Morgunblaðið - 16.07.2010, Síða 30
Stórfréttir
í tölvupósti
30 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ ER
SVO HEITT
PEYSA ÚR
KLÖKUM!
GETUR ÞAÐ VERIÐ? ER
JÓN AÐ VERÐA GÁFAÐRI?
GUÐ
MINN
GÓÐUR!
AUÐVITAÐ EKKI!ERTU STRAX BÚINN AÐ
FESTA FLUGDREKANN
ÞINN UPPI Í TRÉ?
HANN HEFUR VERIÐ FASTUR
HÉRNA FRÁ ÞVÍ Í FYRRA
VILTU HJÁLPA
MÉR AÐ KLÁRA
ÞESSA TUNNU? SJÁLFSAGT!
ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ
HÉÐAN Í FRÁ BYRJA ÉG
EKKI Á NEINU VERKI SEM
ÉG ÆTLA EKKI AÐ KLÁRA!
FÁTT BETRA
EN NÝLAGAÐ
KÓLUMBÍSKT
KAFFI Á
MORGNANNA
AF
HVERJU
FÉKKSTU
ÞÉR TE?
SKIPTIR
EKKI MÁLI
ÞÚ VEIST
AÐ ÞAÐ ER
MIKIÐ UM
SKIPULAGÐA-
GLÆPASTARFSEMI
Í KÓLUMBÍU...
KANNSKI VAR FÓLK
EKKI AÐ GRÍNAST
ÞEGAR ÞAÐ SAGÐI AÐ
ÞAÐ VÆRI PARTUR
AF JUAN VALDEZ
Í HVERJUM BOLLA
LALLI, ÞETTA
ER BARA ANSI
TÖFF!
FYRSTU
TÓNLEIKARNIR
OKKAR Í
HEIMAHÚSI
ÞAÐ ER ALLT
ÖÐRUVÍSI AÐ SPILA
Í STOFUNNI HJÁ
EINHVERJUM! MAÐUR
NÆR MEIRI NÁND VIÐ
ÁHORFENDURNA
ÉG HELD
ÞAÐ SÉ RÉTT
HJÁ ÞÉR
AFSAKIÐ...
ER ÉG Í
SÆTINU ÞÍNU?
SKÓLINN
BYRJAR
AFTUR Á
MÁNUDAGINN
VONANDI
TEKST MÉR AÐ
FÁ PÍNU PENING
FYRIR AÐ TAKA
MYNDIR FYRIR
DAILY BUGLE
ÆTLI ÉG EIGI
NOKKURN TÍMANN
EFTIR AÐ LIFA
EÐLILEGU LÍFI Í
STAÐ ÞESS AÐ
VERA OFURHETJA
AÐ AUKASTARFI?
HVAÐ ER
ÉG AÐ
HUGSA?
HVERNIG GETUR
MAÐUR SEM ER
ELTUR BÆÐI AF
LÖGREGLUNNI OG
GLÆPAMÖNNUM
LIFAÐ EÐLILEGU LÍFI?
Lopapeysa tapaðist
Í gærmorgun varð ég
fyrir því óláni að fal-
lega lopapeysan mín
fauk af hjólinu mínu
þegar ég var á leið til
vinnu eftir hjólreiða-
stígnum sem liggur frá
Ægisíðunni í Kársnesið
í Kópavogi. Þetta er
nett lopapeysa með
kvensniði, grá og
ljósmórauð og með ein-
kennandi hvítri angóru
sem prjónuð er inn í ís-
lenska mynstrið. Ég
bið heiðarlegan finn-
anda að vera svo vin-
samlegan að hringja í síma 896-3351
eða 552-0375 og heiti ég fundar-
launum.
Þórhildur Elín Elínardóttir.
Stjörnugjöf til
Icelandair
Það er ekki á hverjum degi sem
hægt er að segja „þvílík fyrir-
myndarþjónusta“. Því er nú ánægð-
ur viðskiptavinur að láta heyra frá
sér.
