Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 78
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR62
folk@frettabladid.is
Á hverju ári kemur kvikmynd í bíóhúsin sem fangar
jólaandann í rómantískum og gamansömum stíl.
Í ár er það kvikmyndin New Year´s Eve en í
myndinni leikur fjöldinn allur af frægum leik-
urum. Myndin fjallar um afdrif ólíkra ein-
staklinga á síðasta kvöldi ársins. Kvikmyndin
var frumsýnd í Hollywood í vikunni og rauði
dregillinn stjörnum prýddur. Þar mátti sjá
glaðbeittan Ashton Kutcher, sem nýlega skildi
við leikkonuna Demi Moore,
en hann stillti sér upp með
leikkonunni úr sjón-
varpsþáttunum Glee,
Leu Michele. Einnig
mættu leikkonurnar
Michelle Pfeif-
fer og Hilary
Swank í sínu
fínasta pússi en
þær leika báðar
í mynd-
inni.
JÓLIN KOMIN
Í HOLLYWOOD
GRÁKLÆDDUR Leikarinn ungi
Zac Effron mætti glaður á rauða
dregilinn í gráum jakkafötum.
BROSMILD Sofia Vergara fer með
hlutverk í myndinni og mætti glöð á
frumsýninguna.
GÓÐIR VINIR Vel fór á með Leu Michele og Ashton Kutcher á
frumsýningunni en þau leika bæði í jólamyndinni.
FJÓLUBLÁTT Michelle Pfeiffer er ekki dag-
legur gestur á frumsýningum en hún leikur
í New Year´s Eve og mætti því brosandi.
NORDICPHOTOS/GETTY
KYNNIRINN
Kynnirinn og
útvarpsmaðurinn
Ryan Seacrest kom
á frumsýninguna en
hann leikur sjálfan
sig í myndinni.
FÍN Leikkonan Kath-
erine Heigl klæddist
svörtum kjól á frum-
sýningunni.
BLÁR KJÓLL Leikkonan Hilary Swank var
glæsileg í dökkbláum pallíettukjól.
ÁRA er söngkonan Nicki Minaj í dag en
hún vekur alla jafna athygli fyrir frumlegan
klæðaburð og líflega sviðsframkomu.
„Þetta eru bæði góðar fréttir og ömurlegar
fréttir,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgef-
andi hjá Bjarti & Veröld.
Athygli hefur vakið að bóksölulistinn
sem hefur birst vikulega í gegnum árin
var hvergi sjáanlegur í síðustu viku.
Þá gerðist það einmitt í fyrsta sinn í
tíu ár að Arnaldur Indriðason átti ekki
vinsælustu íslensku skáldsöguna, held-
ur Yrsa Sigurðardóttir, skjólstæðingur
Péturs Más, með bókina Brakið.
„Þetta er svolítið eins og að vera
með fæðingardaga fjölskyld-
unnar í lottóinu og í vikunni
sem maður gleymir að spila
koma tölurnar upp. En kost-
urinn við þetta er að það eru
meiri líkur á að þetta gerist
aftur heldur en að tölurnar í
lottóinu komi aftur,“ segir Pétur Már, sem frétti af því
fyrir viku að listinn kæmi ekki út þá vikuna. „Við
vorum býsna súr yfir því, vegna þess að listinn
skiptir máli í fjórar vikur á ári og fyrstu vikuna
sem hann skiptir máli kemur hann ekki.“
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er
ástæðan fyrir því að bóksölulistinn var ekki
birtur sú að starfsmaður Rannsóknarseturs
verslunarinnar sem vinnur listann var í fríi.
Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins var Arnaldur síðast í öðru sæti
á listanum árið 2001 þegar Ólafur
Jóhann Ólafsson skákaði Graf-
arþögn með Höll minninganna.
„Þessi listi hefur verið birtur í
sextán ár með smá hléi og það
hefur aldrei fallið út birting. En
þegar hún fellur loks niður þá
hafa orðið mikil tíðindi,“ segir
Pétur Már, sem tekur fram að
hann sé einnig ánægður með
vinsældir Arnaldar. „Það er
auðvitað gleðilegt að tvær
íslenskar skáldsögur skuli
seljast svona vel.“ - fb
Arnaldur missti toppsætið til Yrsu
GÓÐAR OG ÖMURLEGAR FRÉTTIR
Yrsa komst loksins upp fyrir
Arnald á bóksölulistanum sömu
viku og listinn birtist ekki. Súrsæt
tíðindi fyrir Pétur Má Ólafsson.
Söngvarinn George
Michael þarf að
eyða jólunum á spít-
ala en hann er enn
þá að jafna sig eftir
lungabólgu. Michael
var lagður inn á
spítala í Austur-
ríki fyrir tveimur
vikum en er á bata-
vegi núna.
„Honum er að
batna en það lítur út
fyrir að hann þurfi
að liggja inni yfir
hátíðarnar. Ég eyði
öllum stundum með
honum á spítalan-
um,“ segir kærasti
söngvarans, Fadi
Fawas, sem þó færir
með góðar fréttir
því um tíma var
söngvaranum vart
hugað líf.
Eyðir jólunum á spítala
ENNÞÁ VEIKUR George Michael verður á spítala yfir
hátíðarnar. NORDICPHOTOS/GETTY
27