Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 50
2 •
NÝTT DOVE MEN+CARE
DOVE MEN+CARE inniheldur rakaeindir (micromoisture) sem hjálpa
húðinni að viðhalda eðlilegu rakastigi.
Í rakaeindunum eru olíur sem virka um leið og DOVE MEN+CARE
kemst í snertingu við húðina. Húðin verður ekki fitug viðkomu
heldur náttúrulega rök og mjúk.
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Í EIGIN SKINNI
Dan Auerbach
og Patrick
Carney skipa
svalasta
rokkdúóið í
bransanum í
dag. Þeir áttu
eina af bestu
plötum síðasta árs, Brothers, og
eru nú mættir með enn betri plötu.
The Black Keys er orðið tíu ára
gamalt band og El Camino er
sjöunda plata sveitarinnar. Platan
Attack & Release, sem kom út
árið 2008, kom The Black Keys
almennilega á kortið. Það var
upptökustjórinn Danger Mouse
sem var á tökkunum við upptökur
plötunnar og hann var kallaður
aftur til starfa hér. Danger Mouse
setur handbragð sitt á plötuna,
skerpir á melódíunum og gerir
þær hlýrri. Hann hefur einnig
náð að temja tvímenningana og
fengið þá til að hafa bara ellefu
lög á plötunni. Helsti galli síðustu
plötu var að þar máttu nokkur lög
missa sín.
Sem sagt: Hraðsoðin og melódísk
blúsrokkplata sem rúllar örugg-
lega í gegn. - hdm
TÓNLEIKAR
„ÞAÐ ER ENGIN
AFSÖKUN AÐ
VERA VEIKUR Í
ÞESSUM
BRANSA.“
SÍÐA 6
THE BLACK KEYS
EL CAMINO ★★★★
ÍSLENSK / ERLEND
POPP er tónlistarblað og kemur
út annan hvern fimmtudag.
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf.
Umsjón: Atli Fannar Bjarkason
Forsíðumynd: Anton Brink
Auglýsingar: Benedikt Freyr
Jónsson benediktj@365.is
Popp, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík,
sími 512 500
Í kvöld: Hljómsveitirnar Reykjavík!,
MUCK og Gang Related koma
fram á Gauki á Stöng. Miðaverð er
aðeins 1.000 krónur og húsið er
opnað klukkan níu.
Á morgun: Á fjórðu tónleikunum
í tónleikaröðinni Undiröldunni í
Kaldalónssal Hörpunnar verða
það hljómsveitirnar Samaris og
Mr. Silla sem stíga á svið. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 17.30 og
aðgangur er ókeypis.
Ekki á morgun heldur hinn:
Hljómsveitin 1860 heldur jólatón-
leika á Café Rosenberg klukkan
22. Hljómsveitin leikur uppáhalds-
jólalögin sín í bland við frumsamið
efni. Aðgangseyrir er aðeins 1.000
krónur.
HLJÓMSVEITIN
ÚLF UR ÚLFUR
SENDIR FRÁ SÉR
FYRSTU PLÖTUNA
SÍNA Á LAUGAR-
DAGINN. YRKISEFNI
PLÖT UNNAR ER
EINLÆG BLANDA
AF DRYKKJU, PARTÍI,
RÍÐINGUM OG ÖLLU
ÞVÍ.
„Við vorum í þessum töluðu
orðum að skila plötunni í fjölföld-
un. Hún á að vera tilbúin á föstu-
daginn. Hún verður það,“ segir
rapparinn Arnar Freyr Frostason
úr hljómsveitinni Úlfur úlfur.
