Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 54
6 •
JÓN JÓNSSON TÓNLISTARMAÐUR
1. Nei, ég hef aldrei gert það. Ég þrusa í mig átta töflum af raddsterum átta
klukkutímum fyrir tónleika. 1
2. Ég myndi fara og finna stað með ógeðslega góðri köku og segja Steina gítar-
leikara að redda þessu. Hann er gæi sem hefur unnið á dekkjaverkstæði og gæti
fundið lausn á vandamálinu. 0
3. Af lögreglunni? Það er búið að vera svo oft. Æ, nei. Ég hef bara verið tekinn fyrir
of hraðan akstur. 0
4. Ég hef alltaf sængað hjá sömu yndislegu stúlkunni. Í enda nóvember var ég
búinn að vera með henni í níu ár, þannig að ég verð að svara þessu neitandi. 0
5. Nei, en ég ætla að fá mér drekatattú yfir allt bakið milli jóla og nýárs. 1
6. Ég er ógeðslega oft í svona leðurþveng. Þegar ég er heima. Það er mjög þægi-
legt. 1
7. Já, ég er með það. Ég tók líka einu sinni óvænt gigg með honum í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum. 1
8. Nei, ég myndi ekki gera það. Ég er ekki í þessu fyrir peningana. 1
9. Francis Ford Coppola. Líf mitt er búið að vera það ógeðslega brútal. Maður
hefur gengið í gegnum ýmislegt. 1
10. Ég fæ mér kristal með lime svo fólk spyrji mig ekki hvort ég sé ekki að drekka. 0
HAM sendi frá sér plötuna Svik,
harmur og dauði fyrr á þessu ári.
Platan hefur fengið frábæra dóma,
sem segir okkur að ef þú átt hana
ekki nú þegar, þá dreymir þig um
að eignast hana.
Mögulega ertu búin(n) að eyða
öllum peningunum þínum í jóla-
gjafir. Þú þarft þó ekki að óttast,
því Popp hyggst gefa nokkrum
lesendum plötuna í næstu viku.
Til þess að eiga möguleika á því
að eignast gripinn þarftu að fara
inn á Facebook, finna Popp og
smella á „like“. Punktur. Þú þarft hvorki að deila né kvitta.
DREYMIR ÞIG SVIK,
HARM OG DAUÐA?
ROKKPRÓFIÐ
01. HEFURÐU AFLÝST TÓNLEIKUM VEGNA EYMSLA
Í HÁLSI? 02. HLJÓMSVEITARRÚTAN BILAR Á FERÐ
UM MIÐ-EVRÓPU. HVAÐ GERIR ÞÚ?
03. HVENÆR VARSTU SÍÐAST HANDTEKINN?
04. ÁTTU ÓSKILGETIN AFKVÆMI Í FLEIRI EN
FIMM SÝSLUM Á ÍSLANDI? 05. ERTU MEÐ NAFN
FYRRVERANDI ELSK HUGA HÚÐFLÚRAÐ Á ÞIG?
06. ALLIR EIGA LEÐURJAKKA EN ÁTT ÞÚ LEÐUR-
BUXUR? 07. ERTU MEÐ NÚMERIÐ HJÁ HELGA BJÖRNS
Í SÍMANUM ÞÍNUM? 08. MYNDIRÐU SEMJA LAG FYRIR
ÍMYNDARAUGLÝSINGU NATÓ GEGN RÍFLEGRI GREIÐS-
LU? 09. Í KVIKMYND UM LÍF ÞITT, HVAÐA LEIKSTJÓRI
VÆRI RÉTTI MAÐURINN Í STARFIÐ? 10. BJÖRN
JÖRUNDUR SPLÆSIR Á BARNUM, HVAÐ FÆRÐU
ÞÉR? 8
STIG
6
STIG
KEMPUR TEKNAR INN Í
FRÆGÐARHÖLLINA
Hljómsveitirnar Guns N‘ Roses,
Red Hot Chili Peppers og Beastie
Boys eru á meðal þeirra sem
teknar verða inn í Frægðarhöll
rokksins á næsta ári. Athöfnin fer
fram í Cleveland í Bandaríkjunum
á næsta ári.
Anthony Kiedis, söngvari Red
Hot Chili Pepper, fékk fréttirnar
þegar hljómsveit hans var á
tónleikaferðalagi um Evrópu.
„Ég hringdi í pabba og grét,“
sagði hann í viðtali við Rolling
Stone. Þá sagðist hann hugsa til
Hillel Slovak, fyrrverandi gítar-
leikara Chili Peppers sem lést árið
1988. „Hillel var fallegur maður
sem hóf að spila á gítar á átt-
unda áratugnum en komst ekki í
gegnum þann níunda. Hann verður
heiðraður fyrir fegurð sína. En við
elskum það sem við erum að gera
í hljómsveitinni. Ég og Flea elskum
hvor annan og stöndum saman í
gegnum súrt og sætt.“
POPPARAR
MATTHÍAS MATTHÍASSON SÖNGVARI PAPANNA
1. Nei, aldrei. Ég hef verið með 42 stiga hita uppi á sviði. Það
er engin afsökun að vera veikur í þessum bransa. 1
2. Ég hef lent í þvílíkri rútuferð þar sem allt brotnaði undan
rútunni. Þá var reddað sér í næsta sveitarfélag og hringt í
einkaflugvél. 1
3. Það er ekkert svo langt síðan. Það var bara of hraður akstur. 0
4. Ég lenti í kjaftasögu með þetta, sem var algjörlega röng, en
kjaftasagan kom. 1
5. Nei, þó maður sé rokkari þá er maður ekki vitlaus. 1
6. Já, ég nota þær ekki reglulega, en þegar þarf að rokka
aðeins þá fer maður í þær. 1
7. Nei, ekki Helga Björns. En ég er með númerið hjá Eika
Hauks. 1
8. Já, pottþétt. 0
9. Ég ætla að vera smá blaðra og segja Baltasar Kormákur.
Hún yrði gerð á Íslandi. Ég er ennþá bara íslenskur. 1
10. Úff, hann hefur svo oft splæst á mig á barnum. Síðast var
það líklega bjór. 1
Svik, harmur og dauði er frábær plata
og nú getur þú bætt henni í safnið.