Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 8
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR8
HVAÐ
KOSTAR
KRÓNAN
HEIMILIN?
Alþýðusamband Íslands boðar til
opins fundar um valkosti í vaxtamálum.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Við hvetjum fólk til að fjölmenna. Þetta er hagsmunamál okkar allra.
Fundarstjóri: Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ
Fimmtudaginn 8. desember kl. 17 á Grand Hótel – Gullteigi
Hvað kostar krónan heimilin í landinu?
æðumenn:R Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ
Fyrirspurnir og umræður
STANGVEIÐI „Það virðist ákveðin til-
hneiging núna á þessum markaði
að ná til baka þeirri miklu lækkun
sem varð á veiðileyfum í hruninu,“
segir Óðinn Sigþórsson, formaður
Landssambands veiðifélaga (LV).
Í fréttabréfi LV segir að eftir
nýleg útboð í Laxá á Ásum, Þverá/
Kjarrá og Flókadalsá í Fljótum,
þar sem leiga veiðiréttarins hafi
hækkað frá 20 upp í rúm 50 pró-
sent, virðist sumir veiðileyfasalar
meta það svo að markaðurinn þoli
þó nokkra hækkun. Ýmsar ár, til
dæmis Laxá í Kjós og Grímsá,
séu með lausa samninga haustið
2013 og menn velti því nú fyrir
sér hvort rétt sé að fara í útboð
eða leita samninga vð leigutaka.
„Er það ljóst að niðurstaða þeirra
útboða sem nefnd eru hér að ofan
munu hafa áhrif til hækkunar
á þeim samningum, sem gerðir
verða á næstunni.“
Bjarni Júlíusson, formaður
Stangaveiðfélags Reykjavíkur
(SVFR), segir menn óneitanlega
hljóta að líta til Þverár/Kjarrár-
útboðsins þegar þeir verðleggi
sín veiðileyfi. Menn megi þó ekki
gleyma að sá samningur taki ekki
gildi fyrr en 2013.
„Þegar upp er staðið snýst þetta
um það hvort það séu til kaup-
endur að veiðileyfum sem hafa
hækkað um tuttugu eða þrjá-
tíu prósent. Ég fullyrði að hinn
almenni íslenski veiðimaður
þolir ekki svona hækkun,“ segir
Bjarni. „Það hljóta allir að sjá að
fjölskyldurnar í landinu hafa það
ekki betra árið 2011 en þær höfðu
það 2009 og 2010.“
Bjarni segir að til þess að geta
greitt fyrir eins mikla hækkun
og í fyrrnefndum útboðum þurfi
að treysta að einhverju leyti á
erlenda veiðimenn.
„Gengið hefur verið hagstætt til
þessa en það er kreppa úti í heimi
og viðsjár á evrusvæðinu,“ varar
Bjarni við og bendir á að erfitt sé
að viðhalda háu verði ef gengi evr-
unnar falli gagnvart krónunnni.
„Það má ekki gleyma því að
þegar gengið féll og vísitalan
hækkaði og allir héldu að Ísland
væri komið í vond mál til fram-
tíðar gáfu menn eftir vísitölu-
hækkanir á leigu. Það þýddi í raun
tuttugu prósenta raunlækkun á
leigunni. Nú er vaxandi eftirspurn
eftir veiði á Íslandi, meðal ann-
ars vegna þess að erlendir veiði-
menn eru farnir að sækja hingað
í vaxandi mæli,“ segir Óðinn, sem
kveður mál munu skýrast að ein-
hverju leyti fljótlega. „Það verða
tíðindi á þessum markaði á næstu
mánuðum.“ gar@frettabladid.is
Vilja bæta sér
gengisfall með
veiðileyfunum
Útkoma þriggja nýlegra útboða bendir til hækkana
hjá öðrum líka að sögn Landssambands veiðifélaga.
Formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur segir hinn
almenna veiðimann þó ekki þola miklar hækkanir.
LAXÁ Í KJÓS Samningar um leigu á veiðiréttindum í Laxá í Kjós renna út á næsta
ári. Eigendur horfa til hækkana á leigu annarra vinsælla veiðiáa í nýlegum útboðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
1. Hver er höfundur nýjustu mat-
reiðslubókar Hagkaupa?
2. Hvaða frændur okkar eru
smjörlitlir og þurfa aðstoð?
3. Hvað heitir ný bók Yrsu
Sigurðardóttur?
SVÖR
1. Sólveig Eiríksdóttir. 2. Norðmenn.
3. Brakið.
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í átta mánaða fangelsi
fyrir nokkur þjófnaðarbrot.
