Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 66
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR50
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Heimsljós (Stóra sviðið)
Fim 9.12. Kl. 19:30 30. sýn.
Fim 10.12. Kl. 19:30 31. sýn.
Lau 7.1. Kl. 19:30 32. sýn.
Sun 8.1. Kl. 19:30 33. sýn.
Fim 12.1. Kl. 19:30 34. sýn.
Fös 13.1. Kl. 19:30 35. sýn.
Fim 19.1. Kl. 19:30 36. sýn.
Fös 20.1. Kl. 19:30 37. sýn.
Lau 21.1. Kl. 19:30 38. sýn.
Fös 27.1. Kl. 19:30 39. sýn.
Lau 28.1. Kl. 19:30 40. sýn.
Sun 29.1. Kl. 19:30 41. sýn.
Mán 26.12. Kl. 19:30 Frums.
Mið 28.12. Kl. 19:30 2. sýn.
Fim 29.12. Kl. 19:30 3. sýn.
Lau 7.1. Kl. 19:30 4. sýn.
Sun 8.1. Kl. 19:30 5. sýn.
Lau 14.1. Kl. 19:30 6. sýn.
Sun 15.1. Kl. 19:30 7. sýn.
Lau 21.1. Kl. 19:30 8. sýn.
Sun 22.1. Kl. 19:30 9. sýn.
Lau 28.1. Kl. 19:30 10. sýn.
Sun 29.1. Kl. 19:30 11. sýn.
Lau 4.2. Kl. 19:30 12. sýn.
Sun 5.2. Kl. 19:30 13. sýn.
Lau 18.2. Kl. 19:30 14. sýn.
Sun 19.2. Kl. 19:30 15. sýn.
Lau 25.2. Kl. 19:30 16. sýn.
Sun 26.2. Kl. 19:30 17. sýn.
Hreinsun (Stóra sviðið)
Uppnám (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 10.12. Kl. 22:00
Lau 10.12. Kl. 19:30 13. sýn.
Sun 11.12. Kl. 19:30 14. sýn.
Fös 30.12. Kl. 19:30 15. sýn.
Fim 5.1. Kl. 19:30 16. sýn.
Fös 6.1. Kl. 19:30 17. sýn.
Mið 28.12. Kl. 13:30 Frums.
Fim 29.12. Kl. 13:30 2. sýn.
Fim 29.12. Kl. 15:00 3. sýn.
Fös 30.12. Kl. 13:30 4. sýn.
Fös 30.12. Kl. 15:00 5. sýn.
Sun 8.1. Kl. 13:30 6. sýn.
Sun 8.1. Kl. 15:00 7. sýn.
Ö
On Misunderstanding (Kassinn)
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Mið 28.12. Kl. 19:30 Frums. Fim 29.12. Kl. 19:30 2. sýn. Fös 30.12. Kl. 19:30 3. sýn.
Ö
Ö
Ö Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
U
U
Lau 10.12. Kl. 11:00
Lau 10.12. Kl. 13:00
Lau 10.12. Kl. 14:30
Sun 11.12. Kl. 11:00
Sun 11.12. Kl. 13:00
Sun 11.12. Kl. 14:30
Lau 17.12. Kl. 11:00
Lau 17.12. Kl. 13:00
Lau 17.12. Kl. 14:30
Sun 18.12. Kl. 11:00
Sun 18.12. Kl. 13:00
Sun 18.12. Kl. 14:30
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
Ö
Ö
Ö
U
Bækur ★★★★
Úr þagnarhyl – Ævisaga
Vilborgar Dagbjartsdóttur
Þorleifur Hauksson
Mál og menning
Titilinn á ævisögu Vilborgar Dag-
bjartsdóttur má rekja til þess að
Vilborg var þögult barn. Þegar
hún lærði að lesa kunni hún staf-
ina áður en hún vildi segja þá upp-
hátt og skýrir það svo: „Það bjó í
mér einhver þagnarhylur sem allt
fór ofan í.“ (44)
Af sögunni sést að síðan Vilborg
komst af barnsaldri hefur hún
hreint ekki verið í erfiðleikum með
að tjá sig. Þvert á móti hefur hún
alla tíð verið með munninn fyrir
neðan nefið og sjaldan látið nokk-
urn eiga inni hjá sér. Hún braust
til mennta og sigldi til útlanda til
að mennta sig enn frekar, varð ein-
stæð útivinnandi móðir en um leið
frumkvöðull í kennslu og vann alla
tíð eins og berserkur, trú og trygg
sínum hugsjónum, sem meira að
segja urðu til þess að hún var rekin
úr starfi. Síðar giftist hún Þor-
geiri Þorgeirsyni, sem alla tíð var
umdeildur listamaður og sjaldan
nokkur lognmolla í kringum hann.
Vilborgu hrjáir ekki skortur á
sjálfstrausti og hún tíundar vand-
lega kosti sína, karlhylli, dugn-
að og afrek, jafnhliða því sem
kannski hefði mátt betur fara í
hennar lífi. Þetta hefur mikinn
hreinskilnisjarma, sem ekki er
hægt annað en að heillast af. Það er
líka falleg hreinskilni að Vilborg,
einn af frumkvöðlum Rauðsokka-
hreyfingarinnar, viðurkennir að
ekki hafi jöfn verkaskipting verið
á hennar heimili (og það skín raun-
ar í gegnum allan síðari hluta bók-
arinnar) en hún hafi engu að síður
viljað leggja baráttunni lið vegna
yngri kvenna og barna þeirra.
Allir sem hafa lesið ljóð Vilborg-
ar vita að harmur unglingsáranna
hefur verið sem leiðarstef í skáld-
skap hennar í gegnum tíðina.
Fimmtán ára gömul hafði Vilborg
misst sex systkini og var í kjölfar-
ið rekin úr skóla (vegna berkla-
hræðslu skólayfirvalda) og send
til vandalausra án þess að nokk-
uð væri útskýrt fyrir henni eða
hún fengi aðstoð vegna þessara
ömurlegu atburða.
Erfiðleikarnir eru tíundaðir
í bókinni, en þó er meira um
skemmtifrásagnir og stuð. Vil-
borg hefur lifað viðburðaríku lífi
og mjög fljótlega eftir að hún fór að
heiman komst hún í kynni við fólk
sem þá þegar (eða í það minnsta
síðar) varð þjóðþekkt, einkum
listamenn. Mörg hundruð manns
eru nefndir í bókinni, skautað yfir
suma en sagðar ítarlegar sögur
af öðrum, eins og gengur. Þetta
er fróðlegt bæði og skemmtilegt
og þau Þorvaldur og Vilborg hafa
sérlega næmt auga fyrir hinu
spaugilega.
Þorleifur Hauksson leysir verk-
efni sitt vel af hendi. Á köflum er
svolítill talmálsbragur á textanum,
setningarnar stuttar og höggnar,
en það kemur lítið að sök. Upplýs-
andi myndum er dreift um bókina
en ekki safnað á sérstakar mynda-
síður, sem er mikill kostur. Líka
eru víða textar sem ekki eru felld-
ir inn í meginmál, heldur standa
utan þess og bæta góðu við söguna.
Þetta eru ljóð Vilborgar, dómar
um verk hennar og umsagnir
samferðamanna.
Vilborg Dagbjartsdóttir er sér-
stök manneskja og hefur bersýni-
lega alla tíð lagt mikið upp úr því
að vera kát og glöð og láta á engu
bera, vera dugleg og halda áfram,
hvað sem á dynur. Af bókinni er vel
sýnilegt að hún hefur fengið ofur-
skammta af erfiðleikum að glíma
við – en líka mikið af skemmtileg-
heitum, sem þau Þorvaldur miðla
lesendum af kostgæfni.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Niðurstaða: Bráðskemmtileg saga
merkilegs ljóðskálds og baráttukonu.
Af ævi glaðlyndrar skáldkonu
Alla virka daga kl. 18.00
Disovery Channel er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR LANDSBYGGÐ
Um 150 flytjendur koma
fram á jólatónleikum Gleði-
og friðarjól sem haldnir
verða í Hallgrímskirkju í
kvöld. Magnús Eiríksson
verður sérstakur heiðurs-
gestur og rennur allur ágóði
til Rauða kross Íslands og
Fjölskyldu hjálparinnar.
Fjórir kórar og fjöldi einsöngvara
koma fram á sérstökum hátíðartón-
leikum í Hallgrímskirkju í kvöld.
Auk hljóðfæraleikara verða flytj-
endur alls um 150. Söngvaskáldið
Magnús Eiríksson verður sérstak-
ur heiðursgestur og syngja kórarnir
nokkur lög eftir hann.
Elín Halldórsdóttir óperusöng-
kona hefur veg og vanda að skipu-
lagningu tónleikanna, en allur ágóði
rennur til Rauða kross Íslands og
Fjölskylduhjálpar Íslands. Hún
hefur áður komið að skipulagningu
stórra óperuuppfærslna, gospel-
hátíða og jólatónleika hér á landi og
í Þýskalandi. „Þá hef ég ávallt verið
í samstarfi við aðra en þetta er í
fyrsta sinn sem ég skipulegg svona
stóran viðburð upp á eigin spýtur,“
segir hún.
Um tilurð tónleikanna segir Elín
hugmyndina einfaldlega hafa skotið
upp í kollinum á sér og hún ákveð-
ið að láta vaða. „Það er nánast eins
og það hafi legið fyrir mér að halda
þessa tónleika.“
Elín segir það ekki hafa verið
vandamál að fá alla þessa flytjend-
ur til að gefa vinnu sína. „Ég teng-
ist öllum hópunum með einum eða
öðrum hætti og allir voru reiðu-
búnir að leggja svona góðu málefni
lið.“
Yfirskrift tónleikanna vísar í titil
á lagi eftir heiðursgestinn, Magnús
Eiríksson, sem Elín kveðst hafa
hlustað á lengi. „Það var samt hálf-
gerð tilviljun að ég leitaði til hans,“
segir hún. „Ég spurði Magga hvort
hann lumaði ekki á góðu og ljúfu
jólalagi og hann stakk upp á Gleði-
og friðarjól, sem smellpassaði við
það sem ég lagði upp með og var
tilvalin yfirskrift.“
Það er mikill popp- og gospel-
bragur á tónleikunum; auk Magga
Eiríks má finna á efnisskránni lög
eftir Michael Jackson, Black Eyed
Peas og Beyoncé Knowles í bland
við hátíðlegri verk.
„Ég komst í kynni við gospeltón-
listina í Þýskalandi,“ segir Elín.
„Mér finnst vanta meiri slíka tónlist
í íslenskar kirkjur, það fylgir henni
svo mikil gleði. Ég er sjálf trúuð,
hef mína einlægu barnatrú, og vil
að fólk komi í kirkju og njóti góðrar
tónlistar; finni hvað það er gott að
komast í guðshús.“
Tónleikarnir í Hallgrímskirkju
hefjast klukkan 20 í kvöld. Aðgangs-
eyrir er þrjú þúsund krónur.
Gleði, gospel og friðarjól
ELÍN HALLDÓRSDÓTTIR Elín á æfingu félaga úr Kammerkór Reykjavíkur sem koma fram á tónleikunum í kvöld. Gospeltónlist
verður áberandi á efnisskránni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FLYTJENDUR Á GLEÐI-
OG FRIÐARJÓLUM
Tríóið Femmes Fatales
Poppkórinn Vocal Project,
Valkyrjunar – kvennakór Breiðholts
Barnakór Háteigsskóla
Félagar úr Kammerkór Reykjavíkur
Rappararnir Ástþór Óðinn og Ká
Eff Be
Magnús Eiríksson.