Hjá Icelandair starfar kona sem
heitir Stella Guðmundsdóttir, veit
engin önnur deili á henni, hef aldrei
séð hana, aðeins átt samskipti við
hana í netpósti. Þessi ágæta kona
fær margar stjörnur fyrir sína miklu
þjónustulund sem er ekki á hverju
strái í þjóðfélaginu. Hún hefur
nokkrum sinnum að-
stoðað mig við kaup
farseðla á netinu sem
hefur stundum verið
smábasl að eiga við.
Nýlega stóð til að
kaupa farmiða hjá Ice-
landair. Þá gekk ekki
alveg upp að ljúka því
máli svo mér varð sam-
stundis hugsað til
Stellu og sendi henni
netpóst. Svar kom til
baka, hún var í sum-
arfríi. Nú voru góð ráð
dýr. Einhvern veginn
tókst mér að ljúka far-
miðakaupunum. En
viti menn, kemur ekki
svarpóstur frá Stellu þar sem hún
spyr hvort þetta hafi gengið hjá mér.
Ég kvað svo vera og þakkaði vel fyr-
ir mig. Hvert það fyrirtæki sem hef-
ur svona starfsmann innan borðs er
heppið. Því segi ég 4 stjörnur til Ice-
landair fyrir þessa fínu þjónustu, en
Stella fær hrósið.
Ánægður viðskiptavinur.
Peysa tapaðist í
Húsdýragarðinum
Sjö ára stúlka tapaði nýrri peysu í
Húsdýragarðinum 14. júlí síðastlið-
inn. Peysan er vínrauð og merkt
Sunna. Skilvís finnandi vinsamlega
hringi í síma 566-6848.
Ást er…
… þegar hann sendir þér
blóm í vinnuna.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Opið kl. 9-16, vinnu-
stofa opin, hádegsimatur. Bingó kl.
13.30.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist föstudaginn 16. júlí kl 20.30.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Síðustu forvöð að skrá sig í há-
lendisferðina 10. 11. ágúst, er mánudag-
inn 19. júlí. Sjá nánar á www.febk.is eða í
félagsmiðstöðvunum Gjábakka og Gull-
smára. Uppl. í síma 895-0200.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, matur.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16. Böðun
fyrir hádegi, hádegismatur, bíó kl. 13.30,
kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50, gönuhlaup kl. 9, gáfumannakaffi kl.
15. Listasmiðjan opin. Hádegismatur alla
virka daga. Sími 411-2790.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10, leikfimi kl. 10.30, opið hús
brids/vist kl. 13, veitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, hádegismatur og kaffi,
bingó kl. 14.
Gunnar Kr. Sigurjónsson sendiVísnahorninu skemmtilega
kveðju með vísum frá föðurafa sín-
um, en það var hagyrðingurinn Vil-
hjálmur Hinrik Ívarsson:
„Hann var hreppstjóri, smiður og
refaskytta í Höfnum á Reykjanes-
skaga, faðir m.a. Vilhjálms og Ellyj-
ar. Ég hef verið að safna þeim sam-
an og er kominn með um eða yfir
300 vísur í heildina, sem ég ætla að
setja saman í bók, svo þær glatist
ekki. Sumar vísurnar hafa hvergi
sést á blaði.
Eftir að hafa horft á stjórn-
málamenn karpa í sjónvarpinu,
varð honum að orði er hann slökkti
á tækinu:
Vantar snilli margan mann,
mengaðir spillingunni.
En oft má grilla í óþverrann
undir gyllingunni.
Einhverju sinni var hann úti að
slá:
Ljárinn skárar foldu frjóa,
fellur smári á bleika rein.
Daggartár á grösum glóa,
glaðar bárur faðma stein.
Þegar pumpu-kaffikannan í eld-
húsinu tæmdist eitt sinn, kvað
hann:
Könnudræsan gaf ei gróm,
gripin hæsi og nöldurs óm,
einnig hvæsir hrygluhljóm,
hátt – og fnæsir alveg tóm.
Framan við sjónvarpið fæddist
þessi vísa:
Sjónvarpinu sat hann hjá,
sitthvað stóð til boða.
Augnalokin innanfrá
ætlar hann svo að skoða.
Og þegar árin voru farin að fær-
ast yfir:
Áður var mér gatan greið,
glæsta staði og lendur kanna,
en nú er orðin lengsta leið
að labba á milli herbergjanna.“
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af vísum Vilhjálms