Maðurinn stal veskjum, lyklum
og fleiri verðmætum, tölvusnúru
úr verslun og tveimur vínflöskum
af hóteli. Í starfsmannaaðstöðu
veitingastaðar komst hann yfir
hring að verðmæti 50 þúsund,
Nina Ricci sólgleraugu að verð-
mæti 30 þúsund svo og 20 þúsund
í peningum. Maðurinn játaði sök
fyrir dómi. Hann á langan saka-
feril að baki. - jss
Stal veskjum og verðmætum:
Fingralangur í
8 mánuði inni
Ræktun á Suðurnesjum
Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald
um 30 kannabisplöntur í fjölbýlis-
húsi í Reykjanesbæ um síðustu helgi.
Húsið var mannlaust þegar lögreglu
bar að garði.
LÖGREGLUFRÉTTIR
REYKJAVÍK Þrjú hundruð milljónir
króna verða veittar í hverfaverk-
efni sem koma inn í gegnum vef-
inn Betri Reykjavík á næsta ári.
Reykjavíkurborg hefur nú
opnað undirvef á síðunni Betri
Reykjavík sem heitir Betri hverfi.
Þar munu íbúar geta sett inn hug-
myndir að nýframkvæmdum og
viðhaldsverkefnum í sínu hverfi.
Þá geta þeir stutt hugmyndir ann-
arra eða hafnað þeim. Þessi vett-
vangur verður opinn fram til 16.
janúar á næsta ári og eftir það
verða efstu hugmyndirnar teknar
af vefnum og metnar af viðkom-
andi sviðum borgarinnar.
Ef sviðin komast að því að fram-
kvæmdin heyri undir verkahring
borgarinnar verða hugmyndirn-
ar metnar út frá kostnaði. Í fram-
haldinu munu hverfaráð stilla
upp verkefnunum og íbúum gefst
kostur á að kjósa um hugmynd-
irnar í bindandi og rafrænni
kosningu í mars.
Reykjavíkurborg óskar því
eftir hugmyndum frá íbúum.
Hugmyndirnar eiga að snúa að
umhverfinu, möguleikum til úti-
vistar, aðstöðu til leikja, bætta
aðstöðu gangandi vegfarenda og
svo framvegis. - þeb
Kosið um bestu framkvæmdahugmyndir í mars:
300 milljónir í hverfin
Ak
ran
es
Ak
ure
yri
Blö
nd
uó
s
Es
kif
jör
ðu
r
Hú
sa
vík
Hv
ols
vö
llu
r
Hö
fuð
b.s
v.
Sa
uð
árk
r.
Se
lfo
ss
Se
yð
isf
j.
Sn
æf
ell
sn
es
Su
ðu
rne
s
Ve
stf
irð
ir
Ve
stm
.ey
jar
Bo
rga
rne
s
Fjöldi umferðarlagabrota
30 þ.
25 þ.
20 þ.
15 þ.
10 þ.
5 þ.
0
561 895 940
6.221
1.737
284 1.054
27.307
275
10.700
407 459
3.083
457 255
HEIMILD: AFBROTATÖLFRÆÐI
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA
LÖGREGLUMÁL Alls voru ríflega
54.600 umferðarlagabrot skráð
hér á landi á síðasta ári, að því er
fram kemur í samantekt ríkislög-
reglustjóra. Tæplega 90 prósent
þessara brota voru framin innan
100 kílómetra frá höfuðborginni.
„Auðvitað reynum við að
standa okkur, vera vakandi
og gera skyldu okkar,“ segir
Theodór Þórðarson, yfirlög-
regluþjónn í Borgarnesi. Hann
segir fjölda brota hjá umdæm-
inu fyrst og fremst skýrast af
umferðarþunga vegna nálægðar
við höfuðborgina. - bj
Tæplega 55 þúsund umferðarlagabrot skráð á síðasta ári samkvæmt samantekt:
Flest brot í eða við höfuðborgina
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært rúmlega tvítugan karl-
mann fyrir Héraðsdómi Vestur-
lands fyrir sérstaklega hættulega
líkamsárás.
Manninum er gefið að sök að
hafa á veitingastaðnum Gamla
kaupfélaginu á Akranesi sleg-
ið glerílát frá sér sem kastaðist í
aftanvert höfuð annars manns. Sá
fékk skurð við hvirfilinn.
Fórnarlambið krefst þess að
sá sem þeytti glerílátinu greiði
sér rúmlega 237 þúsund krónur í
skaðabætur. - jss
Rúmlega tvítugur ákærður:
Þeytti gleríláti
í höfuð manns
RÁÐHÚSIÐ Óskað er eftir að íbúar skili
inn hugmyndum að nýframkvæmdum
og viðhaldsverkefnum í sínu hverfi.
VEISTU SVARIÐ?