Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 2
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR2
RÚSSLAND, AP Mikhaíl Gorbatsjov, síðasti leiðtogi
Sovétríkjanna, segir að stjórnvöld eigi að ógilda
niðurstöður þingkosninganna á sunnudag og efna
til nýrra kosninga.
„Æ fleiri eru farnir að trúa því að úrslit kosn-
inganna hafi ekki verið sanngjörn,“ sagði Gorbat-
sjov. „Ég tel að verði skoðun almennings hunsuð
varpi það rýrð á stjórnvöld og auki á óstöðugleika í
landinu.“
Sameinað Rússland, stjórnarflokkur þeirra
Vladimírs Pútín forsætisráðherra og Dimitrís
Medvedev forseta, hlaut tæp 50 prósent atkvæða og
heldur því naumum meirihluta þrátt fyrir að hafa
tapað miklu fylgi frá því fyrir fjórum árum þegar
hann fékk 64 prósent.
Pútín gerir sér vonir um sigur í forsetakosningum
í mars en útreið flokks hans í kosningunum virð-
ist hafa vakið almenning til vitundar um mögu-
leika til þess að hafa áhrif á stjórnmálin í landinu í
kosningum.
Þúsundir Rússa hafa haldið út á götur Moskvu-
borgar í kjölfar kosninganna til að lýsa bæði andúð
sinni á Pútín og efasemdum um gildi kosninganna.
Lögregla hefur tekið hart á mótmælendunum og
handtekið hundruð manna.
Alþjóðlegt kosningaeftirlit leiddi í ljós að ýmis
misbrestur varð á framkvæmd kosninganna og
talningu atkvæða. - gb
Gorbatsjov segir réttast að efnt verði til nýrra kosninga í Rússlandi:
Þrýstingur vaxandi á Pútín
PÚTÍN SKRÁIR FRAMBOÐ SITT Vladimír Pútín forsætisráðherra
skráði í gær opinberlega framboð sitt til forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sigurður, er þá ekkert svínarí
hjá sauðfjárbændum?
„Nei, bara saklaus lömb.“
Ríkisendurskoðun hefur komist að
þeirri niðurstöðu að sauðfjárbændur
hafi ekki svindlað á greiðslumarks-
kerfi hins opinbera. Sigurður Eyþórsson
er framkvæmdastjóri Landssamtaka
sauðfjárbænda.
LÖGREGLUMÁL Vitni voru yfir-
heyrð í gær í kjölfar nauðgun-
arkæru sem átján ára stúlka
hefur lagt fram á hendur Agli
Einarssyni og unnustu hans.
Lögreglan leitar að leigubíl-
stjóra sem hún þarf að hafa tal
af vegna málsins. Hann hafði
ekki gefið sig fram síðdegis í
gær, þrátt fyrir tilmæli lögreglu
þar að lútandi. Vitnisburður
bílstjórans er talinn geta haft
mikla þýðingu.
Bílstjórinn var að störfum í
miðborginni aðfaranótt föstu-
dagsins 25. nóvember síðastlið-
inn og ók Agli, unnustu hans og
stúlkunni frá skemmtistaðnum
Austur í miðbænum í Kóra-
hverfi í Kópavogi.
Þá biður lögregla alla þá sem
geta veitt upplýsingar um leigu-
bílstjórann að hafa samband í
síma 444-1000 eða senda bréf á
netfangið abending@lrh.is.
- jss
Leigubílstjórinn ófundinn:
Vitni voru
yfirheyrð í gær
DANMÖRK Þingmenn Venstre
og Danska þjóðarflokksins eru
ósáttir við fyrirhugað reykinga-
bann á skrifstofum þingsins.
Jafnaðarmaðurinn og þingfor-
setinn Mogens Lykketoft hefur
boðað að undanþága sem þing-
menn nutu frá tóbaksvarnar-
lögum árið 2007 verði afnumin.
Reykingar þingmanna á skrif-
stofum sínum hafi í för með sér
óbeinar reykingar starfsfólks
þingsins og það sé ekki líðandi.
