Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 56
Fugl og fiskur - og allt þar á milli
kr. 11.990
kr. 3.690 kr. 3.690 kr. 4.290
kr. 4.290 kr. 4.690
kr. 2.990 kr. 6.490
kr. 5.490
Ný sending af erlendum bókum!
Lækjargata 2a 101 R. sími 511-5001 opið alla daga til 22
HOLD ON - TOM WAITS
Gullfallegt lag eftir gull-
fallegan mann og ekki spillir
textinn fyrir. Það er
svo hughreystandi
að hlusta á mann
sem hefur ýmsa
fjöruna sopið
hvetja mann til þess
að þrauka. Rödd hans er svo
vön, ef svo mætti að orði
komast. Þetta er eins og að
fá hughreystingu og ráðlegg-
ingar frá gömlum ref sem
veit hvað hann syngur. Alger
eðall!
DON´T GIVE UP - PETER
GABRIEL OG KATE BUSH
Ég held ég hafi verið fimm
ára þegar þetta kom út og
ég man eftir því að
syngja hástöfum
með. Mamma var
alltaf svo hrifin
af Kate Bush svo
að þetta lag ómaði
mikið heima fyrir. Það virkaði
þegar maður kom heim með
blóðnasir og hruflað hné að
láta þetta stappa í mann stál-
inu og fjandakornið ef það
gerir það ekki enn.
I WON´T BACK DOWN -
JOHNNY CASH (E. TOM
PETTY)
Í þessum flutningi hljómar
þetta lag eins og heilræði frá
einhverjum sem ein-
faldlega veit betur
en ég. Það er
alltaf hughreyst-
andi þegar einhver
veit betur en ég og
hvetur mig til þess að leggja
ekki árar í bát. Aldrei, jafnvel
standandi frammi fyrir hliði
vítis.
THREE LITTLE BIRDS -
BOB MARLEY
Ókey, þetta er svolítið fyrir-
sjáanlegt. En ég hef það mér
til málsbótar að ég
hafði enga þolin-
mæði eða umburð-
arlyndi fyrir Bob
Marley sem tán-
ingur. En þetta lag inniheldur
svo ótrúlega einföld og góð
skilaboð. Þetta verður allt í
lagi! Svolítið svona íslenskt
hugarfar sem á ágætlega við
stundum …
GO - SPARKLEHORSE
OG FLAMING LIPS (E.
DANIEL JOHNSTON)
Uppáhaldslagið mitt þessa
dagana. Stórkostlegt lag í
alla staði. Kannski
ekki alveg besta
lagið í þessum
flokki laga, en
samt jú. Þetta er
hughreystandi og
yndislegt. Ef einhver lesandi
blaðsins hefur ekki hlustað
á þetta stórkostlega lag þá
ætti sá hinn sami að gera
það hið snarasta. Go, go,
go, you restless soul, you´re
going to find it!
1
2
3
4
5
BÓAS HALLGRÍMSSON
SÖNGVARI REYKJAVÍKUR!
Páll Óskar og Mugison eru í sérflokki á
Tónlistanum, sem birtist í Fréttablaðinu
í dag. Páll Óskar er á toppi listans með
plötu sína, Páll Óskar og Sinfó, og
Mugison fylgir fast á eftir með plötuna
Haglél. Báðir seldu þeir fleiri en þúsund
plötur í síðustu viku, en engin plata
hefur náð þeim árangri á þessu ári.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu í
síðustu viku sat Mugison í toppsæti
Tónlistans í á þriðja mánuð. Plata
hans rýkur út: 13 þúsund eintök eru
seld og 4.000 í viðbót hafa verið
send í verslanir. Þá hafa 7.000 eintök
verið útbúin í viðbót. „Ég samgleðst
Mugison,“ sagði Páll Óskar við það
tilefni. „Ég hef verið á sama stað
og hann, verið sjálfstæður plötu-
útgefandi að gefa út og dreifa
sjálfur ásamt því að líma saman
plötuumslög. Þessi plata frá
Mugison er fyrsta platan hans á
íslensku. Það er því engu líkara
en að allar hinar plöturnar hafi
verið upphitun fyrir þessa.
Plöturnar á ensku voru bara að
spenna bogann fyrir þessa og
ekki seldust þær illa.“
PALLI OG MUGISON TAKA FLUGIÐ
Mugison og Páll Óskar
eru í sérflokki hvað
varðar plötusölu.
FIMM
BESTU
LÖGIN SEM STAPPA
Í MANN STÁLINU Í
SKAMMDEGINU