Fyrsta plata hljómsveitarinnar
kemur út á laugardaginn og hefur
hún hlotið nafnið Föstudagurinn
langi. Hljómsveitin var stofnuð í
maí á þessu ári úr rústum hljóm-
sveitarinnar Bróðir Svartúlfs, sem
vann Músíktilraunir árið 2009. „Við
hættum í Bróður Svartúlfs einfald-
lega vegna þess að ástríðan var
horfin og við fundum hana aftur í
þessari hljómsveit. Okkur langaði
að gera litríkari og skemmtilegri
hluti en í Bróður Svartúlfs og við
fundum það í Úlfi úlfi. Það er miklu
meira rapp og hipp hopp og diskó
og partí núna,“ segir Arnar.
Að koma út plötu aðeins
nokkrum mánuðum eftir að hljóm-
sveitin er stofnuð hlýtur að teljast
góður árangur. Arnar segir það
hafa verið lítið mál að semja lög
og bætir við að tíminn í Bróður
Svartúlfs sé gott veganesti. „Við
lærðum á bransann og það er að
vinna með okkur núna eftir að við
stofnuðum þessa hljómsveit. Við
gátum unnið miklu hraðar,“ segir
hann. Fólk hefur tekið vel í tónlist
Úlfsins og hljómsveitin hefur
reglulega komið fram á tónleikum
undanfarnar viku. „Það gengur
miklu betur en við áttum von á.
Það er ótrúlegt hvað fólk er mikið
til í að fá okkur til að spila. Við
erum ekkert sérstaklega duglegir
við að halda tónleika, en fólk er að
taka vel í okkur, sem er ótrúlega
skemmtilegt.“
Textar Arnars og félagar eru
á íslensku. Hann segir enga sér-
staka yfirlýsingu fólgna í því,
heldur séu þeir einfaldlega betri
í íslensku en ensku. „Ég get sagt
miklu stærri hluti á íslensku
heldur en nokkurn tíma á öðru
tungumáli,“ segir hann. „Við erum
svolítið í því, að segja býsna stóra
hluti. Við erum voðalega einlægir.
Við leyfum okkar að hella úr
hjörtum okkar við og við. Svona
milli þess sem við yrkjum um
drykkju og partí. Og ríðingar og
allt það.“
Arnar segir upplag plötunnar
ekki stórt, en samhliða útgáfunni
verður hún gefins á vefsíðunni
Ulfurulfur.com. Úlfur úlfur
fagnar útgáfunni á Faktorý á
laugardagskvöld. Húsið opnar
klukkan 22 og tónleikarnir hefjast
stundvíslega klukkan 23. - afb
FÖSTUDAGURINN LANGI
ÍMYND FÍFLSINS
HLJÓMSVEITIN ÉG ★★★★
Úlfur úlfur sendir frá sér
fyrstu breiðskífuna á
laugardaginn.
Þessi fjórða pla-
ta Hljómsveit-
arinnar Ég byg-
gir á svipuðum
grunni og fyrri
verk sveitarin-
nar. Áhrif frá
hippatónlist
sjöunda áratugarins eru greinileg
og hérna er samspil gítars, bassa
og trommu stórgott. Annars er
lágstemmt kassagítar rokk áberandi
á plötunni og söngur forsprakkans
Róberts Arnar Hjálmtýssonar er
ekki eins hátt uppi og oft áður, sem
er kostur.
Róbert Örn er hnyttinn texta-
höfundur og hér gagnrýnir hann
meðal annars leti neyslusam-
félagsins og segir flest okkar fífl
og vilja sífellt láta fjölmiðla mata
sig með misgáfulegu efni. Hann
undanskilur sjálfan sig ekkert í
þeim efnum, eins og mynd af
honum sjálfum á umslaginu ber
vott um. Melódísk tónlistin er þó
ávallt í fyrirrúmi, grúví og töff,
með Ferðalag og Hollywood-ást
framarlega í flokki.
Sem sagt: Vel heppnuð rokkplata
með skemmtilegum textum. - fb
Í POPPSKÚRNUM Á VISIR.IS
LÖG:
INGIMAR
SVIKSEMI
VEISLA HERTOGANS
HAM