Athygli vekur að meðal þeirra
sem tala fyrir áframhaldandi
reykingum er Bertel Harder, sem
var heilbrigðisráðherra þar til
fyrir skemmstu. - þj
Ósætti á Kristjánsborg:
Tekist á um
reykingabann
KRISTJÁNSBORG Þingmenn Venstre og
Danska þjóðarflokksins vilja fá að reykja
áfram á skrifstofum þingsins.
DÓMSMÁL Greiðslum upp á 150
milljónir, sem runnu frá Lands-
bankanum til sjóðs á vegum
Íslenskra verðbréfa 6. október
2008, verður ekki rift þrátt fyrir
kröfu slitastjórnar bankans þar
um. Héraðsdómur Norðurlands
eystra kvað upp svofelldan dóm í
gær.
Um var að ræða tvo víxla,
eða skammtímaskuldabréf, sem
Landsbankinn gaf út og sjóðurinn
keypti. Þar með skuldaði bankinn
sjóðnum 150 milljónir. Skilmál-
ar víxlanna kváðu á um að ekki
mætti greiða þá upp fyrir skráð-
an gjalddaga, sem var 5. nóvem-
ber 2008.
Hinn 3. októ-
ber, þremur
dögum fyrir
setningu neyð-
arlaganna, setti
sjóðurinn víxl-
ana á mark-
að með það að
markmiði að
selja þá, sem
var heimi lt .
Landsbankinn
keypti bréfin og gengu þau kaup
í gegn 6. október, daginn sem
neyðarlögin voru sett.
Slitastjórn bankans telur hins
vegar að með þessu hafi skuld-
in í raun verið greidd en greiðsl-
an dulbúin sem kaup á víxlun-
um. Uppgreiðslan var sem áður
segir óheimil fyrir 5. nóvember.
Þar með hafi peningar runnið út
úr bankanum á kostnað annarra
kröfuhafa.
Á þetta fellst Þorsteinn Davíðs-
son héraðsdómari hins vegar ekki.
Þótt líta verði svo á að með því að
kaupa víxil sem bankinn gaf sjálfur
út hafi hann í raun greitt skuldina
sé ekkert komið fram í málinu um
að tilgangurinn hafi verið sá að
sjóður Íslenskra verðbréfa hagn-
aðist á kostnað annarra kröfuhafa.
Þá megi vera ljóst að hefði
bankinn að morgni 6. október
ekki staðið við samþykkt kauptil-
boð sitt frá því föstudeginum áður
„hefði traust til hans beðið veru-
lega hnekki og allar tilraunir til
að bjarga rekstri hans orðið mun
þyngri í vöfum ef þá mögulegar.“
„Okkur finnst þetta ekki vel
rökstudd niðurstaða,“ segir Herdís
Hallmarsdóttir í slitastjórn Lands-
bankans. Hún segir að niðurstöð-
unni verði áfrýjað til Hæstaréttar,
enda séu meiri hagsmunir undir en
milljónirnar 150.
„Þetta getur haft þýðingu fyrir
okkur. Það eru fleiri mál sem við
höfum verið með í undirbúningi
sem byggja á svipuðum grundvelli
og ef þetta er niðurstaðan þá mun
okkur varla takast að rifta þeim
greiðslum frekar en þessari.“
stigur@frettabladid.is
Tapa riftunarmáli og
fá ekki 150 milljónir
Landsbankinn mátti ekki greiða skuld við Íslensk verðbréf en keypti víxlana á
degi neyðarlaganna og skuldaði þar með sjálfum sér. Dómari telur þetta í lagi
og hafnar riftunarkröfu slitastjórnar, sem óttast fordæmisgildi niðurstöðunnar.
