Morgunblaðið - 16.07.2010, Síða 34
AF LEIKURUM
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Þegar ég frétti að myndin In-ception væri á leiðinni í bíómeð Leonardo DiCaprio í
aðalhlutverki var ég ekki lengi að
kíkja inn á kvikmyndavefinn
IMDB. Þetta hlaut að vera hörku-
mynd, þar sem DiCaprio er meist-
ari meistaranna þegar kemur að
hlutverkavali. Leikarinn hefur
nefnilega ekki tekið feilspor síðan
hann birtist í myndinni The Bas-
ketball Diaries árið 1995. Hún var
jafnframt fyrsta myndin sem ég sá
með honum og kæmi það mér ekki
á óvart þó svo að sigurganga hans
næði lengra aftur í tímann.
Ég heillaðist af DiCaprio þeg-ar Romeo+Juliet kom út, eins
og flestar stelpur sem ég þekki. Ég
varð svo ástfangin upp fyrir haus
þegar hann túlkaði hinn ógleym-
anlega Jack Dawson í Titanic. Ég
fór þrisvar á þá mynd í bíó og grét
jafn mikið, ef ekki meira, í hvert
skipti sem hann hvarf niður á hafs-
botninn (og geri enn). Þetta var
semsagt tímabilið sem ég áleit Di-
Caprio vera svokallaðan „pretty
boy“-leikara.
Það var ekki fyrr en í Gangs
of New York sem ég fór að gefa
leikhæfileikum hans gaum, enda
orðin eilítið eldri og hætt að láta
ástina gera mig staurblinda.
Næstu ár tók hver stórmyndin við
af annarri; Catch Me If You Can,
The Aviator, The Departed, Blood
Diamond, Body of Lies, Revolu-
tionary Road og Shutter Island.
Hvernig fer maðurinn að þessu?
Ætli hann liggi heima með
mömmu sinni og fari vandlega yfir
hvert einasta handrit sem berst
honum? (Við skulum ekkert velta
því fyrir okkur hvort að það sé
einhver kærasta sem gegnir því
hjálparhelluhlutverki, því það vill
engin kona heyra).
Ég man að hann bætti heift-arlega á sig á tímabili … Því
tímabili sem ég uppgötvaði leik-
hæfileika hans. Ætli það hafi verið
með ráðum gert? Hann hefur ef-
laust tekið eftir þeirri velgengni
sem leikarar njóta eftir að þeir
bæta á sig fyrir hlutverk; þar má
nefna Tom Hanks (Cast Away),
Charlize Theron (Monster), Robert
DeNiro (Raging Bull), Russell
Crowe (Body of Lies), George
Clooney, (Syriana) og meistari Syl-
vester Stallone (Copland).
Þó svo að DiCaprio hafi ekki
endilega bætt á sig fyrir hlutverk í
kvikmynd sendi hann allavega
framleiðendum þau skilaboð að
sæti leikarinn úr Titanic væri
reiðubúinn að kasta ímynd sinni á
glæ.
Leonardo DiCaprio-innsæiðmitt hefur ekki brugðist mér
áður og brást mér ekki í þetta
sinn. Nýjasta mynd hans lofar
góðu. Hún hefur þegar hlotið 9,6
stjörnur af 10 mögulegum á IMDB,
jákvæðum athugasemdum rignir
inn frá notendum síðunnar og
kvikmyndagagnrýnendur halda
vart vatni yfir henni.
Það kemur ef til vill ekki á
óvart þar sem leikstjóri mynd-
arinnar er Christopher Nolan, sá
hinn sami og leikstýrði The Dark
Knight og Batman Begins. Ég
vona svo sannarlega að DiCaprio
eigi eftir að ríghalda í þessa náð-
argáfu sína og færa okkur fleiri
stórmyndir í framtíðinni.
DiCaprio klífur upp metorðastigann
» Leonardo DiCap-rio-innsæið mitt hef-
ur ekki brugðist mér áð-
ur og brást mér ekki í
þetta sinn. Nýjasta
mynd hans lofar góðu
Hugsi Nýjustu mynd DiCaprios, Inception, hefur verið lýst sem James Bond í bland við The Matrix.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2010
Predators kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára Shrek 4 3D enskt tal kl. 3:30 - 5:45 - 8 LEYFÐ
Predators kl. 8 - 10:20 LÚXUS Knight and Day kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Shrek 4 3D íslenskt tal kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ Killers kl. 10:30 B.i. 12 ára
Shrek 4 2D íslenskt tal kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ Grown Ups kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Sími 462 3500
Predators kl. 8 - 10 (KRAFTSÝNING) B.i. 16 ára
Knight and Day kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
Killers kl. 6 B.i. 12 ára
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
, SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
Óttinn rís á ný...
Í þessum svakalega spennutrylli
- News of the World
- Timeout London
- Boston Globe
Þau eru hættulegustu morðingjar jarðar
En þetta er ekki jörðin okkar...
Bráðfyndin og hjartnæm frá
byrjun til enda. Lang besta
Shrek myndin og það eru
engar ýkjur.
- Boxoffice Magazine
Með lokakaflanum af
Shrek tekst þeim að
finna töfrana aftur.
- Empire
Þrívíddin er ótrúlega
mögnuð.
- New York Daily News
FRÁBÆR GRÍNMYND
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA!
SÝND Í
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti teng