Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 80
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR64
Danshópurinn Area of
Stylez samanstendur af
strákum frá Taílandi,
Nepal, Víetnam, Tíbet og
Bandaríkjunum, en þeir
vöktu athygli fyrir vasklega
framgöngu í sjónvarpsþætt-
inum Dans dans dans. Í yfir
eitt ár hafa strákaranir æft
saman í litlu æfingahús-
næði í Engihjalla.
„Við bjuggumst kannski ekki við
því að komast í úrslitaþáttinn en
takmarkið var alltaf að komast
eins langt og við gætum og vekja
á okkur athygli,“ segir Kristófer
Aron Garcia Thorarensen, einn af
níu meðlimum danshópsins Area
of Stylez.
Danshópurinn vakti athygli
fyrir skemmtilegt atriði í dans-
þættinum Dans dans dans á Rík-
issjónvarpinu síðasta laugardags-
kvöld, en þeir komumst áfram í
úrslitaþáttinn næstu helgi. Hóp-
urinn samanstendur af níu strák-
um frá Taílandi, Nepal, Tíbet og
Víetnam auk Kristófers, sem er
frá Íslandi og Bandaríkjunum.
Hann hefur búið á Íslandi alla
sína ævi en misjafn bakgrunnur
er hjá strákunum, sem eru á aldr-
inum 16-25 ára og ýmist í skóla
eða að vinna.
„Við erum allir af höfuðborgar-
svæðinu en erum með æfingarað-
stöðu í Engihjallanum þar sem
við höfum verið að dansa saman
í eitt ár,“ segir Kristófer. Dans-
hópurinn Area of Stylez varð hins
vegar ekki til fyrr en rétt fyrir
prufurnar fyrir þáttinn. „Ég sá
auglýsingu um þáttinn í blaðinu
og stakk upp á því við strákana
að við tækjum þátt.“
Strákarnir eru flestir sjálf-
lærðir í dansinum og segir Krist-
ófer að þeir noti mikið vefsíðuna
YouTube til að læra ný spor. „Ég
var í samkvæmisdansi þegar ég
var lítill og fór svo á eitt breik-
námskeið en eftir það var mér
boðið að vera með strákunum. Við
reynum að hittast á hverjum degi
og æfa okkur,“ segir Kristófer.
Núna æfa strákarnir í fjóra
tíma á dag fyrir úrslitakvöldið,
en þeir sem eru í skóla eru einnig
í prófum núna.
Sjálfur er Kristófer í íþrótta-
fræði í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti og í miðri prófatörn.
„Við þurfum að skipuleggja okkur
mjög vel núna og reyna að ein-
beita okkur að skólanum líka þó
að það sé smá erfitt þegar það er
svona stutt í úrslitin.“
Sigurvegari Dans dans dans
hlýtur eina milljón króna í verð-
laun og eru strákarnir aðeins
farnir að leiða hugann að verð-
laununum.
„Við mundum vilja nýta pening-
inn í að bæta dansumhverfið og
gera það aðgengilegra fyrir alla.
Búa til stúdíó og byrja kannski á
því að setja upp spegla í æfinga-
herbergið okkar.
Við viljum leyfa þeim sem eiga
ekki mikinn pening að æfa dans
og hafa gaman. Það er það sem
skiptir aðalmáli, að hafa gaman,“
segir Kristófer og lofar skemmti-
legu atriði frá danshópnum á
laugardaginn kemur.
alfrun@frettabladid.is
Við viljum leyfa þeim sem eiga ekki mikinn pening að
æfa dans og hafa gaman. Það er það sem skiptir aðal-
máli, að hafa gaman.
KRISTÓFER ARON GARCIA THORARENSEN
DANSARI Í AREA OF STYLEZ
Bíó ★★★★
We Need to Talk About Kevin
Leikstjórn: Lynne Ramsay
Leikarar: Tilda Swinton, John C. Reilly, Ezra Miller, Jasper Newell,
Ashley Gerasimovich
Óhuggulegasta mynd ársins
Líf Evu Khatchadourian er í molum. Eitthvað hræðilegt hefur gerst en við
vitum ekki nákvæmlega hvað það er. Okkur eru gefnar ýmsar vísbendingar
en þurfum sjálf
að fylla inn í
eyðurnar í bili. Leik-
stýran skoska Lynne
Ramsay flakkar
milli fortíðar og
nútíðar en lykillinn
að vanlíðan Evu er
að finna í fortíðinni.
Hvað var það sem
gerðist og hvers
vegna gerðist það?
Þessi dramatíska
mynd málar
trúverðuga mynd af
harmi aðstandenda
þeirra sem fremja
voðaverk. Hvert
einasta „skrímsli“
á foreldra og jafnvel systkini á einhverjum tímapunkti, og stundum alast
ófreskjurnar upp við tiltölulega eðlilegar aðstæður. Í þeim tilfellum spyr
maður sig hvað hafi farið úrskeiðis. Maður veltir því jafnvel fyrir sér hvort
illska geti hreinlega verið meðfædd.
Þrátt fyrir alvarlegt umfjöllunarefni er engu púðri eytt í predikanir. Myndin
varpar fram spurningum og vangaveltum en áhorfandinn verður sjálfur
að lesa í ljóðrænt myndmálið. Myndataka og klipping skapa ógnvekjandi
stemningu sem óhefðbundin notkun tónlistar rekur smiðshöggið á. We
Need to Talk About Kevin er óhuggulegasta mynd ársins.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Drungalegt drama um viðkvæmt málefni. Hér er vandað til
verka og útkoman er frábær.
Vilja gera dansinn aðgengilegri fyrir alla
AREA OF STYLEZ Þeir Pathipan Kristjánsson, Tu Ngoc Vu, Kristófer Aron Garcia Thorarensen, Suwit Chotnok, Surathep Khampamuang, Ratthaphon Parasri, Tenzin Khechok,
Rajdeep Gurung og Theeraphol Arayarangsee mynduðu danshópinn Area of Stylez rétt fyrir prufurnar en ef þeir sigra í Dans dans dans vilja þeir búa til dansstúdíó og leyfa
þeim sem ekki eiga mikinn pening að læra dans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN