Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 18
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR18
www.ils.is | Sími: 569 6900 | Grænt númer: 800 6969 | Borgartúni 21, 105 Reykjavík
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
• Lán til íbúðarkaupa
• Lán til endurbóta og viðbygginga
• Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
• Ráðgjöf og úrræði í greiðsluvanda
FRÉTTASKÝRING: Uppstokkun í ríkisstjórn
Fjórtán ráðherrar á tveimur og hálfu ári
Jóhanna Sigurðardóttir
Forsætisráðherra síðan 10. maí
2009. Var forsætisráðherra í
minnihlutastjórn áður. Sat í
stjórn Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks.
Steingrímur J. Sigfússon
Fjármálaráðherra síðan 10. maí
2009. Var fjármálaráðherra í
minnihlutastjórn áður.
Össur Skarphéðinsson
Utanríkisráðherra síðan 10.
maí 2009. Var iðnaðarráðherra
í minnihlutastjórn áður. Sat í
stjórn Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks.
Ögmundur Jónasson
Heilbrigðisráðherra 10. maí
2009 til 1. okt. 2009. Dóms-
mála- og mannréttindaráðherra
og samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra 2. sept. 2010 til 31.
des. 2010. Innanríkisráðherra
frá 1. jan. 2011. Var heilbrigðis-
ráðherra í minnihlutastjórn áður.
Katrín Júlíusdóttir
Iðnaðarráðherra síðan 10. maí
2009.
Jón Bjarnason
Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra frá 10. maí 2009.
Guðbjartur Hannesson
Félags- og tryggingamálaráð-
herra og heilbrigðisráðherra 2.
sept. 2009 til 31. des. 2010.
Velferðarráðherra frá 1. jan.
2011.
Katrín Jakobsdóttir
Menntamálaráðherra 10.
maí 2009 til 30. sept. 2009.
Mennta- og menningarmála-
ráðherra frá 1. okt. 2009. Var
menntamálaráðherra í minni-
hlutastjórn áður.
Árni Páll Árnason
Félags- og tryggingamálaráð-
herra 10. maí 2009 til 1. sept.
2010. Efnahags- og viðskipta-
ráðherra frá 2. sept. 2010.
Svandís Svavarsdóttir
Umhverfisráðherra síðan 10.
maí 2009.
Kristján L. Möller
Samgönguráðherra 10. maí
2009 til 2. sept. 2010. Var sam-
gönguráðherra í minnihluta-
stjórn áður.
Álfheiður Ingadóttir
Heilbrigðisráðherra 1. okt. 2009
til 2. sept. 2010.
Gylfi Magnússon
Viðskiptaráðherra 10. maí 2009
til 2. sept. 2010. Var viðskipta-
ráðherra í minnihlutastjórn áður.
Ragna Árnadóttir
Dóms- og kirkjumálaráðherra
10. maí 2009 til 2. sept. 2010.
Var dóms- og kirkjumálaráð-
herra í minnihlutastjórn áður.
Fyrirhugaðar breytingar
á ríkisstjórn hafa verið í
umræðunni síðustu daga.
Allt bendir til að Jón
Bjarnason hverfi af ráð-
herrastóli á næstunni. Fjöl-
margar breytingar hafa
verið gerðar á ráðherraliði
stjórnarflokkanna frá kosn-
ingunum 2009. Stjórnmála-
fræðingur segir hrókering-
ar í ráðherraliði merki um
veikleika ríkisstjórnar.
Annað ráðuneyti Jóhönnu Sigurð-
ardóttur tók við völdum 10. maí
2009. Stjórnarflokkarnir, Sam-
fylkingin og Vinstrihreyfingin
– grænt framboð, höfðu mynd-
að minnihlutastjórn í febrú-
ar þegar ríkisstjórn Geirs H.
Haarde hrökklaðist frá völdum.
Kjósendur veittu stjórnarflokk-
unum umboð til áframhaldandi
stjórnarsetu, nú með meirihluta
þingmanna á bak við sig, en fyrsta
ráðuneyti Jóhönnu var minni-
hlutastjórn.
