyrir möguleikum Tar-
anis og komst Drayson lávarður,
sem kemur að verkefninu, svo að
orði að þotan gæti sómt sér vel í
mynd um njósnarann James Bond.
Ætla má að ekki deili allir hrifn-
ingunni enda vekur notkun tölvu-
búnaðar í hernaði ýmsar spurningar.
Ómönnuð og eins og
fljúgandi furðuhlutur
Brýtur blað Taranis er háþróuð og mun geta varist óvinaþotum.
Bretar afhjúpa
orrustuþotu
Ómannaða orrustuþotan Taranis
Kostnaður við verkefnið
Áætluð þyngd
Drægni
Þrýstikraftur hreyfla (áætlun)
Jómfrúarflugið (að því er stefnt er að)
26,5 milljarðar króna
8 tonn
Getur flogið heimsálfa á milli
2.940 kíló
2011
HULIÐSÞOTA ÞRUMUGUÐSINS
Heimild: Byggt á fréttaskeytum. Stærðirnar eru áætlaðar.
2m
4m
10m
Vopnarisinn BAE Systems svipti í vikunni hulunni af Taranis, ómannaðri njósna- og
sprengjuþotu sem getur flogið heimsálfa á milli án þess að vekja eftirtekt óvinarins.
Þotan er illgreinanleg á ratsjám og á því að komast óséð framhjá flugeftirlitskerfum.
Loft-
inntakið
Reiknað er með tveimur vopnahólfum,
einu á hvorum væng þotunnar
Rolls-Royce
smíðar
hreyflanna
Hann fer sér að engu óðslega skransafnarinn í Kolkata,
einni stærstu borg Indlands, þar sem hann safnar safn-
an gömlum, ryðguðum hjólum og öðru járnarusli.
Járnið sem hann safnar saman færir honum rúpíur í
hönd enda er næg eftirspurn eftir brotajárni á heild-
sölumarkaðnum í stórborginni.
Endurvinnslan leggur stáliðnaðinum á Indlandi til
hráefni en samanlögð járnframleiðslan í fyrra nam 226
milljónum tonna, samanborið við 215 milljónir tonna
árið áður. Um helmingur járnsins er fluttur til Kína.
Þar er indverska járnið hert í stálverksmiðjum sem
ganga dag og nótt til að anna eftirspurn verksmiðju-
þyrpinganna. Kannski fer það í kínverska bíla.
Skranið er því vitnisburður um vaxandi auðlegð.
Reuters
Járnhjól á heildsölu