Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 16
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR16 LÖGGÆSLA „Það liggur fyrir að hér á landi er framleitt mikið af marijúana og amfetamíni og mjög lítið af þessum efnum flutt inn, að minnsta kosti tilbúið til neyslu.“ Þetta segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar LRH, spurður um hugsan- legar skýringar á því að umræddar tegundir fíkniefna hafa hrapað í verði á götunni. Verð á vímuefnum hefur farið lækkandi undanfarin tvö ár, samkvæmt verðmæling- um sem SÁÁ gerir meðal sjúklinga á Vogi. Verðið hefur ekki verið lægra síðan mæling- ar hófust um síðustu aldamót. Kannanirnar sýna að í fyrsta skipti í ársbyrjun 2010 skilur í fyrsta skipti á milli verðþróunar á áfengi og fíkniefnum. Meðan áfengi hélt áfram að hækka lítillega lækkaðu vímuefnin umtals- vert. Nefna má að 2010 lækkaði amfetamín mikið í verði og hass nokkuð. Hassið elti síðan verðlækkun á amfetamíni á þessu ári. Verð á kókaíni hefur að mestu staðið í stað en verð á rítalíni hefur hækkað og nánast fjórfaldaðist á tímabili miðað við verð ársins 2006. Karl Steinar kveðst telja að í fíkniefna- viðskiptum, þótt ólögleg séu, ríki í raun sömu lögmál og í almennum viðskiptum sem ráðist af framboði og eftirspurn. „Hugsanlega gætu menn verið að reyna að ná yfiráðum á einhverjum hluta markaðar með því að bjóða efni á lægra verði,“ útskýr- ir hann. „Það gæti líka skýrt stöðu annarra efna, það er að segja kókaíns og e-taflna, að markaðurinn á kókaíni hefur verið í lægð en virðist vera að eflast á ný. E-töflumarkaðurinn hefur verið miklu óstöðugri og erfitt að lesa í hreyfingar á verði þar.“ - jss Verð á fíkniefnum á götunni aldrei lægra en nú samkvæmt verðkönnunum SÁÁ: Mikil framleiðsla á amfetamíni hér á landi Kókaínmarkaður- inn virðist vera að eflast á ný. KARL STEINAR VALSSON MENGUN Í PEKING Kæfandi loft- mengun er algeng í höfuðborg Kína á þessum árstíma. Margir setja þá upp rykgrímur. NORDICPHOTOS/AFP BANDARÍKIN, AP Bandarísk stjórn- völd munu framvegis styðja við réttindi samkynhneigðra hvar sem er í heiminum með pólitískum þrýstingi, þróunaraðstoð og því að veita samkynhneigðum hæli í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í minnisblaði frá Barack Obama Bandaríkja- forseta sem gert var opinbert á fimmtudag. Hillary Clinton utan- ríkisráðherra áréttaði þessi áform á fundi í mannréttindaráði Samein- uðu þjóðanna á fimmtudag. Samkvæmt þessari viðbót við utanríkisstefnu líta Bandaríkin á það sem grundvallarmannréttindi að samkynhneigðum og transgen- der-fólki sé ekki mismunað á nokk- urn hátt. Samtök samkynhneigðra í Bandaríkjunum fögnuðu þess- ari stefnubreytingu og bentu á að enn ættu samkynhneigðir það á hættu að vera handteknir, pyntað- ir og jafnvel teknir af lífi í sumum löndum. Aðrir bentu á möguleg vanda- mál tengd þessari nýju stefnu. Neil Grungas, stofnandi samtaka sem beita sér fyrir rétti samkyn- hneigðra hælisleitenda í Bandaríkj- unum, sagði bandarísk stjórnvöld verða að tryggja sér breiðan alþjóð- legan stuðning við þessa stefnu til að alþjóðasamfélagið sæi þetta ekki sem tilraun til að þvinga vestræn- um gildum upp á önnur lönd. Grungas benti á að stefnubreyt- ingin gæti haft öfug áhrif. „Í lönd- um þar sem álit almennings á stefnu Bandaríkjanna er ekki hátt og vestræn gildi eiga ekki upp á pallborðið gæti almenningur notað þessa stefnubreytingu til að rétt- læta ofsóknir gegn hommum og lesbíum og auka stuðning við það með því að höfða til andstöðu við Bandaríkin.“ Samkvæmt minnisblaði Obama eiga bandarískir erindrekar að hjálpa samkynhneigðu fólki séu mannréttindi þess brotin. Þá eiga þeir að verja samkynhneigða hælisleitendur og flóttamenn sérstaklega. Innan við ár er síðan bandarísk stjórnvöld rufu þagnarmúr um samkynhneigða hermenn, sem þar til fyrr á þessu ári máttu ekki láta kynhneigð sína í ljós opinberlega. brjann@frettabladid.is Hafna mismunun vegna kynhneigðar Bandarísk stjórnvöld líta hér eftir á það sem grundvallarmannréttindi að sam- kynhneigðum og transgender-fólki sé ekki mismunað. Gæti haft öfug áhrif í löndum þar sem almenningur er andsnúinn Bandaríkjunum, segir sérfræðingur. Fulltrúar margra Afríku- og araba- ríkja sem fylgdust með ávarpi Clinton í mannréttindaráði Sam- einuðu þjóðanna kusu að ganga af fundi um leið og hún lauk máli sínu til að sýna óánægju sína með yfirlýsingu hennar. Samkynhneigð er ólögleg að einhverju marki í 78 þjóðríkjum, sérstaklega í Afríku og Suður- og Vestur-Asíu. Í sjö löndum liggur dauðarefsing við því að stunda kynlíf með fólki af sama kyni. Sýndu óánægju MANNRÉTTINDI Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heilsar fundar- gestum eftir yfirlýsingu um stefnubreytingu í málefnum samkynhneigðra í mann- réttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BRUSSEL, AP Frakkar og Þjóðverjar reyna í dag og á morgun að sann- færa aðra leiðtoga Evrópusam- bandsríkjanna um nauðsyn þess að breyta sáttmála sambandsins til að endurheimta traust til evrunnar. Herman Van Rompuy, forseti leiðtogaráðs ESB, segir enga þörf á að breyta sáttmálanum. Vel sé hægt að ná samkomulagi um strangara aðhald í ríkisfjármál- um án þess að fara út í það lang- vinna og óvissa ferli sem sáttmála- breytingar yrðu. Öll aðildarríkin, sem nú eru orðin 27, þyrftu að samþykkja slíkar breytingar, auk þess sem breyta þyrfti nýgerðum aðildarsamningi Króatíu. Búast má við töluverðum átök- um á fundinum, því afar skiptar skoðanir eru meðal aðildarríkj- anna um það hvort hugmyndir Þjóðverja og Frakka um fjármála- bandalag séu rétta leiðin til að takast á við kreppuna. AP-fréttastofan hafði eftir hátt- settum þýskum embættismanni, ónefndum, að Angela Merkel Þýskalandskanslari ætlaði ekki að bakka með neitt. Vel gæti því farið svo að leiðtogafundurinn skilaði engri niðurstöðu og leitin að lausn sem allir gætu sætt sig við héldi áfram næstu vikurnar. - gb Leiðtogafundur Evrópusambandsríkjanna haldinn í Brussel: Reiknað með töluverðum átökum VAN ROMPUY Á TALI VIÐ SARKOZY OG MERKEL Forseti leiðtogaráðs ESB ásamt Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta og Angelu Merkel Þýskalandskanslara í Brussel fyrr á árinu. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.