Þrátt fyrir að ekki blési byrlega
í efnahagslífi þjóðarinnar í árdaga
stjórnarinnar ríkti nokkur bjart-
sýni hjá stjórnarliðum. Stjórnar-
flokkarnir bættu báðir við sig
fylgi í kosningunum, Samfylk-
ingin 2 þingmönnum og Vinstri
græn 5. Minnihlutastjórnin naut
nú liðsinnis 34 þingmanna af 63 og
stjórnarliðar lögðu bjartsýnir af
stað í það sem þeir kölluðu fyrstu
hreinu vinstristjórnina á Íslandi.
Blikur á lofti
Snemma varð þó ljóst að ekki sætu
allir á sárs höfði innan stjórnar-
flokkanna. Eitt af umsömdum
stefnumálum í stjórnarsáttmálan-
um var aðildarumsókn að Evrópu-
sambandinu. Slíkt er þvert gegn
stefnu Vinstri grænna og í sátt-
málann var sett klausa:
„Flokkarnir eru sammála um
að virða ólíkar áherslur hvors um
sig gagnvart aðild að Evrópusam-
bandinu og rétt þeirra til mál-
flutnings og baráttu úti í sam-
félaginu í samræmi við afstöðu
sína og hafa fyrirvara um samn-
ingsniðurstöðuna líkt og var í
Noregi á sínum tíma.“
Fljótlega reyndi á þetta
ákvæði þegar Alþingi sam-
þykkti í júlí 2009 að sækja um
aðild að Evrópusambandinu.
Einn ráðherra í ríkisstjórn-
inni, umræddur Jón Bjarnason,
greiddi atkvæði gegn tillögunni,
ásamt fleiri þingmönnum Vinstri
grænna. Það fór illa í margan
Samfylkingarþingmanninn.
Kvarnast úr
Fyrsta breytingin í ríkisstjórn
varð ekki í góðu; Ögmundur Jón-
asson sagði af sér sem heilbrigðis-
ráðherra í október 2009. Ástæðuna
sagði hann vera efnahagsmál, ekki
síst Icesave. Ögmundur sneri síðan
aftur í ríkisstjórn tæpu ári síðar, en
í annað ráðuneyti. Í stól Ögmundar
settist Álfheiður Ingadóttir.
Við endurkomu Ögmundar
þurftu utanþingsráðherrarn-
ir að taka pokann sinn og einnig
Kristján L. Möller. Guðbjartur
Hannesson kom einnig inn í ríkis-
stjórnina. Frekari hræringar urðu
við sameiningar ráðuneyta sem
tóku gildi 1. janúar 2010.
Þrír þingmenn hafa yfirgef-
ið Vinstri græn – Atli Gíslason,
Ásmundur Einar Daðason og Lilja
Mósesdóttir – og einn gengið til
liðs við flokkinn, Þráinn Bertels-
son. Stjórnin hefur því eins manns
meirihluta og ljóst að ekkert má út
af bregða eigi hún að lifa.
Fjórtán ráðherrar frá kosningum
Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur segir
að almennt sé það veikleikamerki þurfi að vera
með miklar hrókeringar á ráðherraliði. Það eigi við
hér sem annars staðar. Hann segir það eiga að
einhverju leyti við hér en einnig spili inn í samþykkt
stefna um að fækka ráðuneytum.
Gunnar segir ákveðinn vilja fyrir því að hreyfa við
Jóni Bjarnasyni og jafnvel fleiri ráðherrum. Vandinn
fyrir stjórnina sé á hve veikum grunni hún hvíli. Ef
Jón Bjarnason hverfi frá stuðningi við hana hafi hún
ekki öruggan þingstyrk til að koma málum í gegn.
Raunar megi segja að með hann innanborðs hafi
hún ekki heldur traustan stuðning við öll mál og
virki því að einhverju leyti eins og minnihlutastjórn.
„Áður en ríkisstjórnin losar sig við Jón Bjarnason
er líklegt að hún sé búin að tryggja sér samninga
við aðra þingmenn,“ segir Gunnar. Þar komi ýmsir til
greina; Guðmundur Steingrímsson og jafnvel Hreyf-
ingin. „Ég held að ríkisstjórnin verði að vera búin að
semja við aðra áður en hún gengur í verkið.“
Hrókeringar veikleikamerki
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON