Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 82
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR66
Leikaranum Alec Baldwin var á
dögunum sparkað úr flugvél sem
átti að ferja hann frá Los Angeles
til New York.
Forsaga málsins er sú að
Baldwin var beðinn um að
slökkva á símanum sínum þegar
hann var að spila tölvuleik-
inn Words with Friends áður en
flugvélin fór af stað. Baldwin
snöggreiddist, stóð upp og fór á
klósettið. Skellti hann hurðinni
svo fast á eftir sér að flugstjóri
vélarinnar heyrði og ákvað að
skipta sér af málinu. Þegar hann
hafði rætt við flugfreyjurnar
ákvað hann að Baldwin kæmi
ekki með til New York og henti
honum út.
Baldwin segist þó aðeins hafa
staðið upp þegar búið var að
kveikja á sætisbeltaljósunum og
að engum hurðum
hafi verið skellt.
Það breytti
engu og hann
þurfti að taka
aðra vél heim
á leið.
Bradley Cooper hefur viður-
kennt að fegurð Ryans Gosling
hafi fengið hann til að efast um
eigið útlit. Leikarinn var nýverið
kjörinn kynþokkafyllsti mað-
urinn 2011 af tímaritinu People,
við dræmar undirtektir aðdá-
enda Goslings. „Við vorum báðir
í París í síðustu viku og vinur
minn sýndi mér myndir af honum
sem papparassarnir tóku. Og
þegar ég segi vinur minn er ég
að tala um sjálfan mig að skoða
myndirnar í tölvunni,“ sagði
Cooper í spjallþættinum The
Graham Norton Show. „Hann
lítur út eins og hann sé nýstig-
inn af sýningarpallinum. Ég lít
út eins og nágranninn sem fer
eiginlega aldrei út úr húsi.“
Gosling er
gullfallegur
HRÍFST AF GOSLING Bradley Cooper
segir að Gosling líti út eins og hann sé
nýstiginn af sýningarpallinum.
Hurðaskellir
kominn á stjá
REIÐUR Alec Bald-
win er skaphundur.
Sjónvarpsþátturinn Glee
heiðrar minningu popp-
kóngsins Michaels Jack-
son í janúar á næsta ári.
Þátturinn mun snúast
um plötuna Thriller, sem
er mest selda plata allra
tíma. Þátturinn hefur
áður heiðrað listamenn á
borð við Britney Spears,
Madonnu og hljómsveit-
ina Fleetwood Mac með
svipuðum þáttum.
Í tímaritinu TV Guide
segir að allt að tólf lög
Michaels Jackson verði
flutt í þættinum, en
fjölskylda söngvarans
ku hafa gefið góðfúslegt
leyfi fyrir því. Þá vonar
fjölskyldan að þátturinn
muni snúast um tónlist-
ina en ekki sviplegt frá-
falls hans árið 2009.
Leikarar þáttarins
eru gríðarlega spenntir
fyrir verkefninu og haft
er eftir Ryan Murphy,
framleiðanda þáttarins,
að þeir hafi hreinlega
drekkt honum í beiðn-
um um að fá að flytja
uppáhaldslögin sín eftir
Michael Jackson.
Glee heiðrar Michael Jackson
POPPKÓNGURINN HEIÐRAÐUR Tónlist Michaels Jackson verður við-
fangsefni Glee-þáttar sem sýndur verður á næsta ári.