LANDSBANKINN Bankinn samþykkti að kaupa víxlana tvo 3. október og kaupin
gengu í gegn 6. október. Dómari segir að bankinn hefði lent í klandri ef hann hefði
hætt við. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HERDÍS
HALLMARSDÓTTIR
ÞJÓNUSTA Mesta slysatíðni á meðal
bréfbera og útkeyrslufólks Pósts-
ins er vegna hálku á einkalóðum
eins og á tröppum, innkeyrslum
og göngustígum. Pósturinn hvetur
fólk til að moka tröppur og aðgengi
að húsum þegar snjór er mikill og
reyna eftir fremsta megni að koma
í veg fyrir hálkubletti.
Í tilkynningu frá Póstinum segir
þetta auðvelda störf bréfbera til
muna en burðurinn þyngist nú dag
frá degi. Einnig er mikilvægt að
það sé góð lýsing við útidyr og að
merkingar á húsum og póstkössum
séu skýrar og greinilegar. - sv
Pósturinn biður um mokstur:
Blaðburðarfólk
slasast í hálku
SAMFÉLAGSMÁL Vistheimilanefnd skilaði í gær
þriðju og síðustu áfangaskýrslu sinni um starfsemi
vist- og meðferðarheimila fyrir börn á síðustu ára-
tugum. Í henni er að finna umfjöllun nefndarinnar
um starfsemi Upptökuheimils ríkisins, Unglinga-
heimilis ríkisins og meðferðarheimilanna í Smára-
túni og á Torfastöðum á árunum 1945 til 1994.
Taldi nefndin ekki hægt að draga almennar
ályktanir um að ofbeldi eða ill meðferð hefði
farið fram á börnum á þessum heimilum. Þó
hafi eitt og annað orkað tvímælis, þar á meðal
einangrunarvistun og fjötranir á börnum sem
tíðkuðust um tíma.
Þá ítrekaði nefndin fyrri niðurstöður um að
málsmeðferð og faglegri ákvörðunartöku barna-
verndaryfirvalda hefði verið verulega ábótavant
stóran hluta þessa tímabils. Þá var lítil áhersla
lögð á utanaðkomandi eftirlit með starfi einstakra
stofnana og heimila.
Alþingi skipaði í mars árið 2007 nefnd til að
kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir
börn. Róbert R. Spanó, dósent við lagadeild
Háskóla Íslands, var formaður nefndarinnar.
Áður hafði nefndin skilað skýrslu um starfsemi
vistheimilisins á Breiðuvík og tveimur áfanga-
skýrslum um starfsemi Heyrnleysingjaskólans,
skólaheimilisins Bjargs, heimavistarskólans að
Jaðri og vistheimilanna Kumbaravogs, Silunga-
polls og Reykjahlíðar. Var það niðurstaða nefndar-
innar að börn hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi
á sumum þeirra stofnana og heimila sem vistuðu
börn á árum áður. - mþl
Vistheimilanefnd skilaði í gær síðustu áfangaskýrslu sinni um starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn:
Starfi barnaverndaryfirvalda var ábótavant
ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU Í GÆR Nefndin
kynnti áfangaskýrsluna í Þjóðmenningarhús-
inu í gær. Skýrslur nefndarinnar má nálgast
á vefsíðu forsætisráðuneytisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VIÐSKIPTI Reykhólahreppur hefur
keypt 98 hektara land, sem
Reykhólaþorp stendur á. Hrepp-
urinn keypti landið af ríkinu
fyrir 17,5 milljónir króna.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra,
skrifaði undir samninginn við
hreppinn. Undanskilið í sölunni
er lóð Reykhólakirkju, kirkju-
garðs, prestshúss og annars
sem fylgir. Þá verður gatan
Maríutröð, sem liggur í gegn-
um þorpið, áfram á forræði
Vegagerðarinnar.
Reykhólahreppur átti fyrir
kaupin stóran hluta Reykhóla-
jarðarinnar og á nú í samninga-
viðræðum við ábúanda um að
kaupa hans hluta í henni.
- þeb
Umsvif í Reykhólahreppi:
Keypti landið
undir þorpinu
þrenns konar ídýfum
Grænmeti með
Farðu inn á gottimatinn.is til að fá alla uppskriftina
og hugmyndir að fleiri girnilegum réttum.
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
SPURNING DAGSINS